Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Page 17
Ættleiðing er afdrifarík ákvörðun því sásem er ættleiddur glatar tengslumvið uppruna sinn að mestu leyti. Löggjöf hér á landi er töluvert ábótavant hvað varðar stöðu barna sem misst hafa foreldri sitt og virðist vera að löggjafinn hafi ekki leitt hug- ann mikið að réttarstöðu barna sem lenda í þessum kringumstæðum,“ segir Helgi Bjartur Þorvarðarson lögfræðingur sem í meistara- prófsritgerð sinni frá Háskólanum í Reykjavík skoðaði lagalega stöðu barna sem misst hafa foreldri sitt. Ritgerðin ber yfirskriftina Hver á að gæta mín? Lagaleg staða barna sem misst hafa for- eldri sitt. Meðal þess sem Helgi skoðaði var réttur fjöl- skyldu hins látna foreldris til umgengni við barnið og réttur fjölskyldu hins látna ef sótt er um ættleiðingu barnsins. Helgi ræddi bæði við fagaðila, eftirlifandi foreldri og aðstandendur látinna foreldra. „Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna á barn rétt á, eins og hægt er, að þekkja uppruna sinn og þar er kveðið á um að virða skuli rétt barns til að viðhalda fjölskyldu- tengslum eins og viðurkennt er með lögum. Þótt samskipti eftirlifandi foreldris við fjölskyldu lát- ins foreldris séu góð getur slíkt breyst og sér- staklega þegar nýr maki kemur inn í spilið. Barnið getur liðið fyrir slíkt þar sem samskipti slitna og það hefur ekki aðgang að ömmum og öfum sem það hefur kannski alla tíð þekkt og haft,“ segir Helgi. „Það er afar auðvelt að láta nýjan maka ætt- leiða barn sem þú átt með manni eða konu sem eru fallin frá. Það er að mörgu leyti furðulegt því það er ekki aðeins verið að ættleiða barnið frá látnu foreldri heldur annarri fjölskyldu og erfðarétti þeim megin.“ Fyrir lokaverkefni sitt spjallaði Helgi meðal annars við afa og ömmu sem misst höfðu son sinn en í gegnum hann áttu þau barnabarn sem hafði allt- af verið í umgengni við föður sinn og mikið inni á þeirra heimili. Við lát hans komast þau að samkomulagi við barnsmóðurina að fá að halda þessum tengslum við barnið. „Í fyrstu virðist allt í lagi. Svo kynnist móðirin öðrum manni og afinn og amman voru ánægð að hún héldi áfram með líf sitt. Smám saman fer þessi reglulega umgengni að breytast, móðirin vill bara stuttar heimsóknir og um tíma fá þau ekki að hitta barnabarnið. Þau sóttu rétt sinn til um- gengni og úrskurðar sýslumaður og ráðuneytið að þau eigi rétt á umgengi við barnabarnið. Önnur staða er hins vegar komin upp núna þar sem nýi makinn er búinn að sækja um að fá að ættleiða barnið. Afi og amma geta sótt rétt til umgengni við barnabarn svo lengi sem barna- barnið tilheyrir þeim en með ættleiðingu eru þau ekki afa og amma barnsins lengur og hafa því ekki né geta sótt slíkan rétt.