Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ SveitarstjórnNorðurþingsáformar að lækka fasteigna- gjöldin með haust- inu. Þetta kom fram í samtali við Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóra Norðurþings, í Morgun- blaðinu í gær. Ástæðan fyrir þessum ummælum er að fast- eignamat á Húsavík hækkaði um 42%. Fasteignaskatturinn er hlutfall af fasteignamati. Fasteignamatið fyrir næsta ár hækkaði um allt land, en þó hvergi meira en á Húsavík. Meðaltalið yfir landið er 15,5%. Að óbreyttu myndi það hafa í för með sér að fast- eignagjöld hækkuðu verulega víðast hvar um landið. Miklar hækkanir hafa verið á fasteignamarkaði undan- farin misseri. Þessar hækk- anir skipta þá máli, sem kaupa og selja fasteignir. Þær skipta hins vegar minna máli fyrir þá, sem sitja sem fastast í sínum fasteignum. Þeir þurfa aðeins að þola að fast- eignagjöldin hækki vegna þess að nærliggjandi hús selj- ast á uppsprengdu verði. Þeir geta dundað sér við að reikna út hvað eignir þeirra hafi hækkað mikið í verði, en ábat- inn er enginn á meðan ekki er selt. Það stenst ekki rök að eigendur fasteigna þurfi að sæta hækkun fasteignagjalda langt umfram verðbólgu og vísi- tölu. Í því er held- ur engin sanngirni. Verð á fasteignum er ekki í neinu samhengi við almenna verð- lagsþróun í landinu. Ef þróun fasteignaverðs væri ekki tekin með í reikninginn væri hér verðhjöðnun. Það er því ánægjulegt að heyra af áformum sveit- arstjórans í Norðurþingi og verður fróðlegt að sjá hvernig borgar-, bæjar- og sveit- arstjórar annars staðar á landinu bregðast við. Hækkun fasteignamatsins á Húsavík var slík að sveitarstjórnin á í raun ekki annars kost en að bregðast við. Það þýðir þó ekki að ráðamenn annars staðar geti leitt hækkun fast- eignamatsins hjá sér, þótt hún sé minni í þeirra sveit. Ekki má gleyma því að þeg- ar fasteignamatið hækkar snýst lækkun álagningarhlut- fallsins í raun ekki um að lækka skatta. Það snýst um að stilla álagninguna af þann- ig að fasteignamatið, sem hún er miðuð við, leiði ekki sjálf- krafa til þess að skattarnir hækki. Hvernig ætla sveitarfélög að bregðast við hækkun fast- eignamats?} Norðurþing ríður á vaðið Mikil gróska –ef nota má það orð í svo skelfi- legu samhengi – er á alþjóðlegum markaði fyrir eit- urlyf um þessar mundir samkvæmt ársskýrslu fíkniefna- og afbrotamálaskrif- stofu Sameinuðu þjóðanna. Segir þar að gríðarlegur vöxt- ur sé í framleiðslu á kókaíni og ópíumi og fylgi honum mikill glundroði. Stóran hluta vandans má rekja til ópíumræktar í Afgan- istan. Milljörðum dollara hefur verið varið í að fá bændur í Afganistan til að hætta að rækta ópíum undanfarinn ára- tug. Eftir að talibanar náðu sér á strik í Afganistan hefur það átak að engu orðið og er þriðj- ungs aukning í rækt ópíums einkum rakin til metuppskeru þar í landi. Talibanar nota tekj- urnar af ópíuminu til að fjár- magna hernað sinn. Í skýrslunni er talað um að efni unnin úr ópíumi valdi mestu heilsutjóni. Þeirra á meðal er heróín, en einnig má nefna verkjalyf og eftirlíkingar af þeim. Í Bandaríkj- unum létust 16.849 af ofneyslu heró- íns árið 1999, en 52.404 árið 2015. Áratugum saman hefur kókaínrækt valdið gríðarlegum usla í Rómönsku Ameríku og hafa heilu þjóðfélögin nánast verið í herkví eiturlyfjabaróna og liðsmanna þeirra. Millj- örðum dollara hefur verið varið í baráttu gegn þeim án teljandi árangurs. Erfitt er að sjá hvað er til bragðs í baráttunni við eitur- lyfjapláguna. Á meðan eftir- spurnin eftir ólöglegum lyfjum er til staðar munu einhverjir sjá sér leik á borði að uppfylla hana. Augljóst er að þau