Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 41
Lilja starfaði hjá Íslenskri miðlun
við tölvuskráningu og símasölu og
hefur auk þess starfað við verslun og
fiskvinnslu. Lilja var oddviti Suður-
eyrarhrepps 1990-94, starfsmaður
sundlaugar og íþróttahúss Suður-
eyrar. Hún var formaður Verkalýðs-
og sjómannafélagsins Súganda 1988-
2004, var varaforseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða 1990-92 og frá
1998, sat í orkuráði 1995-99, í stjórn
Byggðastofnunar 1999-2003, í stjórn
Íslandspósts hf. 2000-2013 og var
varaformaður í stjórn 2009-2013,
hefur setið í fulltrúaráði Fræðslu-
miðstöðvar Vestfjarða frá 2000, í
stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga
2004-2013, í hafnarstjórn Ísafjarðar-
bæjar 2006-2009, í samráðsnefnd um
veiðigjöld frá 2014.
Lilja var varaþingmaður fyrir Al-
þýðubandalagið í Norðvestur-
kjördæmi 1993-98 og fyrir Vinstri-
hreyfinguna – grænt framboð 2007,
hefur verið alþingismaður Norð-
vesturkjördæmis fyrir Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð frá 2009.
Lilja sat í félags- og trygginga-
málanefnd Alþingis 2009-2010 og
2010-2011, sat í heilbrigðisnefnd
2009-2010, iðnaðarnefnd 2009-2011,
samgöngunefnd 2009-2011, þing-
mannanefnd til að fjalla um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis 2009-
2010, efnahags- og skattanefnd 2010-
2011, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
nefnd 2011 og var formaður hennar,
sat í menntamálanefnd 2011, at-
vinnuveganefnd 2011-2013, 2013-
2016 og frá 2017, í efnahags- og
viðskiptanefnd 2011-2013, velferðar-
nefnd 2013-2014, í kjörbréfanefnd
2016-2017, Íslandsdeild Vestnor-
ræna ráðsins 2009-2013, 2014-2016
og frá 2017.
Lilja hefur ekki verið upptekin af
hefðbundnu tómstundastarfi í gegn-
um tíðina og á ekki von á að það
breytist í bráð: „Ég er nú bara svona
hefðbundin baráttukona, alin upp í
íslensku fiskiþorpi og við almenn
sveitastörf og er að reyna að láta
gott af mér leiða, án þess að fjarlægj-
ast þær aðstæður sem ég ólst upp við
og eru mér kærar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Lilju er Hilmar Odd-
ur Gunnarsson, f. 20.4. 1954, atvinnu-
bílstjóri og sjómaður. Foreldrar
Hilmars Odds eru Gunnar Helgi
Benónýsson sjómaður og Bergljót
Björg Óskarsdóttir verkakona.
Börn Lilju og Hilmars Odds eru 1)
Jófríður Ósk Hilmarsdóttir, f. 20.4.
1978, viðskiptafræðingur í Kópavogi,
en börn hennar eru Hilmar Daði
Magnússon, f. 2008, og Auður Lilja
Magnúsdóttir, f. 2011; 2) Gunnar
Freyr Hilmarsson, f. 22.7. 1980, vél-
virki í Kópavogi; 3) Einar Kári
Hilmarsson, f. 26.2. 1982, vélstjóri í
Hafnarfirði, og 4 ) Harpa Rún
Hilmarsdóttir, f. 6.1. 1992, nemi í
Reykjavík, en maður hennar er
Ágúst Hrafn Ágústsson flugvirki og
er dóttir þeirra Sóldís Líf, f. 2016.
Systkini Lilju, sammæðra, eru
Jóna Margrét Valgeirsdóttir, f. 16.1.
1964, leikskólakennari á Suðureyri;
Fríður Bára Valgeirsdóttir, f. 8.2.
1965, leikskólakennari í Reykjavík;
Valur Sæþór Valgeirsson, f. 12.6.
1969, rafvirki á Suðureyri; Svava
Rán Valgeirsdóttir, f. 27.2. 1971,
leikskólastjóri á Suðureyri; Björn
Ægir Valgeirsson, f. 15.11. 1973,
bókbindari í Reykjavík; Helgi Unnar
Valgeirsson, f. 3.3. 1976, bygg-
ingaverkfræðingur í Winnipeg í
Kanada, og Kristjana Dröfn
Valgeirsdóttir, f. 9.9. 1983, leikskóla-
kennari á Ísafirði.
Systkini Lilju, samfeðra: Sigur-
björn Sævar Magnússon, f. 26.6.
1960, sjómaður í Ólafsvík; Guðni Þór
Magnússon, f. 25.6. 1962, búsettur í
Danmörku; Sína Sigríður Magnús-
dóttir, f. 23.8. 1962, húsfreyja í Sand-
gerði, og Bjarki Magnússon, f. 28.3.
1971, múrari í Reykjavík.
Foreldrar: Magnús Einars
Ingimarsson, f. 26.12. 1938, d. 9.7.
