Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Side 18
Mjög smart getur verið að hafa fleiri en einn hlut af hverri
sort. Raðaðu mörgum blómapottum í eldhúsgluggann, hafðu
fimm ljósmyndir í röð á vegg, eða þrjú eins hangandi ljós.
Margföld áhrifHÖNNUN
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.7. 2017
Björg hefur gaman af því að blanda gömlu saman við nýtt ognýtur þess að hafa litríkt, grænt og hlýtt í kringum sig.„Ég legg mikið upp úr því að heimilið mitt sé notalegt.
Mér finnst ekkert betra en að koma heim eftir langan vinnudag,“
segir Björg. „Mér finnst gaman að fletta í gegnum falleg innan-
húsblöð og eru RUM og Bolig í uppáhaldi. Ég leita líka oft í In-
stagram til að sækja mér innblástur, en þar er margar góðar
hugmyndir að finna,“ segir Björg.
Hún heldur mikið upp á bláa velúrsófann sinn og hliðarborðið
við sófann, sem er frá danska hönnunarteyminu Mater. „Sófinn
var í eigu ömmu minnar og er því í miklu uppáhaldi. Einnig eru
bollarnir mínir frá Royal Copenhagen í uppáhaldi, en þeim er ég
að safna. Svo er það rúmteppið frá Vík Prjónsdóttur. Í rauninni
gæti ég talið endalaust,“ segir Björg og hlær, en hún hefur tekið
sér tíma í að sanka að sér fallegum munum. Nýtt borðstofuborð
er þó efst á óskalistanum, en það sem er inni á heimilinu núna
fékk Björg frá foreldrum sínum. „Það er frekar illa farið og hent-
ar ekki stólunum mínum en þetta borð hefur þó nýst mér vel í
gegnum tíðina. En nýtt borðstofuborð er það næsta sem verður
keypt inn,“ segir Björg, sem er á leiðinni í vinkvennaferð til
Kaupmannahafnar. „Já, ég hlakka mikið til að kíkja í uppáhalds-
búðirnar mínar og setjast á notaleg kaffihús. En í sumar ætla ég
að njóta íslenskrar náttúru og ferðast um fallega landið okkar.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mikilvægt að
heimilið sé notalegt
Björg Gunnarsdóttir, klæðskeri og fatahönnuður, starfar sem
aðstoðarhönnuður hjá Geysi og býr í snoturri íbúð á besta stað í
Vesturbænum. Eins og gefur að skilja hefur hún sterkar skoðanir á
hönnun og tísku. Sunnudagsmogginn fékk að kíkja í heimsókn.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunntorunn@gmail.com
Blái stóllinn er hluti
af sófasetti sem
amma Bjargar átti.
Björg Gunnars-
dóttir fatahönn-
uður hefur sérlega
fallegan smekk.
Skemmtileg samsetning á
fallegum myndum yfir glæsi-
lega gamaldags skenknum.