Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
Listasumar á Akureyri
verður sett í dag kl. 14 í
Listagilinu og lýkur 26.
ágúst þegar Akureyr-
arvaka tekur við. Að vanda
verður dagskráin fjöl-
breytt á Listasumri og má
þar nefna að á þriðjudög-
um verða viðburðir í Deigl-
unni, á fimmtudögum í
menningarhúsinu Hofi og á
föstudögum verður boðið
upp á kvikmyndasýn-
ingar á vegum Kvik-
Yndis, félags áhugafólks
um kvikmyndir, á óhefðbundnum
sýningarstöðum. Sundlaug Ak-
ureyrar verður einnig með uppá-
komur á föstudögum, Sum-
artónleikar í Akureyrarkirkju
verða á sunnudögum í júlí, sýningar
í ART AK Amaro Galleríi og alla
þriðjudaga verður boðið upp á frið-
ar- og kærleikshugleiðslu í Ket-
ilhúsinu. Þá verða fjölbreyttar sýn-
ingar og námskeið á virkum dögum
og um helgar, bæði í Deiglunni og í
Rósenborg möguleikamiðstöð.
Einnig verða ýmsar smiðjur og
námskeið í boði fyrir börn, m.a. rit-
listarsmiðjur, hjólabrettanámskeið,
sirkussmiðja og listasmiðjur þar
sem unnið er með plast og pappa-
massa og dansnámskeið.
Nánari upplýsingar um Lista-
sumar á Akureyri má finna á vef-
síðunni listasumar.is.
Listasumar hefst á Akureyri í dag
Pönk Pönkhljómsveitin Úlfar heldur tónleika í Hofi 13.
júlí og eru þeir á dagskrá Listasumars á Akureyri.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Vinur minn kær í tæplega fjörutíu ár
stakk upp á því við mig að við færum
saman til Kanada á Tool-tónleika fyr-
ir stuttu. Þrátt fyrir að vera störfum
hlaðinn (ég veit, ég er líklega sá eini)
skeytti ég í engu um slíkt og stökk á
þetta tækifæri. Í undirmeðvitundinni
var ég eiginlega á því að ég þyrfti líka
að brjóta upp dagskrána og hvað er
betur til þess fallið en hressandi þotu-
þreyta, dúndrandi rokk og gæða-
stund með góðum vini?
Nema hvað, Tool er orðin fræg að
endemum fyrir það að gera ekki það
sem ætlast er til af henni, það er að
búa til tónlist. Síðasta plata, 10.000
Days, kom út fyrir ellefu árum og
ekki nema von að fólk sé orðið
óþreyjufullt. Það sem gerir þetta þá
enn erfiðara er að tónlist Tool er full-
komlega mögnuð, einstök vil ég segja,
og minnstu grunsemdir um að Tool-
liðar séu komnir inn í hljóðver setja
stóran aðdáendahópinn á hliðina.
Hluti af honum var samankominn í
glæstri tónleikahöllinni í Edmonton
sem ber hið skondna nafn Roger‘s
Place. Skringilegt nafn yfir þetta
30.000 manna íburðarmikla mann-
virki. Samsetningin á áhorfendum
var athyglisverð, þrátt fyrir að ein
milljón manns búi í Edmonton og ná-
grenni er borgin hálfgerður sveita-
staður og stemningin var líkt og þeg-
ar frægar sveitir renna í gegnum lítil
kauptún, heimsóknin er fréttnæm og
allur staðurinn mættur; þú, frændi
þinn og amma þín líka. Það var inni-
leg rólyndis-stemning yfir sem hefur
eitthvað að gera með það að aðdá-
endur eru að eldast með sveitinni,
flestir um og yfir fertugt og brjálæði
unglingsára komið í baksýnisspeg-
ilinn.
