Morgunblaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 13
Gleði Brugðið á leik á námskeiði í gerð útieldhúsa. Gestir Norrænu vistræktarhátíðarinnar fá tækifæri til
þess að búa til metangas úr jarðgerð eða skít, kynnast nytjajurtum á svæðinu og læra að tengjast náttúrunni.
ekki næg og lítil þekking á vistrækt.
Það útskýrir að einhverju leyti að
80% af sjálfboðaliðunum eru af er-
lendu bergi brotnir. Innflytjendur
vilja gera eitthvað fyrir umhverfið,
það telst heilbrigð skynsemi í flest-
um hlutum heims.“
Góðgerðarmaður ríkisins
Áhugi Marðar á vistrækt kvikn-
aði í baráttu hans við erfið veikindi.
„Ég náði betri heilsu með at-
hafnakakói, breyttu mataræði og
andlegri vinnu. Ég hitti fólk í hippa-
líki sem hjálpaði mér, fólk með
fræðilegan grunn sem klæðir sig eins
og hippar. Ég var mikið kvalinn og
tók þá ákvörðun að ef þessar kvalir
sem ég leið hefðu einhvern tilgang
þyrfti ég að gera gagn í heiminum.
Ég er öryrki og get ekki unnið hefð-
bundna vinnu en ég get gert gagn
þegar kemur að því að upplýsa fólk
um vistræna lífshætti. Ég get því
kallað mig ríkisstyrktan góðgerðar-
mann,“ segir Mörður brosandi.
Töfrastaðir eru með viðburði og
námskeið í allt sumar. Mörður segir
að námskeiði í gerð útieldhúsa og
krafteldstæða sé nýlokið og 11 daga
grunnnámskeið í vistrækt hefjist á
morgun, þann 7. júlí.
Norræna vistræktarhátíðin
Norræn vistræktarhátíð verður
haldin á landi Töfrastaða 20. til 23.
júlí. „Þetta er sjöunda hátíðin og í
fyrsta skiptið sem hún er haldin á Ís-
landi. Fjölmargir fyrirlestrar verða í
boði gesta á hátíðinni. Allt frá því að
tala við plönturnar til fræðilegrar
umfjöllunar. Það myndast mikill
samhugur meðal þátttakenda sem
eru að vinna að umhverfismálum og
það er þessi tenging jafningja sem er
svo mikilvæg. Jafningar eru í raun
þeir sem eru að byrja og þeir sem
eru búnir að upplifa margt. Hvorir-
tveggju eru komnir til þess að upp-
lifa eitthvað nýtt og deila því sem
þeir kunna,“ segir Mörður sem vill
benda á að forskráningu á hátíðina
lýkur 10. júlí. Verði sé haldið í lág-
marki og matur innifalinn alla dag-
ana.
Í einni vinnustofunni verður
kennt að búa til villisoð og kjötsoð.
Sjálfboðaliðar sjái svo um að ganga á
milli gesta og bjóða þeim soðið á
meðan á hátíðinni stendur.
Sápukúlueinangrun
„Það verða margir áhugaverðir
fyrirlestrar og kennsla í boði.
Kennsla í að búa til metangas úr
jarðgerð eða skít og kolagerð sem
dæmi. Nytjagarðar fyrir tré verða
kynntir og vinnustofur um hvernig á
að tengjast umhverfinu og náttúr-
unni og læra að upplifa hana. Hald-
inn verður fyrirlestur um sápukúlu-
byggingu þar sem sápukúlur er
notaðar til einangrunar. Þar er sápu-
kúluvél tengd sólarrafhlöðu. Þetta er
tilraun í Póllandi þar sem sápukúl-
urnar einangra gróðurhús,“ segir
Mörður og bætir við að kynning
verði á nytjajurtum sem finnast á
svæðinu og kynning á íslenskri vist-
rækt. Þetta er einungis brot af því
sem boðið verður upp á segir Mörð-
ur.
Kakóhugleiðsla á Gauknum
Eftir að Norrænu vistræktarhá-
tíðinni lýkur tekur við næsta verk-
efni. „Við verðum með námskeið fyr-
ir verðandi kennara í vistfræði. Þrír
kennarar eru á Íslandi með nægjan-
lega djúpa þekkingu á vistrækt til að
kenna hana en eftir námskeiðin mun-
um við hafa kennara með mismun-
andi áherslur og bakgrunn.“
Töfrastaðir ætla að kynna
Sanda suðursins á Gauk á Stöng
næstkomandi laugardag.
„Kynningin verður að degi til og
kakóhugleiðsla í kjölfarið. Um kvöld-
ið verða svo tónleikar á Gauknum,“
segir Mörður fullur tilhlökkunar.
Sandar Suðursins Í framtíðinni ganga gestir um og læra af umhverfinu.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
ÞAR SEM
ÚRVALIÐ
ER AF
UMGJÖRÐUM
UMGJÖRÐ: BOTTEGA VENETA.
MÓDEL: MARÍA SIGURÐARDÓTTIR.