Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Páll á Reynatúgvu, formaður (for- seti) færeyska lögþingsins, frestaði þinginu óvænt í gær og sendi þing- menn í sumarfrí. Lögþingið kemur líklega ekki saman aftur fyrr en á Ólafsvöku 29. júlí þegar nýtt þing hefst. Umdeilt frumvarp færeysku landsstjórnarinnar um nýskipan í sjávarútvegsmálum verður því ekki að lögum nú. Frumvarpið kveður m.a. á um uppboð á kvótum og veiði- dögum og afnám eignar útlendinga í færeyskum sjávarútvegi. Leggja þarf frumvarpið fram á nýjan leik á nýju þingi. Fram kom í færeyskum fjöl- miðlum síðdegis í gær að Páll á Reynatúgvu, þingformaður, hefði sagt að ekki hefði verið full eining innan stjórnarmeirihlutans um frum- varpið. Því hefði hann ákveðið að senda þingið í frí. Kaj Leo Johannesen, lögþings- maður Sambandsflokksins og fyrr- verandi forsætisráðherra, er í stjórn- arandstöðu. Hann sagði að lögþingsformaðurinn hefði ákveðið upp á sitt eindæmi að slíta þinginu. „Hann taldi það ekki forsvaran- legt að keyra í gegn mikilvægt laga- frumvarp um fiskveiðar okkar,“ sagði Kaj í samtali við Morgunblaðið. Miklir hagsmunir væru í húfi og ekki tími til að ræða málið nægilega vel. Því þyrfti að taka málið aftur upp á nýju þingi. Nokkrar ástæður nefndar Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru nokkrar ástæður taldar vera fyrir því að lögþinginu var slitið svo óvænt. Gerðar voru 42 breytingar á frumvarpinu síðastliðinn fimmtudag. Vinnunefndin, sem er ein af fasta- nefndum lögþingsins, fékk frum- varpið til meðferðar. Ekki var búið að útskýra fyrir nefndinni hvaða af- leiðingar breytingarnar myndu hafa. Það fylgir sögunni að nefndarmenn hafi verið ósáttir við hve margir ráð- herrar voru fjarverandi og gátu ekki setið fyrir svörum. Einn ráðherra var fjarverandi vegna embættis- starfa erlendis og sumir komnir í sumarfrí. Það þótti ótækt að afgreiða svo mikilvægt lagafrumvarp að ráð- herrunum fjarverandi. Þá munu meirihlutinn og minni- hlutinn hafa verið sammála um að ekki væri hægt að afgreiða frum- varpið því það stangaðist á við stjórnarskrána vegna Hoyvíkur- samkomulagsins. Orðrómur um vantraust Loks var orðrómur um að minnihlutinn hygðist bera fram van- trauststillögu á Högna Hoydal sjávarútvegsráðherra. Ekkert varð af því vegna þess að þingið var sent heim. Færeyska landsstjórnin hefur aðeins eins þingmanns meirihluta eða 17 þingmenn af 33. Hefði van- trauststillagan verið borin fram hefði þurft að taka hana strax til af- greiðslu. Ekki var víst að tekist hefði að ná öllum þingmönnum heim til að ríkisstjórnin stæðist vantrauststil- löguna. Lögþingið var óvænt sent í sumarfrí  Umdeilt fiskveiðifrumvarp verður ekki að lögum í Færeyjum að sinni  Ekki full eining innan stjórnarmeirihlutans  Margar breytingar gerðar  Taka þarf málið upp á nýju þingi eftir Ólafsvöku Morgunblaðið/Ómar Tinganes í Þórshöfn Deilt hefur verið um nýskipan í sjávarútvegsmálum á færeyska lögþinginu síðustu daga, en þingmenn eru nú komnir í sumarleyfi. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is „Ég fékk ytra mat á þau gögn sem lágu fyrir og niðurstaðan var að það þyrfti frekari rökstuðning til að mæla með sameiningu skólanna. Í ljósi þess þá er ég ekki að dvelja lengur við þetta og ákvað að létta þessari óvissu,“ segir Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningar- málaráðherra. Í tilkynningu mennta- og menningarmálaráðu- neytisins í gær kemur fram að ekki verði af sameiningu á rekstri Fjöl- brautaskólans við Ármúla og Tækniskólans að svo stöddu. „Mennta- og menningarmála- ráðuneytið hefur lokið greiningu á gögnum sem unnin voru um hugsanlega sam- einingu á rekstri Fjölbrautaskól- ans við Ármúla og Tækniskólans. Ráðuneytið fékk einnig Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri til að leggja sitt mat á gögnin. Niðurstaða ráð- herra er að ekki verði ráðist