Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Side 29
Keyrt er að Hveragerði og í gegnum bæinn og er
bílnum lagt þar sem göngustígurinn byrjar. Rúm-
lega þriggja kílómetra löng ganga er að Reykjadal,
þar sem hægt er að baða sig, og tekur gönguferðin
um einn og hálfan tíma. Gönguleiðin er vinsæl
enda er hún bæði falleg og greiðfær fyrir flesta. Til
hliðar við ána hefur verið lagður pallur til að ganga
á, sem og skjólveggir þar sem hægt er að hafa fata-
skipti. Hitastigið í ánni er þægilegt en hún er heit-
ari eftir því sem farið er ofar. Enginn aðgangseyrir
er að ánni en þessi gönguleið er tilvalin í góðu
veðri og er gott að taka nesti með sér.
Reykjadalur
2.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Full búð af
NÝJUMVÖRUM
Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani
Grjótagjá er gjá á
milli hárra kletta sem
myndar helli og er
rétt við Mývatn.
Grjótagjá var vinsæll
baðstaður á áttunda
áratugnum en síðan
hitnaði vatnið það
mikið að ekki var
lengur hægt að baða
sig þar. Hitastigið
lækkaði þó og hægt
var að baða sig aftur
þar árið 2004. Gjárnar
eru tvær og er önnur
baðstaður kvenna og
hin baðstaður karla.
Hitastigið fór ekki nið-
ur fyrir 45°C fyrr en
árið 1992 og 1998 í
gjánum. Nú er hita-
stigið um 44°C.
Grjóta-
gjá
Gamla laugin í Hverahólmanum á
Flúðum er elsta sundlaug á Ís-
landi, gerð árið 1891. Árið 1909
var sundnámskeið fyrst haldið í
lauginni og var sund síðan kennt
þar árlega til ársins 1947. Þá tók
sundlaugin á Flúðum við kennsl-
unni og voru því ekki not fyrir
Gömlu laugina lengur. Laugin
gleymdist í um 60 ár, til ársins
2006, en þá var hún endurbyggð.
Hefur verið opnað þjónustuhús
með búningsklefum og sturtum
við laugina, en það kostar um
2.800 kr. í hana. Hitastigið í laug-
inni er 38-40 °C. Laugin er á
hverasvæði og til hliðar við hana
má sjá lítinn goshver sem gýs á
nokkurra mínútna fresti.
Gamla
laugin
Seljavallalaug er í Laugarárgili í
Austur-Eyjafjallasveit og getur
það verið ævintýri að leita að-
henni. Leggja þarf bílnum í smá
fjarlægð frá lauginni en þá tekur
við ganga, meðal annars yfir á sem
rennur niður fjallið. Laugin er ein
elsta sundlaug á Íslandi og var
fyrst hlaðin með grjóti árið 1923
og er staðsett inni í dal þar sem ís-
lenska náttúran skartar sínu feg-
ursta. Laugin er vel sótt af ferða-
mönnum en við hana er lítið hús
með skiptiaðstöðu.
Seljavallalaug
Morgunblaðið/Sigurður Bogi