Morgunblaðið - 24.06.2017, Page 47

Morgunblaðið - 24.06.2017, Page 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Listasumar á Akureyri verður sett í dag kl. 14 í Listagilinu og lýkur 26. ágúst þegar Akureyr- arvaka tekur við. Að vanda verður dagskráin fjöl- breytt á Listasumri og má þar nefna að á þriðjudög- um verða viðburðir í Deigl- unni, á fimmtudögum í menningarhúsinu Hofi og á föstudögum verður boðið upp á kvikmyndasýn- ingar á vegum Kvik- Yndis, félags áhugafólks um kvikmyndir, á óhefðbundnum sýningarstöðum. Sundlaug Ak- ureyrar verður einnig með uppá- komur á föstudögum, Sum- artónleikar í Akureyrarkirkju verða á sunnudögum í júlí, sýningar í ART AK Amaro Galleríi og alla þriðjudaga verður boðið upp á frið- ar- og kærleikshugleiðslu í Ket- ilhúsinu. Þá verða fjölbreyttar sýn- ingar og námskeið á virkum dögum og um helgar, bæði í Deiglunni og í Rósenborg möguleikamiðstöð. Einnig verða ýmsar smiðjur og námskeið í boði fyrir börn, m.a. rit- listarsmiðjur, hjólabrettanámskeið, sirkussmiðja og listasmiðjur þar sem unnið er með plast og pappa- massa og dansnámskeið. Nánari upplýsingar um Lista- sumar á Akureyri má finna á vef- síðunni listasumar.is. Listasumar hefst á Akureyri í dag Pönk Pönkhljómsveitin Úlfar heldur tónleika í Hofi 13. júlí og eru þeir á dagskrá Listasumars á Akureyri. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Vinur minn kær í tæplega fjörutíu ár stakk upp á því við mig að við færum saman til Kanada á Tool-tónleika fyr- ir stuttu. Þrátt fyrir að vera störfum hlaðinn (ég veit, ég er líklega sá eini) skeytti ég í engu um slíkt og stökk á þetta tækifæri. Í undirmeðvitundinni var ég eiginlega á því að ég þyrfti líka að brjóta upp dagskrána og hvað er betur til þess fallið en hressandi þotu- þreyta, dúndrandi rokk og gæða- stund með góðum vini? Nema hvað, Tool er orðin fræg að endemum fyrir það að gera ekki það sem ætlast er til af henni, það er að búa til tónlist. Síðasta plata, 10.000 Days, kom út fyrir ellefu árum og ekki nema von að fólk sé orðið óþreyjufullt. Það sem gerir þetta þá enn erfiðara er að tónlist Tool er full- komlega mögnuð, einstök vil ég segja, og minnstu grunsemdir um að Tool- liðar séu komnir inn í hljóðver setja stóran aðdáendahópinn á hliðina. Hluti af honum var samankominn í glæstri tónleikahöllinni í Edmonton sem ber hið skondna nafn Roger‘s Place. Skringilegt nafn yfir þetta 30.000 manna íburðarmikla mann- virki. Samsetningin á áhorfendum var athyglisverð, þrátt fyrir að ein milljón manns búi í Edmonton og ná- grenni er borgin hálfgerður sveita- staður og stemningin var líkt og þeg- ar frægar sveitir renna í gegnum lítil kauptún, heimsóknin er fréttnæm og allur staðurinn mættur; þú, frændi þinn og amma þín líka. Það var inni- leg rólyndis-stemning yfir sem hefur eitthvað að gera með það að aðdá- endur eru að eldast með sveitinni, flestir um og yfir fertugt og brjálæði unglingsára komið í baksýnisspeg- ilinn. Þessi ættarmótsbragur hjálpaði til við upplifunina. Og þar stóð Tool sína plikt með glans. Tónleikarnir mikið sjónarspil; leysigeislar, myndbönd, reykur og sprengingar. Leikar hóf- ust á ógurlegu upphafslagi Lateralus, „The Grudge“ og enduðu á „Stinkfist“ af Ænima. Þar á milli var rúllað í gegnum helstu „smellina“ sem prýða þrjár hljóðversplötur Tool til þessa. Þessi merka sveit gerir rækilega út á dulúð og leyndardóma, textar og umslagshannanir lyklaðar í sálfræðikenningar og indjánaspeki og gotneski blærinn yfir þessu öllu saman er þungur og knýjandi. Eng- inn meðlima stendur jafn kirfilega að þessu og forsöngvarinn, Maynard James Keenan, sem er ugluspegill mikill, háll sem áll og erfitt að lesa í hann. Eina stundina er hann graf- alvarleg vampíra sem lætur Peter Murphy úr Bauhaus líta út eins og Pee-Wee Herman en aðra er hann kominn í grallaragrínið með hliðar- verkefni sínu Puscifer. Þá er hann vínframleiðandi í ofanálag og þá breytir hann algerlega um gír og ég hvet forvitna til að fletta upp „Mayn- ard James Keenan Red Wine“ á You- Tube. Keenan stóð til hliðar við trommu- settið og söng, gagngert til að storka hugmyndum okkar um aðalsöngv- arann sem lætur dýrka sig á miðju sviði. Maður bölvar honum í hálfum hljóðum fyrir þetta athæfi, sem snertir vel á tilgerðinni á köflum. Ótrúlegt var að fylgjast með trymbl- inum, Danny Carey, sem verður að teljast einn rosalegasti rokktrommu- leikari samtímans og maður hugsar um menn eins og Neil Peart (Rush) og Tomas Haake (Meshuggah) þegar maður ber ósköpin augum. Adam Jones gítarleikari og Justin Chancellor bassaleikari eru á svip- uðum slóðum með sín hljóðfæri og Tool rúllaði áfram eins og skriðdreki í gegnum öruggt sett. Ég gekk sæll og kátur út í Edmonton-nóttina með vini mínum kærum, frænda, ömmu og öllum hinum. Stuð? Þessi kynningarmynd af Tool gengur skarplega í berhögg við þá ímynd sem fólk hefur alla jafna af henni. Ólíkindatól í Kanada Bandaríska rokksveitin Tool hélt tónleika í Edmonton, Kanada, frammi fyrir 20.000 manns. Pistilritari var á staðnum og lapti upp snilldina. » Þessi merka sveitgerir rækilega út á dulúð og leyndardóma, textar og umslagshann- anir lyklaðar í sál- fræðikenningar og ind- jánaspeki og gotneski blærinn yfir þessu öllu saman er þungur og knýjandi. Pólski ljósmyndarinn Wiktoria Wojciechowska opnar í dag sýn- inguna Sparks í galleríinu RAM- skram, Njálsgötu 49. Wojciechowska hlaut hin virtu Leica-ljósmyndaverðlaun árið 2015 og á sýningunni má sjá marghliða portrett af stríðsátökum í Úkraínu, milli Úkraínuhers og aðskilnaðar- sinna. Verk Wojciechowska sýna fórnarlömb þessara átaka og áhrif- in sem stríðið hefur haft á umhverf- ið og líf Úkraínumanna. Á sýning- unni má m.a. sjá ljósmyndir sem Wojciechowska tók af uppreisnar- mönnum í Úkraínu árið 2015. Leica-verðlauna- hafi í RAMskram Ljósmynd/Wiktoria Wojciechowska Stríð Andriy nefnist þessi ungi maður sem Wojciechowska myndaði 2015. SÝND KL. 10.20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 5.30 ÍSL. TAL SÝND KL. 6, 9 SÝND KL. 5.30 FORSÝNING KL. 8 SÝND KL. 8, 10.25 FORSÝND Í DAG 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.