Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.07.2017, Side 31
eiga við hann tveggja manna tal, þótt engar sérstakar
ákvarðanir væru uppi og taka jafnvel smá snerru við
hann.
Þegar sagt var við hann að það hlyti að vera
áhyggjuefni í upphafi sameinaðrar myntar að ætla að
láta lönd með svo ólíka fjárhagslega uppbyggingu,
stjórnskipulegar siðvenjur og viðhorf til lagalegs aga
falla að slíku kerfi, þá blés hann á það. Ekki með því
að segja að þau rök væru ekki gild. Þau gætu vel verið
það að hans mati. En þau væru aukaatriði. Það væru
önnur og þýðingarmeiri atriði sem knúðu á, bæði
söguleg og siðferðileg rök og gerðu út um málið. Afi
minn átti son, föðurbróðir minn, sem dó í heimsstyrj-
öldinni fyrri. Faðir minn átti son, bróður minn, sem
dó í þeirri næstu og ég ætla ekki að stuðla að því að
sonur minn deyi í þeirri þriðju.
Kohl horfði fast á viðmælandann með þá spurningu
liggjandi í lofti hvort hann væri virkilega svo ósvífinn
að þykjast hafa rök fram að færa sem ættu eitthvað í
þessi.
Og þótt viðkomandi teldi að ýmis önnur rök ættu að
geta komist að, þrátt fyrir þessi sláandi tilfinn-
ingalegu nauðhyggjurök fyrir sameiginlegri mynt var
ekki heiglum hent að halda þeim á lofti framan í
kanslarann Kohl í þessum ham.
Bréfritari átti leið um Þýskaland frá Tyrklandi
stuttu eftir að Kohl hafði látið af kanslaraembætti.
Hann bað sendiherra Íslands í Berlín, Ingimund Sig-
fússon, að kanna hvort Kohl myndi þiggja kvöldverð-
arboð með okkur í sendiráðinu. Sendiherrann sagðist
vita að fjölmörg sendiráð hefðu reynt án árangurs að
fá kanslarann fyrrverandi til að samþykkja slíkt boð.
En sjálfsagt væri að reyna. Kohl þáði óvænt og þau
hjón komu í bústaðinn til Ingimundar og Valgerðar í
íslenskan kvöldverð og stoppuðu mun lengur en
vænta mátti. Var þetta mjög ánægjuleg stund, stór-
fróðleg og ógleymanleg.
En það er önnur saga
Áður var minnst á smásögu þar sem Kohl kemur við
sögu. Önnur slík saga er til fullsköpuð, þótt hún hafi
enn ekki verið fest á blað. Þar sem þessi tímamót hafa
nú orðið er rétt að ljúka því formsatriði hið fyrsta. Sú
saga er ekki síður sönn en hin fyrrnefnda, þótt rétt sé
til öryggis að áskilja fullan rétt til þess að nýta útgefin
skáldaleyfi, en hóflega þó.
Því hefur verið haldið fram að Kohl hafi getað verið
þungur í skauti gagnvart þeim, sem að hans mati
höfðu gert á hlut hans, jafnvel langrækinn og hefni-
gjarn. Hin óskrifaða saga dregur upp allt aðra mynd
af kanslaranum. Það vita allir að hann var stór í snið-
um á hvaða mælikvarða sem er. En sagan sýnir að
kanslarinn átti sem manneskja allt aðra hlið. Hún
sýnir hjartahlýjan og drenglundaðan mann.
Og hinir
Bréfritari komst í kynni við fjóra kanslara Þýska-
lands. Tveir þeirra voru þá fyrrverandi, þeir Willy
Brandt og Helmut Schmidt. Schmidt sat matarboð
hans í Viðey og Brandt í Ráherrabústaðnum við
Tjarnargötu. Samtöl við þessa stórmerku menn báða
voru mjög eftirminnileg og gefandi.
Áður hefur verið rætt um Kohl í þessu bréfi. Eft-
irmaður hans Gerhard Schröder kom til Íslands í
heimsókn áður en hann varð kanslari Þýskalands og
bréfritari man ekki betur en að hann hafi verið fyrsti
erlendi forystumaðurinn sem sótti Schröder heim
eftir að hann varð kanslari. Eftir það var oft hist
bæði hér á landi og erlendis. Kanslarinn var allan
sinn starfstíma sérstaklega elskulegur og hjálpleg-
ur. Jafnvel í því sem ekki fylgdi starfsskyldunum, því
hann lagði lykkju á leið sína til að vera viðstaddur út-
gáfuhóf, þegar að smásagnasafnið Nokkrir góðir
dagar án Guðnýjar kom út á þýsku. Af þessu má ráða
að ekki er hægt að kvarta yfir samskiptum við
Þýskaland á efstu hillu stjórnkerfanna á þessum
tíma sem er undir í þessu bréfi.
Skil
Helmut Kohl er kvaddur með þakklæti og blessunar-
óskum. Hann var stundum kallaður Herra Evrópa.
Hann er einn af þremur heiðursborgurum sam-
bandsins og hin formlega útför hans fer fram undir
hatti Evrópu, sem slíkrar, en ekki Þýskalands og
hefur ekki verið fullkominn friður um það.
Kohl verður hins vegar jarðsettur í Speyer í
Þýskalandi. Hefur ekkja kanslarans boðið Ingi-
mundi Sigfússyni, fyrrum sendiherra Íslands í
Þýskalandi og Valgerði konu hans, að vera viðstödd
þá athöfn.
Okkar ágæti vinur Helmut Kohl er vel að hvíldinni
kominn.
Fari hann vel.
Morgunblaðið/Eggert
2.7. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31