“ Helgi Bjartur segir að þótt mál sem þróist á þennan hátt séu fá séu þau mjög alvarleg og fólk sem lendi í þessari stöðu sé algjörlega óvarið gagnvart lögum. Annar ventill sem á að vera á ættleiðingu er að gera þarf barni grein fyrir réttaráhrifum ættleiðingar. Helgi segir að það geti verið mjög erfitt þar sem barnið setur oft ekki í samhengi að tengsl við stórfjölskylduna munu um leið breytast samkvæmt lögum og erfðaréttur þess. Aðspurður um að breyta ættleiðingarlögum þar sem nánasta fjölskylda fái að koma með umsókn segir Helgi það sitt mat að það sé ein þarfasta breyting á sviði barnaréttar. Í ritgerð Helga segir félagsráðgjafi frá per- sónulegri og faglegri reynslu af stjúpættleið- ingu. Sjálfur átti félagsfræðingurinn börn sem misst höfðu móður sína og til tals koma að nú- verandi eiginkona hans ættleiddi börnin. „Hann sagði mér að það hefði verið slegið mjög fljótt út af borðinu þar sem hann vildi ekki gera fólki sem hafði reynst honum og barnabörnum sínum vel slíkt. Annað væri ef barnið vildi þetta sjálft 18 ára gamalt en þá gæti það gert það sjálft.“ Í framhaldinu á þessu og í tengslum við rann- sókn þína, þarf að gera skurk í fleiru er varðar börn sem missa foreldri sitt? „Manni er það algjörlega ljóst, af þeim við- tölum og rannsóknum sem ég lagðist í að það þarf. Það myndi til dæmis létta undir með öllum ef ljóst er að foreldri er að deyja að ákveðið verkferli færi gang þar sem samtalið um fram- tíð barnsins væri tekið. Það er erfitt samtal en ef það væri í lögum og skylda að taka það þá myndi það leysa margt. Eftirlifandi foreldri þarf oft sjálft að takast á við breytingar, fjár- hagsáhyggjur og á nóg með sína sorg. Í því samtali væri hægt að skoða hverjir gætu létt undir, hvort grundvöllur væri fyrir því að hjálp- ast að og passa að fjölskyldutengslin slitnuðu ekki. Sama ferli ætti líka að fara í gang ef for- eldri létist skyndilega. Félagsmálanefnd gæti til dæmis kallað aðstandendur barnsins á fund, samkomulag yrði gert til að tryggja uppruna- tengsl sem yrði staðfest af sýslumanni. Nær all- ir sem ég talaði við sögðu að svona verkferla vantaði. Það er líka annað að það er flókið að vera afi og amma á svona tímamótum. Þau vilja vera í samskiptum en vilja ekki stíga á tær og láta hitt foreldrið fá á tilfinninguna að þau séu að skipta sér um of af, vilja sýna tillitssemi. Foreldrið er skyndilega orðið eitt, veit ekki hvert það á að snúa sér og það eru allir tiplandi á tánum. Því væri heillavænlegast ef fagaðili gæti strax í byrjun tekið ábyrgðina á að samtal ætti sér stað milli þessara einstaklinga.“ Helgi segir að þótt afi og amma geti sótt rétt til umgengni sé slíkt líka mikið mál, taki tíma sem er oft án umgengni og ekki allra að standa í því. Með skýrara verklagi og lögum væri hægt að koma í veg fyrir mikinn sársauka. Helgi Bjartur Þorvarðarson Of auðvelt að hafa rétt barnsins að engu ’ Þótt samskipti eftirlifandiforeldris við fjölskyldu látinsforeldris séu góð getur slíktbreyst og sérstaklega þegar nýr maki kemur inn í spilið. Atriði sem Helgi Bjartur kom inn á í ritgerð sinni er skortur á leiðbein- ingum fyrir aðstandendur þeirra barna sem missa foreldri sitt. Börn eigi oft rétt á styrkjum og stuðningi sem þau viti ekki af nema aðstandendur beri sig sérstaklega eftir því að leita að því. „Ég myndi vilja að Barnavernd sæi um slík mál, kæmi inn á fyrsta degi með aðstoð og leiðbeiningar um hvert ætti að fara til að sækja styrk og út- skýra fyrir fólki hverju það ætti rétt á. Það kom í ljós hjá einum sem ég talaði við að hann hafði ekki hugmynd um að úr lífeyrissjóði eiginkonu hans áttu börn hans rétt á milljón króna styrk og komst að því fyrir tilviljun. Fólk hefur nóg með sína sorg og það er mikið að ætla að fara að hendast á milli allra stofnana landsins til að finna út hvaða rétt barnið á.