Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 ✝ Þórarinn Vil-bergsson fædd- ist á Hvalnesi við Stöðvarfjörð 11. júlí 1919. Hann lést á Heilbrigðisstofn- un Norðurlands á Siglufirði 9. júní 2017. Foreldrar hans voru Ragnheiður Þorgrímsdóttir, húsfreyja á Hval- nesi, f. 19. febrúar 1884, d. 26. september 1968, og Vilbergur Magnússon, bóndi og sjómaður á Hvalnesi, f. 31. júlí 1881, d. 26. desember 1956. Systkini Þór- arins eru Sigurborg, f. 21. apríl 1906, d. 1. apríl 1992, Þorgrím- ur, f. 27. september 1907, d. 15. október 1979, Magnús, f. 1909, dó ungbarn, Halldóra, f. 26. mars 1911, d. 12. september 1989, Marta, f. 27. október 1913, meistararéttindum 30. júní 1947. Hann byrjaði með eigin starfsemi á Siglufirði 1948. Sama ár hóf hann að byggja ein- býlishús sitt og Fönnu á Laugar- vegi 13 þar í bæ og fluttu þau á neðri hæðina 1951, en á efri hæðinni var Þórarinn með verk- stæði. Árið 1960 stofnuðu Þór- arinn og Birgir Guðlaugsson Byggingafélagið Berg ehf. 1966. Einnig áttu þeir Dráttarbraut Siglufjarðar. Verkstæðið flutti síðar að Norðurgötu 16, þar sem það er enn starfrækt. Meðan Þórarinn starfaði útskrifaði Berg ehf. rúmlega 20 sveina og eru sumir þeirra eigendur að fyrirtækinu í dag. Hann var hluthafi í fyrirtækinu til dauða- dags. Hann starfaði sem bygg- ingatæknifræðingur hjá Siglu- fjarðarbæ um tíma. Hann var meðlimur í Lionsklúbbi Siglu- fjarðar. Eftir að starfsævinni lauk var helsta áhugamál hans rennismíði úr timbri og liggja margir fallegir munir eftir hann. Útför Þórarins fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 24. júní 2017, og hefst klukkan 14. d. 24. september 2002, Aðalheiður, f. 2. júní 1915, d. 2. maí 1982, Kjartan, f. 6. mars 1921, d. 20. apríl 1993, Ari, f. 6. maí 1925, d. 10. ágúst 1988, og Anna, f. 8. apríl 1928, d. 30. apríl 2011. Þórarinn kvænt- ist Fanneyju Sig- urðardóttur 24. maí 1947. Fann- ey var fædd 30. október 1922; hún lést 25. júlí 2016. Foreldrar hennar voru Andrea Ólöf Andr- easdóttir Sæby, f. 24. október 1883, d. 14. október 1970, og Sigurður Jónsson, sjómaður og beykir, f. 23. desember 1875, d. 28. janúar 1932. Þórarinn fór í Iðnskólann á Akureyri og lauk þaðan sveins- prófi í smíðum 3. júní 1944 og Elsku kallinn minn. Þú varst kominn á eftirlauna- aldur þegar ég fæddist árið 1986, við fylgdumst að í rúm 30 ár. Ég var snemma farin að vera hjá ykkur Fönnu, bæði í heim- sókn og pössunum. Minningarnar af efri hæðinni eru óendanlega margar en nokkrar eru sem standa upp úr. Kuðunga-óróinn sem hékk í loftbitanum í stofunni var mitt helsta verkefni í mörg ár og man ég alltaf eftir því þegar ég var að taka tilhlaupin og reyna að hoppa upp í óróann eða stafla síma- skrám í massavís bara til að ná rétt í neðsta partinn. Stundum bauð ég vinum mín- um með í kaffiheimsókn til ykkar þar sem þið áttuð alltaf Lindu- suðusúkkulaði og mjólk. Oft var líka mikið sport að koma að byggja hús úr spilum, þar sem þið voruð með teppi í stofunni og því auðvelt að byggja á því, alltaf vor- uð þið til í að taka á móti okkur. Skeggrakstur og klipping var alla tíð okkar. Ég var bara lítil þegar ég byrjaði á að raka á þér skeggið með rafmagnsrakvél, og held ég að þú hafir bara leyft mér það til að búa til skemmtilegt verkefni handa mér, því að það er ekta þú að reyna að gefa allt af þér. Eftir að þið Fanna fluttuð á spítalann fólstu mér það hlutverk að klippa fína hvíta hárið þitt. Fönnu leist ekki alltaf á blikuna hvað varðaði klippinguna, en þú varst alltaf sáttastur við að vera alveg snögghærður. Það sem mér finnst það mikill lukkupottur í mínu