meðul sem notuð hafa verið hingað til skila ekki árangri, og fórn- arkostnaðurinn er fyrir löngu kominn úr böndum. Talið er að 190 þúsund manns látist árlega af völdum fíkniefna og 29 og hálf milljón manna þjáist af sjúkdómum tengdum fíkni- efnaneyslu. Það er of mikið. Baráttan gegn fíkniefnum er í öngstræti og blóðtakan eykst} Eiturlyfjaplágan H ugmyndir fjármálaráðherra um að taka fimm og tíu þúsund króna seðilinn úr umferð til þess að sporna við skatt- svikum eru afleitar. Aðrar og mildari leiðir hljóta að vera mögulegar, eins og þær að bankarnir setji einhver tiltekin tak- mörk á það hve mikið megi taka af reiðufé út á hvert kort eða kennitölu yfir ákveðinn tíma. Með slíku fyrirkomulagi ætti að nást vel utan um vandann, sem er sá að alltof margir borga ekki það sem þeim ber í sameiginlega sjóði. En peningaseðlar þurfa áfram að vera til, þó ekki sé nema til að borga lítilræði til barnapí- unnar eða iðnaðarmanninum sem reddar vini sínum við að setja upp hillu, festa lausar skrúfur og svo framvegis. Einnig ef keypt er skran á bland.is eða í Kolapotinu. Slíkt á ekk- ert skylt við takmarkanir á seðlamagni í umferð sem vinna eiga t.d. gegn því að Ísland sé skálkaskjól í peningaþvætti vondra karla í útlöndum. Þá má minna á að margir komust skár en ella frá syndaflóði hrunsins með því að taka út milljónir í seðlum og geyma undir kodda. Innistæður í bönkum geta gufað upp en reiðufé síður. Þá er rétt að hafa í huga að viðskipti manna á milli verða aldrei að öllu leyti sýnileg. Alltaf tíðkast vinargreiðar, vinnuskipti og redd- ingar, sem ekki er hægt að meta til skatts. En hve alltumlykjandi eiga og mega yfirvöld vera? Til- lögurnar um tíuþúsundkallinn vekja spurningar í því sam- bandi; þarf þéttofið regluverk um allt okkar daglega bras sem svo er undir stöðugu eftirliti kerfiskarla og pappírstígrisdýra? Fyrir nokkrum árum var sérstakt áherslumál af hálfu heilbrigðiseft- irlits að taka fyrir sölu á heimabakstri, kökum og kleinum sem áttu að vera stórhættulegar. Sem betur fer voru reglur um þetta teknar úr sambandi, enda sýndu þær og eftirfylgnin beint í sár fáránleikans. Vantar þó ekki að margt annað ruglið hefur komið í staðinn, regl- ur, eftirlit, aðgerðir, eftirfylgd og svo mætti áfram telja. Mikilvægt er að stjórnvöld tryggi að þar sem mögulegt er gildi hæfilegt stjórn- leysi, skaði gerandinn ekki aðra. Við þurfum andrými. Fer svo ekki líka að koma sá tími að fólk að minnsta kosti velti fyrir sér hvort stafræn skrásetning allra okkar skrefa um daginn og veginn sé komin úr öllu hófi? Oft á dag förum við fyrir geisla eftirlitsmyndavéla, fjarskiptafyrirtækin geta séð hvenær við hringjum í hvern og hvort kveikt sé á símanum eða sjónvarpinu, verslanir geta séð hvað við kaupum í matinn og á vef bókasafnanna er gott yfirlit um hvaða bækur við höfum fengið lánaðar – og lesið – sem aft- ur segir heilmikið um fólk, áhugamál þess og afstöðu til hinna ýmsu mála. Og viðskiptayfirlit bankanna sýna ná- kvæmlega við hverja, hvenær og hvar við eigum rafræn viðskipti. Ætli sjáist þar ekki líka hvað við tökum út í reiðufé, til dæmis hina stórhættulega fimm- og tíuþús- undkalla sem náttúrlega er hægt að spreða í tóma vitleysu eða nota í allskonar svindl og svínarí. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Spreðað í tóma vitleysu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ráðherranefnd um efna-hagsmál hefur fjallað ummálefni lífeyrissjóða ogákveðið að Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra skipi starfshóp um hlutverk lífeyrissjóða í uppbyggingu atvinnulífs. Í starfs- hópnum eiga sæti Gunnar Baldvins- son formaður, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, Áslaug Árnadóttir lögmaður og Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri eTactica ehf., samkvæmt því sem fram kemur í frétt á heimasíðu for- sætisráðuneytisins. Eignir sjóðanna mjög miklar Þar kemur fram að eignir líf- eyrissjóða hafi aukist verulega á liðnum árum og voru samtals 3.514 milljarðar í ársbyrjun 2017, eða um 150% af lands- framleiðslu. Til samanburðar er nefnt að í árs- byrjun 1998, þeg- ar lög um lífeyris- sjóði voru samþykkt, hafi eignir sjóðanna verið 407 millj- arðar og vegið 75% af lands- framleiðslu. Mið- að við spár sé talið að stærð sjóð- anna muni að hámarki nema um þrefaldri landsframleiðslu á næstu áratugum. Vegna mikils vaxtar séu lífeyrissjóðirnir umsvifamiklir í ís- lensku efnahagslífi og eigi stóran hluta innlendra peningalegra eigna, sérstaklega skráðra verðbréfa. Auk þess eigi þeir verulegar eignir sem ekki séu skráðar í kauphöll, þ. á m. útlán til sjóðfélaga og hlutabréf í óskráðum fyrirtækjum. Gunnar Baldvinsson, formaður samstarfshópsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hópurinn hefði átt einn undirbúningsfund. Annar væri áætlaður í næsta mánuði og starfið færi síðan af stað af fullum krafti í ágúst. Draga úr áhættu „Verkefni okkar er að leggja faglegt mat á efnahagslegar og sam- keppnislegar áhættur, sem leiða af því að umfang sjóðanna á Íslandi er óvenju mikið í alþjóðlegum saman- burði. Við eigum m.a. að skoða hvort æskilegt er að setja reglur eða gera lagabreytingar um eignarhald og að- komu sjóðanna að stjórnun atvinnu- fyrirtækja, með það að markmiði að draga úr áhættu sjóðanna og tryggja samkeppni á markaði,“ sagði Gunnar. Hann sagði að starfs- hópurinn myndi reyna að kortleggja efnahagslega og samkeppnislega áhættu sjóðanna. „Einnig munum við skoða hvernig regluverkið er um lífeyrissjóði hjá öðrum þjóðum, til að tryggja samkeppni á markaði. Við munum í þeim efnum líta til OECD- landanna, Bandaríkjanna, Bretlands og Norðurlandaríkjanna,“ sagði Gunnar enn fremur. Starfshópnum er ætlað að skila skýrslu sinni fyrir næstu áramót. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að lögum samkvæmt megi líf- eyrissjóður að hámarki eiga 15% (20% frá 1.7. 2017) í hverju fyrir- tæki. Þetta leiði til dreifðra fjárfestinga en hafi haft þau áhrif að lífeyrissjóðir eigi í mörgum tilvikum hlut í fleiri en einu fyrirtæki á sama markaði. Þetta, ásamt aukinni eignarhlutdeild líf- eyrissjóða, kalli á umræðu um aðkomu lífeyrissjóða að stjórnun atvinnufyr- irtækja, um sam- keppnismál og stjórnarhætti. Hlutverk lífeyrissjóð- anna í atvinnulífinu Morgunblaðið/Kristinn Stórir Eignir lífeyrissjóðanna í atvinnufyrirtækjum á Íslandi hafa stór- aukist á undanförnum árum og eiga þeir nú um 50% í skráðum félögum. Bjarni Benediktsson forsætis- ráðherra segir að stóraukið eignarhald lífeyrissjóðanna í landinu á undanförnum árum í atvinnufyrirtækjum sé kveikja þess að hann hafi skipað starfshópinn. „Mér sýnist sem lífeyr- issjóðirnir séu komnir með í kringum 50% eignarhald í skráðum félögum, sem kann að vera mismunandi eftir fé- lögum. Við þá stöðu vakna ákveðnar spurningar, sem lúta að samkeppni og áhættu- dreifingu fyrir lífeyr- isþega. Því viljum við taka út stöðuna hvað þessa þætti snertir. Þá viljum viðsvara spurning- unni hvað er æskilegt að lífeyrissjóðirnir eigi stór- an hluta af atvinnu- lífinu á Ís- landi?“ sagði Bjarni. Vil taka út stöðuna BJARNI BENEDIKTSSON Bjarni Benediktsson Gunnar Baldvinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.