1997, sjómaður, og Þóra Þórðar-
dóttir, f. 6.7. 1939, kennari. Fóstur-
faðir Lilju er Guðmundur Valgeir
Hallbjörnsson, f. 24.6. 1942, sjó-
maður.
Úr frændgarði Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Magnús Einarsson
sjómaður á Suðureyri
Guðrún Ólöf Sturludóttir
verkakona á Suðureyri
Sturla Ingimar Magnússon
sjómaður og verkam. á Suðureyri
Markúsína S Jónsdóttir
húsfr. og verkakona á Suðureyri
Magnús Einars Ingimarsson
sjómaður á Suðureyri
Jón Hálfdán Guðmundsson
b.áGelti í Súgandafirði og sjómaður áSuðureyri
Arnfríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Gelti og verkakona á Suðureyri
Ólafur Þ. Þórðar-
son alþingismaður
Kjartan
Ólafsson fv.
ritstjóri og al-
þingismaður
Ragna Sólberg
verkstjóri, sund-
laugarvörður og
talsímavörður á
Ísafirði
Rafn Jóns-
son tónlist-
armaður og
trommuleik-
ari í Grafík
Ólafur Þórarinn Jónsson
sjóm. og bóndi á Suðureyri
Jóna Margrét Guðnadóttir
verkak. á Suðureyri, bróðurdóttir Jóhönnu,
langömmu Sólveigar, móður Arnórs Hannibalsson-
ar heimspekings, og bróðurdóttir Sveinbjörns, afa
Hjalta, langafa Alfreðs Jolson biskups
Þórður H. Ágúst Ólafsson
bóndi á Stað
Jófríður Pétursdóttir
bóndi og húsfreyja á Stað í Súgandafirði
Þóra Þórðardóttir
kennari á Suðureyri
Pétur Sveinbjörnsson
bóndi á Laugum
Kristjana Friðbertsdóttir
bóndi og húsfreyja Laugum í Súgandafirði
Ólafur Jón Ólafs-
son kennari
Sigríður Pétursdóttir
húsfr. á Suðureyri
ÍSLENDINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
Hallgrímur Jónsson fæddist áÓspakseyri í Bitru 24.6.1875, sonur Jóns Jónssonar,
bónda á Krossárbakka, og Þóreyjar
Jónsdóttur.
Eiginkona Hallgríms var Vigdís
Erlendsdóttir en börn þeirra sem
komust til fullorðinsára voru María
læknir, Meyvant Óskar prentari, og
Anna kennari. Dóttir Hallgríms og
Guðrúnar Ögmundsdóttur var Hall-
fríður kennari.
Hallgrímur stundaði nám í Flens-
borg 1898-1900 og lauk prófi úr kenn-
aradeild skólans 1901, hlýddi á fyrir-
lestra í Kennaraháskólanum í
Kaupmannahöfn og sótti námskeið í
íslensku í Reykjavík hjá m.a. Birni
frá Viðfirði og Birni M. Olsen.
Hallgrímur var kennari að Bjarna-
stöðum á Álftanesi 1901-1002, var
forstöðumaður unglingaskóla í Búð-
ardal 1903-1904, stundakennari við
Barnaskóla Reykjavíkur (Miðbæjar-
skólann) 1904-14, fastur kennari þar
frá 1914, yfirkennari þar 1933, og
skólastjóri Miðbæjarskólans 1936-41
er hann hætti fyrir aldurs sakir.
Hallgrímur stofnaði Kennarafélag
Barnaskóla Reykjavíkur og var for-
maður þess lengst af, vann að stofn-
un Sambands íslenskra barnakenn-
ara, var varaformaður barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur fyrstu árin og
átti sæti í skólanefnd. Hallgrímur var
fræðslustjóri Stórstúku Íslands, var
áhugasamur um stjórnmál og kom
þar víða við, var fyrst í gamla
Sjálfstæðisflokknum, þá í Íhalds-
flokknum en síðan í Alþýðuflokknum
frá 1921. Hann taldi um skeið að
hann ætti samleið með kommún-
istum, sótti um inngöngu í flokkinn
en var hafnað af Brynjólfi Bjarna-
syni.
Hallgrímur var áhugasamur um
sálarrannsóknir og guðspeki, var í
Sálarrannsóknarfélagi Íslands og í
Guðspekifélaginu og flutti mörg er-
indi um svo kölluð andans mál. Hann
orti mikið, sendi frá sér sögur, eink-
um fyrir börn, og var ritstjóri Unga
Íslands um skeið.
Hallgrímur lést 7.12. 1961.