“ Flókið að finna út rétt barnanna 2.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráð-gjafi Landspítalans, var á ráðstefnu íSvíþjóð þar sem 500 sérfræðingar frá 20 löndum fóru yfir aðstæður barna í hlutverki aðstandenda. Hún segir lög hinna Norður- landanna ættu að vera Íslendingum fyrirmynd. „Á ráðstefnunni voru kynntar rannsóknir um stöðu barna sem eru aðstandendur og hvaða áhrif það hefur á þroska þeirra og tilveru. Fjallað var m.a. um stöðu og líðan barna sem eiga foreldra með illkynja sjúkdóma og þá var áhersla lögð á rannsóknir um afdrif og stöðu barna sem misst höfðu foreldra.“ Árið 2009 settu Norðmenn skýr ákvæði í lög um hvernig heilbrigðisstarfs- fólk ætti að sinna börnum sem aðstandendum. Í Svíþjóð og Finnlandi er sambærileg löggjöf. Tilgangur laganna var að tryggja börnum sem eru aðstandendur í heil- brigðiskerfinu þjónustu við hæfi út frá aldri og þroska. Samkvæmt lögunum eru heilbrigðis- starfsmenn ábyrgir fyrir því að skrá, halda utan um og mæta þörfum barnanna þannig að þau fái stuðning og þjónustu við hæfi. „Hvernig eða hvort börn fá aðstoð við veik- indi foreldra hefur breyst í áranna rás í rétta átt. Hér eru heilbrigðisstarfsmenn sem hafa menntun og þjálfun í að tala við börn og fjöl- skyldur. Slík aðstoð þarf þó að vera markvissari og samræmt verklag þarf svo öllum bjóðist þessi aðstoð. Við þurfum ekki að finna upp hjól- ið í þessu samhengi, höfum til hliðsjónar löggjöf Norðurlandanna, reglugerðir og þær rann- sóknir og þróunarvinnu sem þar eru að baki.“ Fjölskyldubrúin er forvarnarverkefni sem fé- lagsráðgjafar innleiddu á krabbameinslækn- ingadeildir. Þetta eru samræð- ur með félagsráðgjafa fyrir foreldra og börn með sérstakri áherslu á líðan barnanna. Þar kemur vel í ljós sú þörf að börn fái upplýsingar við hæfi og svigrúm til þess að ræða um veikindi foreldra með þeim sem þau treysta. Með sama verklagi stendur nú yfir gæða- verkefni á krabbameinslækningadeildum. Verk- efninu lýkur á næstu vikum, þá verður árangur þess metinn. „Fjölmargar nýjar og eldri rannsóknir sýna að samtal við foreldra, að hlusta á þarfir barnsins og vinna saman að velferð þess og fjölskyldunnar er forvörn sem getur ráðið úrslitum um velferð barna. Þegar litið er til þess að foreldri deyr er stór- fjölskyldan, afar og ömmur og aðrir ástvinir oft- ast mjög mikils virði fyrir barnið þegar foreldrið sem eftir lifir glímir við sorg. Heilbrigðisstarfs- menn verða að vera vakandi og virkja fjölskyldu og umhverfi. Sá jarðvegur tengsla sem barnið býr að verður aldrei ofmetinn. Við þurfum að læra af þeim dæmum sem við höfum og breyta löggjöf í samræmi við það. Fyrir 50 árum fengu feður ekki að vera viðstaddir fæðingar. Í dag þætti það fráleitt. Fyrir 60 árum fengu for- eldrar ekki að heimsækja veik börn sín á sjúkrahús. Heilbrigðisstarfsmenn og aðrir töldu það vera best fyrir börnin og foreldrana. Vegna ótal rannsókna sem gerðar hafa verið í áranna rás á afleiðingum þess erum við öllum stundum með börnum okkar ef þau leggjast á spítala. Vegna þess að nú vitum við betur.