Þessi ættarmótsbragur hjálpaði til
við upplifunina. Og þar stóð Tool sína
plikt með glans. Tónleikarnir mikið
sjónarspil; leysigeislar, myndbönd,
reykur og sprengingar. Leikar hóf-
ust á ógurlegu upphafslagi
Lateralus, „The Grudge“ og enduðu
á „Stinkfist“ af Ænima. Þar á milli
var rúllað í gegnum helstu „smellina“
sem prýða þrjár hljóðversplötur Tool
til þessa. Þessi merka sveit gerir
rækilega út á dulúð og leyndardóma,
textar og umslagshannanir lyklaðar í
sálfræðikenningar og indjánaspeki
og gotneski blærinn yfir þessu öllu
saman er þungur og knýjandi. Eng-
inn meðlima stendur jafn kirfilega að
þessu og forsöngvarinn, Maynard
James Keenan, sem er ugluspegill
mikill, háll sem áll og erfitt að lesa í
hann. Eina stundina er hann graf-
alvarleg vampíra sem lætur Peter
Murphy úr Bauhaus líta út eins og
Pee-Wee Herman en aðra er hann
kominn í grallaragrínið með hliðar-
verkefni sínu Puscifer. Þá er hann
vínframleiðandi í ofanálag og þá
breytir hann algerlega um gír og ég
hvet forvitna til að fletta upp „Mayn-
ard James Keenan Red Wine“ á You-
Tube.
Keenan stóð til hliðar við trommu-
settið og söng, gagngert til að storka
hugmyndum okkar um aðalsöngv-
arann sem lætur dýrka sig á miðju
sviði. Maður bölvar honum í hálfum
hljóðum fyrir þetta athæfi, sem
snertir vel á tilgerðinni á köflum.
Ótrúlegt var að fylgjast með trymbl-
inum, Danny Carey, sem verður að
teljast einn rosalegasti rokktrommu-
leikari samtímans og maður hugsar
um menn eins og Neil Peart (Rush)
og Tomas Haake (Meshuggah) þegar
maður ber ósköpin augum.
Adam Jones gítarleikari og Justin
Chancellor bassaleikari eru á svip-
uðum slóðum með sín hljóðfæri og
Tool rúllaði áfram eins og skriðdreki
í gegnum öruggt sett. Ég gekk sæll
og kátur út í Edmonton-nóttina með
vini mínum kærum, frænda, ömmu
og öllum hinum.
Stuð? Þessi kynningarmynd af Tool gengur skarplega í berhögg við þá ímynd sem fólk hefur alla jafna af henni.
Ólíkindatól í Kanada
Bandaríska rokksveitin Tool hélt tónleika í Edmonton, Kanada, frammi
fyrir 20.000 manns. Pistilritari var á staðnum og lapti upp snilldina.
» Þessi merka sveitgerir rækilega út á
dulúð og leyndardóma,
textar og umslagshann-
anir lyklaðar í sál-
fræðikenningar og ind-
jánaspeki og gotneski
blærinn yfir þessu öllu
saman er þungur og
knýjandi.
Pólski ljósmyndarinn Wiktoria
Wojciechowska opnar í dag sýn-
inguna Sparks í galleríinu RAM-
skram, Njálsgötu 49.
Wojciechowska hlaut hin virtu
Leica-ljósmyndaverðlaun árið 2015
og á sýningunni má sjá marghliða
portrett af stríðsátökum í Úkraínu,
milli Úkraínuhers og aðskilnaðar-
sinna. Verk Wojciechowska sýna
fórnarlömb þessara átaka og áhrif-
in sem stríðið hefur haft á umhverf-
ið og líf Úkraínumanna. Á sýning-
unni má m.a. sjá ljósmyndir sem
Wojciechowska tók af uppreisnar-
mönnum í Úkraínu árið 2015.
Leica-verðlauna-
hafi í RAMskram
Ljósmynd/Wiktoria Wojciechowska
Stríð Andriy nefnist þessi ungi maður
sem Wojciechowska myndaði 2015.
SÝND KL. 10.20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 5.30
ÍSL. TAL
SÝND KL. 6, 9
SÝND KL. 5.30
FORSÝNING KL. 8
SÝND KL. 8, 10.25
FORSÝND
Í DAG
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri