Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 43

Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í dag er dagurinn sem þú átt að gefa hjarta þitt allt í vináttu eða ástarsam- band. Kannski á viðkomandi það líka skilið. 20. apríl - 20. maí  Naut Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga góða vini svo leggðu þig fram um að halda þeim. Leggðu á ráðin um það hvernig þú getir bætt heimilisaðstæður þínar til lang- frama. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur ákveðnar skoðanir á hlutunum og gætir jafnvel lent í deilum á opinberum vettvangi. Líttu því á björtu hliðarnar og láttu allt annað sigla sinn sjó. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu ekki undir höfuð leggjast að ljúka skylduverkum þínum áður en þú lyftir þér upp. Vertu göfugur og næmur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þegar þú stendur frammi fyrir vali skaltu ekki velja það sem er auðveldast. Haltu ótrauður þínu striki og þá leysast þessi vandamál af sjálfu sér. Kannski hittir þú skrýtna manneskju. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ein frumleg hugmynd getur koll- varpað öllu, ekki síst peningamálunum. Vertu lítillátur, ljúfur og kátur. Fáir eru jafn leiðir og sá sem engu skilar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Pirrandi einstaklingar virðast alls stað- ar í kringum þig. Leitaðu aðstoðar ef eitt- hvað vefst fyrir þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sýndu varfærni á öllum svið- um ekki síst í peningamálunum því það tekur oft skamma stund að gera afdrifarík mistök á því sviði. Ef þú komst í gegnum síðasta ár þá kemst þú í gegnum allt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er dagurinn til þess að leyfa hæfileikunum að njóta sín óhindrað. Dag- urinn hentar einnig vel til viðskipta þar sem þú átt auðvelt með að telja aðra á þitt mál. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fólk treystir því að þú munir mæta, og þegar þú gerir það er augljóst að allir eru að horfa á þig. Stilltu þig um að halda þeirri athygli fyrir sjálfan þig of lengi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Umburðarlyndi er undirstaða sambands fólks í millum. Minnsta yfirsjón getur orðið þér dýrkeypt. Allt fer vel ef þú spilar bara af fingrum fram. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur óvenjumikla þörf fyrir að skipuleggja þig. Hvað sem þú gerir mun það verða til þess að þú vex í áliti hjá fé- lögum og vinum. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Illt er þá bagga að bera. Á baugalín heiti er. Blóðug mun viðureign vera. Valkyrja nafn þetta ber. Árni Blöndal svaraði strax á laugardaginn 17. júní: Gleðilega hátíð höldum hér á þessum fagra stað. Sólarglóð á sumarkvöldum sérðu nokkuð fegra en það? Og síðan kemur lausnin: Hildarbagga halir bera. Heiti kvenna margra er. Hildarleikur hér mun vera. Hildur gyðjunafnið ber. Helgi Seljan á þessa lausn: Með böggum hildar er bágt að vera. Bærilegt er það kvenmannsheiti. Vopnin í orustu víst mun bera valkyrjan trúi ég sér þar beiti. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Hrærð þá komst og hressust undan hildar böggum, hildin enda háð með löggum. Hildur Jóns fékk Hildar stoð og heill valkyrju. Borðar núna brauð og myrju. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Með böggum hildar er vont að vera. Vala nafnið Hildur ber. Vígmenn í hildi vopnin bera. Valkyrja svo Hildur er. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hryggur með böggum hildar er. Hildur nefnist sú kona. Orrusta merkir hildur hér. Hildur er nafn, sem valkyrja ber. Þá er limra: Valdi er vífinn og baldinn og verstu girndum er haldinn, hann barnaði Hildi húsfrú á Skildi, sem kvað vera kvenmaður aldinn. Og loks er ný gáta eftir Guðmund og verður svar að berast eigi síðar en á miðvikudagskvöld: Lóan syngur dirrin dí, draumaheimi frá ég sný, sólin skín um borg og bý, birtist hérna gáta ný: Um Himnaríki hugsa nú. Hauður þetta nefna má. Ríki það, sem ræður þú. Rís árbakki fljóti hjá. Þessar vísur kallast á við gamlan húsgang: Blessuð lóan syngur sætt og segir dýrðin. Það er hennar þakkargjörðin þegar hún kemur hér í fjörðinn. Stefán frá Hvítadal orti: Nú er hann genginn nótt á vald, nú er hann framar eigi. Allt hans líf var undanhald undan sól og degi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Marga hefur hildi háð Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „GETURÐU EKKI SVARAÐ DYRABJÖLLUNNI MEÐAN ÉG ER AÐ ELDA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... heimabaksturinn hennar mömmu. HEY! Ó, FYRIR- GEFÐU Í HVERT SINN SEM ÞÚ GENGUR HJÁ DETTA MYNDIRNAR AF VEGGNUM MÍNUM Ó MÁTTUGI ÞÓR… HVERS VEGNA ERTU KALLAÐUR ÞRUMUGUÐINN? EKKERT NEMA ÞAKKLÆTI VINSAMLEGA HJÁLPIÐ MÉR HMMM… ÉG ER EKKI VISS… Víkverji fór í Árbæjarbakarí einnmorgun í vikunni og furðaði sig á því að ekki væri snyrtilegra þarna fyrir utan. Þarna er sameiginlegt torg ef svo má kalla fyrir framan nokkrar búðir, þar á meðal bakaríið, Domino’s og sjoppu. Þetta er hellu- lagt svæði sem liggur vel við sólu og væri hægt að nýta svo miklu betur. Enginn virðist hugsa sérstaklega um þetta svæði. Á milli hellanna eru nokkur beð sem eru í órækt og í einu þeirra vex meðal annars njóli. Það er lítil prýði að honum og það væri gam- an að sjá litrík sumarblóm þarna. x x x Á torginu er gott skjól og því geturorðið nokkuð heitt þar þegar sól- in skín. Ætla mætti að það væri til- valið að stilla upp nokkrum borðum sem myndu gagnast pítsustaðnum, bakaríinu og sjoppunni. Það er algjör synd að það sé ekki betur hugsað um þetta svæði. Það ætti ekki að vera mikil vinna að sópa af og til, gróður- setja og vökva nokkur blóm. Það myndi jafnvel auka viðskiptin og fal- legt umhverfi kallar líka á betri um- gengni. x x x Víkverji gladdist hins vegar yfirþví að búið er að setja falleg blóm nálægt heimili hans. Þau eru í nokkrum stórum kerjum við aðal- götu í gegnum hverfið og er mikil prýði að þeim. Víða er búið að slá umferðareyjur og græn svæði, sem er gott. x x x Í nýlegri ferð til London varskemmtilegt að sjá umhverfið við nýja Ólympíuleikvanginn. Þar eru síki með grænum svæðum í kring en það merkilega var að á stóru svæði var grasið látið vera náttúrulegt og voru blómin meira áberandi en grasið. Blómin voru litskrúðug og falleg en aldrei er að vita hvort inn- fæddum hafi þótt þetta meira illgresi en Íslendingnum. Það eru blessuð blómin sem Víkverji hefur mest gaman af. Í þessari Lundúnaferð sá Víkverji að barir og veitingastaðir lögðu margir mikið upp úr því að hafa falleg sumarblóm og væri gam- an að sjá sama metnað hér heima. vikverji@mbl.is Víkverji Og ég segi yður: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, kný- ið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Lúk. 11:9) PI W A • SÍ A • 17 11 7 ÍSBLÓMMEÐMANGÓ Blómleg nýjung

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.