“ Ættum að horfa til Noregs Anna Rós Jóhannesdóttir ’ Að hlusta á þarfirbarnsins og vinnasaman að velferð þess ogfjölskyldunnar er forvörn sem getur ráðið úrslitum Eftir að dóttir okkar lést aðeins 28 áragömul, sem lét eftir sig indælan son, fórég að velta fyrir mér, í stærra sam- hengi, stöðu barna við andlát foreldris. Hvaða formlega stuðning þau væru að fá, ekki aðeins í aðdraganda andláts heldur einnig velferð þeirra árin á eftir,“ segir Jón Bjarnason, fyrr- verandi þingmaður og ráðherra. „Sjálf áttum við móðurfjölskylda drengsins gott samband við eftirlifandi föður, fjölskyldu hans og svo nýjan maka hans og sáum hvað það var dýrmætt fyrir alla. En þetta varð mér mikið hugðarefni og eftir að ég hætti á Alþingi hafði ég tíma til að sinna þessu og vildi gjarn- an láta gott af mér leiða enda málið mér náið. Maður fór að velta fyrir sér réttindum og skyldum aðstandenda látna foreldrisins, hagsmunum og velferð barnsins. Það kemur ekkert í staðinn fyrir for- eldrið sem deyr en hægt er að mæta þörfum barnsins eins og vel og kostur er. Og barnið á alla tíð föður sinn og móður þó látin séu og ímynd þeirra þarf að rækta. Ég átti góðan fund með Vigfúsi Bjarna Al- bertssyni sjúkrahúspresti, sem er einstakur maður, og við hittum Sigrúnu Júlíusdóttur prófessor þar sem við ræddum þessi mál og smám saman mótaðist rannsóknarfarvegur; að gerð yrði úttekt á stöðu barna sem að- standenda, í veikindum, við andlát og líka árin eftir andlát. Og hvernig börn ættu á hættu á að missa reglubundin tengsl við fjölskyldu látins for- eldris. Grunnatriðið er að barnið fái að halda tengslum, uppruna og séreinkennum þótt nýtt fólk komi inn. Við veltum fyrir okkur hversu mörg börn væru að missa foreldra sína á hverju ári, hvernig lögin og regluverkið innan heilbrigðiskerfisins og stjórnsýslunni almennt væru gagnvart þessum börnum.“ Í kjölfarið gengu Jón, Sigrún og Vigfús Bjarni á fund Ólafar Nordal, þá inn- anríkisráðherra, og lögðu hugmyndirnar fyrir hana. „Ólöf veitti afdráttarlausan stuðning og hvatningu og þetta ágæta fólk fór í gang með að gera þessar athuganir. Fleira gott fagfólk bættist í hópinn og vinnur að þessum málum áfram. Því miður auðnaðist Ólöfu ekki að fylgja því eftir eins og hún ætlaði sér, þar sem hún lést, en hennar mikla hvatning réð miklu um að þessar rannsóknir fóru í gang.“ Meðal þeirra rannsókna sem hafa verið gerðar eftir þetta er á stöðu barna við andlát móður úr krabbameini. „Við andlát þarf barnið á miklum stuðningi og öryggi stórfjölskyldunnar og velferðar- kerfisins að halda og haldið sé þétt utan um það. Fyrir alvarlega sjúkt eða deyjandi for- eldri er það mikil huggun að vita barnið sitt í öruggum höndum. Um þetta ættu að vera skýrar verklagsreglur á öllum stigum. Það er oft torveldara að kippa í liðinn seinna því sem hefði átt að gera í upphafi. Hið opinbera ætti að hafa afar ríka frumkvæðisskyldu að því að standa vörð um velferð þessara barna.“ Stuðningur Ólafar Nordal skipti miklu Jón Bjarnason ’ Eftir að dóttir okkarlést aðeins 28 áragömul, sem lét eftir sigindælan son, fór ég að velta fyrir mér, í stærra samhengi, stöðu barna við andlát foreldris.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.