í að sameina rekstur skólanna að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni. Kristján Þór ítrekar í samtali við Morgunblaðið að engin ákvörðun hafi verið tekin um að sameina skólana heldur var einungis verið að skoða möguleikann á því og nú hefur verið tekin ákvörðun um að slíkt verði ekki gert. Fækkar á framhaldsskólastigi Í tilkynningunni kemur einnig fram að gerð verður greining á ein- stökum landsvæðum eða klösum skóla, sem og greining á einstökum skólum með tilliti til styrkleika og veikleika þeirra. Þá telur ráðuneyt- ið nauðsynlegt að athuga þá kosti sem í stöðunni eru þegar nemend- um á framhaldsskólastigi muni væntanlega fækka um 600 á ári á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem fyrirsjáanlegar eru breytingar á nemendafjölda annars staðar á landinu. Segir ráðuneytið að nauðsynlegt sé að gera ítarlegri athuganir á stöðu framhaldsskólanna í landinu og þróun starfsemi þeirra á næstu árum, meðal annars vegna fyrirsjá- anlegra breytinga á nemendafjölda vegna styttingar náms til stúdents- prófs, stærðar árganga á næstu ár- um, námsframboðs og annarra þátta. Ekki verður af sameiningu  Mati á kostum og göllum sameiningar FÁ og Tækniskólans er lokið  Skólarnir verða ekki sameinaðir  Greining verður gerð á einstökum skólum og landsvæðum Kristján Þór Júlíusson Glerhúsið sem tengir Laugaveg 4 og 6 við Skóla- vörðustíg 1A er nú að verða tilbúið en fram- kvæmdir á reitnum hófust fyrir um tveimur ár- um. Húsið er tæplega 900 fermetrar, kjallari og tvær hæðir. Reykjavíkurborg keypti Laugaveg 4 og 6 snemma árs 2008. Var það í tengslum við myndun nýs meirihluta í borgarstjórn. Hug- myndin var að viðhalda hinni gömlu götumynd við Laugaveginn neðanverðan. Þegar ljóst varð að kostnaður við að gera húsin upp yrði gríðar- legur var ákveðið að selja húsin tvö árið 2014. Húsið við Laugaveg 6 var flutt til Hafnarfjarðar meðan á framkvæmdum stóð en nú fer fram- kvæmdum að ljúka og komin er lokamynd á reit- inn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Glerhýsi og gömul hús mætast á Laugaveginum Makrílvertíðin hefur farið vel af stað, að sögn Ingimundar Ingi- mundarsonar, útgerðarstjóra upp- sjávarskipa hjá HB Granda. Tvö skip fyrirtækisins, Venus og Vík- ingur, eru á makrílveiðum og voru þau á Papagrunni fyrir austan land, bæði í öðrum túr vertíðar- innar. Ingimundur segir makrílinn líta vel út og allan vera hæfan til manneldis. Hann segir menn renna blint í sjóinn þegar kemur að er- lendum mörkuðum en gerir ráð fyrir svipuðu verði í erlendri mynt og í fyrra. Það þýði 15-20% sam- drátt í íslenskum krónum. Árið 2015 settu Rússar við- skiptabann á sjávarafurðir frá Ís- landi. Aðalmarkaðurinn fyrir frystan, slógdreginn og hausaðan makríl hafði verið í Rússlandi og segir Ingimundur að því hafi þurft að leita á ný mið. Menn séu alltaf í leit að nýjum markaðssvæðum. Mikið sé selt til Austur-Evrópu, til dæmis Hvíta-Rússlands og Pól- lands, og líka til Afríku. agunnar@mbl.is Makrílvertíð hefur farið vel af stað  Krónan veldur vandræðum Til stendur að flytja suður til Hafn- arfjarðar nær 1.000 gripi sem fund- ist hafa við fornleifarannsókn í Dysnesi við Eyjafjörð. Grafir þar eru að öllum líkindum frá 10. öld. Í Dysnesi standa yfir umfangs- miklar rannsóknir á kumlum sem þar fundust og fer Guðrún Alda Gísladóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands, fyrir rannsókninni. Hún segir bróður- part gripanna, eða um 900 talsins, vera nagla. Ljóst er að efnamenn hafa verið á ferð en vopn hafa fund- ist í öllum gröfum. Gripirnir verða nú fluttir í nýjar geymslur Þjóðminjasafnsins við Tjarnarvelli í Hafnarfirði en þar verða þeir til rannsóknar í vetur. Guðrún vonast til að gripirnir komi fyrir sjónir almennings á Þjóðminjasafninu að því loknu. 1.000 munir hafa fundist á Dysnesi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.