lífi að hafa átt þig og Fönnu að. Ég hef alltaf lit- ið á ykkur sem mína eigin fjöl- skyldu, bónussett af ömmu og afa sem ég var svo heppin að eignast við fæðingu og veit ég að þið lituð á okkur fjölskylduna á neðri hæð- inni sem ykkar fjölskyldu líka. Það var föstudaginn 2. júní sem ég kom og klippti þig í síð- asta skipti. Nákvæmlega viku seinna varstu farinn. Ég vil leyfa mér að halda það að þú hafir vitað að ekki væri langt eftir og viljað líta sem best út þegar þú myndir hitta stóru ástina í lífi þínu aftur, hana Fönnu. Þú verður alltaf fallegasta sál- in mín. Það eru fáir sem gætu tekið það af þér, elsku besti Þór- arinn minn. Allir sem þekktu þig vita hvað ég meina. Elska þig. Þín Bryndís. Í dag kveð ég minn elsta og besta vin, Þórarin Vilbergsson. Við systkinin á Laugarvegi 13, neðri hæð, duttum heldur betur í lukkupottinn því á efri hæðinni bjuggu Þórarinn og Fanna. Þau voru okkur alla tíð sem amma og afi og veittu okkur ómælda ást og umhyggju. Ég og Þórarinn urðum strax perluvinir þó aldursmunurinn á okkur hafi verið 60 ár. Þórarinn var einstakur maður með mikið jafnaðargeð, blíður, góðhjartaður og ég gæti talið endalaust upp því fyrir mér og að ég held öllum sem þekktu Þórarin var hann gull af manni. Hann var einnig fagurkeri fram í fingurgóma, handlaginn með eindæmum og hafði næmt auga fyrir fallegum hlutum. Ég fór óteljandi ferðir á efri hæðina að hitta Þórarin og ég man að fyrstu árin á minni skóla- göngu fékk ég alltaf far með hon- um í skólann. Ég passaði að fara tímanlega á efri hæðina svo ég gæti setið aðeins hjá honum í hægindastólnum og hlustað á fréttirnar áður en lagt var af stað. Það var eitt sem Þórarinn bað mig alltaf um að gera þegar ég var yngri og það var að reyna að hoppa upp í skreytingu sem hékk í innganginum á stofunni. Ég man eins og í gær fögnuðinn hjá okkur báðum þegar ég loksins náði að snerta skreytinguna í einu stökkinu enda lágu nokk- urra ára æfingar að baki. Ég á ófáar minningar frá samveru okkar og þegar ég hugsa til baka þá voru rólegheit á okkur tveim- ur, bæði miklir dundarar og kröf- urnar hjá mér sem barn voru bara að fá að vera nálægt Þórarni og fylgjast með því sem hann var að brasa. Þórarinn og Fanna voru ávallt hluti af okkar fjölskyldu og er missir okkar mikill. Við höfum verið saman á öllum tímamótum í lífi hvort annars í 40 ár; afmæli, giftingar, skírn, útskriftir og svo mætti lengi telja. Fallegar og góðar minningar urðu til sem við fjölskyldan á Laugarvegi 13 mun- um ætíð varðveita. Alla tíð tók Þórarinn á móti mér með bros á vör og opinn faðm og þegar ég eignaðist mína fjölskyldu voru móttökurnar ekki síðri. Þórarinn og Þorsteinn maðurinn minn náðu vel saman og núna síðustu árin var alltaf farið yfir veiðitölur og skoðaðar myndir af aflanum þegar við hittumst. Við lofuðum þér nýjustu veiðitölum í næstu heimsókn en núna ertu kominn til Fönnu þinnar sem þú hefur sakn- að svo sárt þannig að veiðitölurn- ar bíða betri tíma. Ég kveð þig með orðum sem þú sagðir við mig um daginn: Þakka þér fyrir vináttuna í öll þessi ár. Elsku Þórarinn, takk fyrir allt, samvera okkar var ómetanleg og orð fá ekki lýst hversu sárt þín verður saknað. Þín Rósa Mary. Það fjölgar alltaf himnakórn- um í. Fallinn er frá góður fjöl- skylduvinur sem ég kallaði „afa“ til fjölda ára, vitandi það þó að hann væri ekki afi minn. Þessi góðhjartaði maður sagði bara já, fyrst þegar ég kallaði til hans: Afi; þá var ég nýbúinn að sópa fyrir hann sagið í slippnum á Siglufirði, lítið verkefni sem hann fól mér á meðan pabbi fór heim í Hofsós að sækja bílinn, en