Merkir Íslendingar
Hallgrímur
Jónsson
Laugardagur
101 ára
Geir Reynir Tómasson
95 ára
Margrét Sveinsdóttir
90 ára
Anna Kristín Linnet
Jóhanna Óla Jónsdóttir
85 ára
Arnþrúður Arnórsdóttir
Hulda G. Pétursdóttir
Jósep Magnússon
Júlíana Aradóttir
80 ára
Finnbogi Pálsson
Gunnþórunn
Hallgrímsdóttir
Heiðar Guðmundsson
Ingibjörg Þorkelsdóttir
Ólöf Gestsdóttir
Ragnar G. Bernburg
75 ára
Auðunn Víðir Pétursson
Ása Guðrún Ottósdóttir
Guðmundur Grettisson
Guðmundur Hallbjörnsson
Ingibjörg Sigfúsdóttir
Kristrún Guðnadóttir
70 ára
Baldvin S. Baldvinsson
Elvar Jón Friðbertsson
Halldóra Sigurðardóttir
Jósep Örn Blöndal
Margrét Strupler
Rúnar Sædal Þorvaldsson
Sigrún Sigurðardóttir
Sveinn Valgeirsson
60 ára
Dagmar G. Gunnarsdóttir
Einar Helgi Aðalbjörnsson
Hákon Jóhannesson
Sigurður Reynir Bjarnason
Viðar Guðmundsson
Þorgeir Þorgeirsson
Örn Jóhannsson
50 ára
Guðrún Jónína Karlsdóttir
Hróbjartur Guðmundsson
Jóhanna H. Halldórsdóttir
Marta Einarsdóttir
Soffía Svala Runólfsdóttir
Stefán Páll Óskarsson
Þórarinn Jóhannsson
40 ára
Aileen Soffía Svensdóttir
Cristina Isabelle Cotofana
Elínborg Óskarsdóttir
Elísa Davíðsdóttir
Guðbjörg S. Kristjánsdóttir
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Krystyna Sylwia Ilasz
Margrét Rún Karlsdóttir
Michael Juhl
Sóley Hauksdóttir
Þórhildur Þorsteinsdóttir
Örvar Smárason
30 ára
Berglind Einarsdóttir
Guðmundur Steinþórsson
Helga Björg Helgadóttir
Lára Jherry Mei Rosento
Lena Mist S. Eydal
Magnús Orri Sveinsson
Marcelina Danuta Ptaszek
Mateusz Pawel Baran
Sara Isabella Hilmarsdóttir
Sæþór Tryggvason
Sunnudagur
90 ára
Guðjóna Guðjónsdóttir
85 ára
Bryndís Guðmundsdóttir
Ragnheiður Jónasdóttir
Þórir Kristjónsson
80 ára
Aðalsteinn Sigfússon
Atli Benediktsson
Enrique Llorens Izaguirre
Júlía Jónsdóttir
Kristinn B. Þorsteinsson
Óttar Sævar Magnússon
Sigfús Thorarensen
Sigríður Sæland Jónsdóttir
75 ára
Arnar Halldórsson
Birgir Þorvaldsson
Gunnar Fannberg Jónasson
Ingvi Jón Einarsson
Pálína I. Jónmundsdóttir
Sigþór Ármann Ingólfsson
Þórarinn Sigurðsson
70 ára
Guðný Kristmundsdóttir
Guðrún Egilsdóttir
Hjalti Pálsson
Hrafnhildur Samúelsdóttir
Leifur A. Ísaksson
Lydia Angelica Helgadóttir
Ragnhildur Pétursdóttir
Roxanna Björg Morales
Rósa V. Guðmundsdóttir
Sigríður B. Rögnvaldsdóttir
Vignir Þorbjörnsson
60 ára
Ásta Sif Jóhannsdóttir
Bjarni Bjarnason
Eggert Rosener Nielson
Guðrún Aradóttir
Hafdís Guðný Jakobsdóttir
Halldóra K. Magnúsdóttir
Hrafnhildur
Sveinbjörnsdóttir
Kjartan Magnússon
Óttarr Magni Jóhannsson
Pavol Holbicka
Sigríður Böðvarsdóttir
Sigrún M. Sigurðardóttir
Valur Ingólfsson
50 ára
Adam Konkiel
Dorota Bakun
Edda A. Eggertsd. Waage
Halldóra A. Halldórsdóttir
Halldór Loftur Arnarson
Hrafnkell Guðnason
Jozsef Jozsa
Kristjana L. Jóhannsdóttir
Magnea L. Magnúsdóttir
Margrét Hildur Eiðsdóttir
Stefán Þór Stefánsson
Sylvía Sigurðardóttir
40 ára
Anna Kristín Rúriksdóttir
Ayodele A. Samuel Thomas
Ásgeir Helgi Jóhannsson
Hildur Sigurðardóttir
Ingibjörg Birta
Bjargardóttir
Jón Viðar Ágústsson
Júlíana Rut Jónsdóttir
Macson Radam Valeriano
Olufela Owolabi
Ólafur Atli Sindrason
Ólafur Loftsson
Sóley Sigmarsdóttir
Sverrir B. Sigursveinsson
Védís Helga Eiríksdóttir
30 ára
Agnes Björg Albertsdóttir
Aldona Anna Ignatowicz
Anna Karolina Kozlowska
Bjartmar Egill Harðarson
Evert Austmann Ellertsson
Fanný Guðbjartsdóttir
Jónas Már Einarsson
Lilja Rut G. Jóhannsdóttir
Sigfús Þór Sigurðsson
Sigrún Erna Kristinsdóttir
Sigurður Þór Ágústsson
Stefanía R. Ragnarsdóttir
Tara Sif Heimisdóttir
Til hamingju með daginn
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is