Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 13

Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 13
Gleði Brugðið á leik á námskeiði í gerð útieldhúsa. Gestir Norrænu vistræktarhátíðarinnar fá tækifæri til þess að búa til metangas úr jarðgerð eða skít, kynnast nytjajurtum á svæðinu og læra að tengjast náttúrunni. ekki næg og lítil þekking á vistrækt. Það útskýrir að einhverju leyti að 80% af sjálfboðaliðunum eru af er- lendu bergi brotnir. Innflytjendur vilja gera eitthvað fyrir umhverfið, það telst heilbrigð skynsemi í flest- um hlutum heims.“ Góðgerðarmaður ríkisins Áhugi Marðar á vistrækt kvikn- aði í baráttu hans við erfið veikindi. „Ég náði betri heilsu með at- hafnakakói, breyttu mataræði og andlegri vinnu. Ég hitti fólk í hippa- líki sem hjálpaði mér, fólk með fræðilegan grunn sem klæðir sig eins og hippar. Ég var mikið kvalinn og tók þá ákvörðun að ef þessar kvalir sem ég leið hefðu einhvern tilgang þyrfti ég að gera gagn í heiminum. Ég er öryrki og get ekki unnið hefð- bundna vinnu en ég get gert gagn þegar kemur að því að upplýsa fólk um vistræna lífshætti. Ég get því kallað mig ríkisstyrktan góðgerðar- mann,“ segir Mörður brosandi. Töfrastaðir eru með viðburði og námskeið í allt sumar. Mörður segir að námskeiði í gerð útieldhúsa og krafteldstæða sé nýlokið og 11 daga grunnnámskeið í vistrækt hefjist á morgun, þann 7. júlí. Norræna vistræktarhátíðin Norræn vistræktarhátíð verður haldin á landi Töfrastaða 20. til 23. júlí. „Þetta er sjöunda hátíðin og í fyrsta skiptið sem hún er haldin á Ís- landi. Fjölmargir fyrirlestrar verða í boði gesta á hátíðinni. Allt frá því að tala við plönturnar til fræðilegrar umfjöllunar. Það myndast mikill samhugur meðal þátttakenda sem eru að vinna að umhverfismálum og það er þessi tenging jafningja sem er svo mikilvæg. Jafningar eru í raun þeir sem eru að byrja og þeir sem eru búnir að upplifa margt. Hvorir- tveggju eru komnir til þess að upp- lifa eitthvað nýtt og deila því sem þeir kunna,“ segir Mörður sem vill benda á að forskráningu á hátíðina lýkur 10. júlí. Verði sé haldið í lág- marki og matur innifalinn alla dag- ana. Í einni vinnustofunni verður kennt að búa til villisoð og kjötsoð. Sjálfboðaliðar sjái svo um að ganga á milli gesta og bjóða þeim soðið á meðan á hátíðinni stendur. Sápukúlueinangrun „Það verða margir áhugaverðir fyrirlestrar og kennsla í boði. Kennsla í að búa til metangas úr jarðgerð eða skít og kolagerð sem dæmi. Nytjagarðar fyrir tré verða kynntir og vinnustofur um hvernig á að tengjast umhverfinu og náttúr- unni og læra að upplifa hana. Hald- inn verður fyrirlestur um sápukúlu- byggingu þar sem sápukúlur er notaðar til einangrunar. Þar er sápu- kúluvél tengd sólarrafhlöðu. Þetta er tilraun í Póllandi þar sem sápukúl- urnar einangra gróðurhús,“ segir Mörður og bætir við að kynning verði á nytjajurtum sem finnast á svæðinu og kynning á íslenskri vist- rækt. Þetta er einungis brot af því sem boðið verður upp á segir Mörð- ur. Kakóhugleiðsla á Gauknum Eftir að Norrænu vistræktarhá- tíðinni lýkur tekur við næsta verk- efni. „Við verðum með námskeið fyr- ir verðandi kennara í vistfræði. Þrír kennarar eru á Íslandi með nægjan- lega djúpa þekkingu á vistrækt til að kenna hana en eftir námskeiðin mun- um við hafa kennara með mismun- andi áherslur og bakgrunn.“ Töfrastaðir ætla að kynna Sanda suðursins á Gauk á Stöng næstkomandi laugardag. „Kynningin verður að degi til og kakóhugleiðsla í kjölfarið. Um kvöld- ið verða svo tónleikar á Gauknum,“ segir Mörður fullur tilhlökkunar. Sandar Suðursins Í framtíðinni ganga gestir um og læra af umhverfinu. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER AF UMGJÖRÐUM UMGJÖRÐ: BOTTEGA VENETA. MÓDEL: MARÍA SIGURÐARDÓTTIR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.