við höfðum komið á bátnum hans til Siglufjarðar um nóttina. Faðir minn og Þórarinn voru miklir mátar og ég á minningar um þau, hann og eiginkonu hans Fanneyju Sigurðardóttur, frá unga aldri. Megnið af útgerðarár- um pabba kom hann með bátana sína í slipp til Þórarins. Það gerði hann vegna vinskapar og vegna þess að Þórarinn var einstaklega góður smiður og sérstaklega lag- inn við svokallaða „grísahryggi“. Þórarinn rak slippinn, var einn eigenda og stofnenda bygginga- félagsins Bergs og kenndi einnig við Iðnskólann á Siglufirði. Eftir að maður fullorðnaðist var gott að sækja þau hjónin heim hvort sem það var á Lauga- veginn eða bústaðinn þeirra í Fljótunum, sitja yfir kaffibolla og spjalla. Ég hafði mikla ánægju af því að færa þeim ýmislegt í mat- arkistuna. Þau höfðu sérstaka ánægju af því þegar ég kom með fugla til þeirra, gæsir og rjúpur. Síðustu ár var Þórarinn með trérennibekk uppi á lofti hjá sér þar sem hann renndi marga fal- lega hluti og hlotnuðust mér nokkrir þeirra til eignar og þykir vænt um að geta horft á þá og munað eftir þessu góða fólki sem vildi mér ætíð vel. Mér þótti líka vænt um að dóttir mín fékk tæki- færi til að kynnast Þórarni og Fanneyju og er þakklátur fyrir velvilja þeirra til handa henni. Þiðrik Unason. Látinn er á háum aldri góður fjölskylduvinur á Siglufirði. Við systkinin höfum þekkt hjónin Þórarin og Fanneyju um langa tíð þar sem þau bjuggu í húsinu beint á móti húsi foreldra okkar á Laugarveginum. Þórarinn var hár og myndar- legur Austfirðingur sem kom til Siglufjarðar í síldarævintýrinu og lagði gjörva hönd á uppbygg- ingu bryggju- og braggasmíði og það sem laut að síldarvinnslu. Hann starfaði bæði sem húsa- smiður og ekki síður sem báta- smiður. Þórarinn stofnaði bygg- ingafyrirtækið Berg ásamt vini sínum Birgi Guðlaugssyni er lést fyrir nokkrum árum. Þórarinn kynntist Fanneyju Sigurðardóttur konu sinni ætt- aðri frá Eyri á síldararárunum. Voru þau ákaflega samrýmd hjón, glaðvær og skemmtilegt að heimsækja þau. Fanney var ein- staklega mikil hannyrðakona og bar heimilið þess glöggt merki. Eftir að Þórarinn minnkaði við sig vinnuna fór hann að föndra eins og hann sagði sjálfur. Bjó til fallega listmuni sem hann skar út og sýndi okkur með miklu stolti enda munirnir einstaklega falleg- ir. Nú að leiðarlokum viljum við færa þessum heiðurshjónum okk- ar hinstu kveðju og þökkum góða vináttu við foreldra okkar sem og okkur. Þau hjónin reyndust móð- ur okkar einstaklega vel eftir lát föður okkar. Við systkinin vottum ættingj- um Þórarins og Fanneyjar okkar dýpstu samúð. Ásgeir, Inga, Þórdís og Þorsteinn Pétursbörn. Þórarinn Vilbergsson Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) Það styttist í að sextíu ár séu liðin frá að hópur ungmenna víðs vegar af landinu heilsaðist í fyrsta sinn í héraðsskólanum í Reykholti í Borgarfirði. Þó að fáeinir hafi þekkst áður voru flestir að hittast í fyrsta sinn. Fram undan var eins til þriggja ára samvera í heima- vistarskóla. Fjórir til sex deildu Guðmundur Helgason ✝ GuðmundurHelgason fæddist 30. apríl 1943. Hann lést 5. júní 2017 Útför Guðmundar fór fram 22. júní 2017. saman herbergi í nokkrum aðskild- um vistarverum. Mest reyndi á að- lögunarhæfni þeirra sem deildu saman herbergi og vistum. Allt var þetta þó eitt stórt samfélag. Einn af þessum stóra hópi var Guðmundur Helgason, sem kvaddur er hér. Guðmundur var sterkur persónuleiki og setti mik- inn svip á samfélagið sem þarna var á þessum tíma. Hann var glað- lyndur og spaugsamur en gat ver- ið svolítið stríðinn. Allt var það samt á jákvæðum nótum. Því var það svo að öllum var hlýtt til hans og eignaðist hann vináttu margra sem haldist hefur allt til þessa. Nú heyra héraðsskólar með sínum heimavistum sögunni til en sterk vináttubönd frá þessum tíma halda enn í dag. Flest það fólk sem þarna var hefur lokið starfsævi sinni. Þess vegna gefst góður tími til að hittast og rækta vináttu og kynni frá þessum tíma. Tveir hóp- ar frá þessum árum hittast reglu- lega og njóta samvista og efla vin- áttu frá skólaárunum með gönguferðum, rútuferðum og öðr- um samkomum. Guðmundur mætti þegar hann gat. Seinast kom hann til fundar við okkur í Breiðfirðingabúð haustið 2015. Við það tækifæri rifjaði hann upp skemmtilegar sögur frá Reykholtstímanum eins og honum var lagið. Lífssaga hans er liðin og eilífðin tekin við. Um leið og við kveðjum hann í síðasta sinn þökk- um við honum samfylgdina og brosin sem hann vakti hjá okkur fyrr og síðar. Svona minningar eru fjársjóður. Við félagar hans frá þessum árum vottum aðstand- endum hans okkar dýpstu samúð og biðjum honum blessunar. Snorri Bjarnason. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SR. GÍSLI H. KOLBEINS, Strikinu 10, Garðabæ, sem andaðist á Vífilsstöðum laugardaginn 10. júní, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 26. júní klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Sigríður B. Kolbeins Bjarnþór G. Kolbeins Anna Lára Kolbeins Halldór Bergmann Ragnheiður G. Kolbeins Haraldur Stefánsson Halldór Kolbeins Eyþór Ingi G. Kolbeins Dagný Marinósdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ELÍNBORG SALÓME JÓNSDÓTTIR húsgagnabólstrari, lést á heimili sínu aðfaranótt 20. júní. Jarðarför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. júní klukkan 13. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið og Ljósið. Hilmar B. Þórarinsson Harpa Björk Hilmarsdóttir Ingólfur Steinar Pálsson Birkir Freyr Hilmarsson Árný Guðjónsdóttir Hlynur Snær Hilmarsson Birta Marín Ingólfsdóttir Aníta Sól Ingólfsdóttir Sölvi Hrafn Fannarsson Minn elskulegi eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR EINARSSON prentari, Rjúpnasölum 10, Kópavogi, sem andaðist laugardaginn 17. júní á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 29. júní klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á MS-félag Íslands. Elínborg Steinunn Pálsdóttir K. Fjóla Guðmundsdóttir Sævar Jóhann Sigursteinsson Þorsteinn S. Guðmundsson Þórunn H. Gylfadóttir Ólafur Þór Guðmundsson Lilja Margrét Bergmann Páll Þórir Rúnarsson Mekkín Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT J. HELGADÓTTIR Norðurvangi 8, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 18. júní á kvennadeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn 3. júlí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið og Líf styrktar- félag kvennadeildar Landspítalans. Hjörtur Á. Ingólfsson Jóhanna Inga Hjartardóttir Halldór Jörgen Gunnarsson Jónas Friðrik Hjartarson Ólöf Björk Halldórsson Hjördís Ósk Hjartardóttir Baldur Páll Guðmundsson ömmubörn og langömmubörn Elsku maðurinn minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL ÓSKAR ALFREÐSSON bakarameistari, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í faðmi fjölskyldunnar föstudaginn 16. júní. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 28. júní klukkan 13. Halldóra Þórisdóttir Arndís Hlín Karlsdóttir Alfreð Freyr Karlsson Valdís Kvaran Rebekka Helen Karlsdóttir Samúel Jón Gunnarsson Maren Rut Karlsdóttir Garðar Haukur Guðmundsson Axel Már Karlsson Sólrún Friðlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.