Morgunblaðið - 06.07.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Nýtt Fosshótel við Mývatn var opn-
að um síðustu helgi, en aðeins er um
ár síðan framkvæmdir hófust. Hótel-
ið er 4.500 fermetrar að stærð með
92 herbergjum, þar með taldar þrjár
svítur. Hótelið verður rekið allt árið,
nema um jól og áramót en þá verður
lokað, segir Óskar Finnsson, fram-
kvæmdarstjóri rekstrarsviðs Ís-
landshótela.
Hótelið stendur í um 700 metra
fjarlægð frá Mývatni segir Óskar,
spurður um hve nálægt hótelið
standi vatninu. Mikil áhersla hefur
verið lögð á umhverfismál við bygg-
ingu hótelsins af arkitektastofunni
BASALT.
„Stefna Íslandshótela hefur verið
mjög skýr í mörg ár að fráveitukerfi
séu af bestu gerð,“ segir Óskar og
nefnir að þriggja þrepa fráveitukerfi
sé á hinu nýja hóteli við Mývatn.
„Það á nánast að vera hægt að
drekka vatnið sem kemur út á end-
anum,“ segir Óskar kíminn. Lagt
var upp með að hótelið væri í sam-
ræmi við náttúru svæðisins. Hótelið
er viðarklætt og mun viðurinn grána
með árunum, segir Óskar, og því
falla betur inn í umhverfið. Þá þekja
lyngþökur þak hótelsins.
Umferð minnkar á haustin
Að sögn Óskars hafa margar bók-
anir borist fyrir sumarmánuðina.
Hins vegar lítur út fyrir að bókunum
muni fækka þegar líður á haustið.
„Það er farið að draga úr aðsókn á
landsbyggðina á haustin,“ segir Ósk-
ar. Sterkt gengi krónunnar hafi þar
mikil áhrif. „Það fylgir aukinn kostn-
aður því að koma sér út á land.“
Hann er þó bjartsýnn á framtíð
Fosshótels við Mývatn. „Við bindum
vonir við að þetta geti orðið áfanga-
staður með svipað aðdráttarafl og
hótel okkar á Hnappavöllum, sem er
þekkt fyrir góðan mat og þjónustu,“
Fyrir utan náttúrufegurð svæðisins
þá er mikil afþreying í boði, t.d. jarð-
böð, snjósleða- og hestaferðir.
„Þetta getur orðið mikill áningar-
staðarkjarni.“ axel@mbl.is
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Fosshótel Mikið kapp var lagt á frágang við hið nýja Fosshótel í Mývatnssveit sem opnað var um síðustu helgi.
Nýtt Fosshótel
reist við Mývatn
Minni ferðamannastraumur á haustin
Ljósmynd/Birkir Fanndal
Útsýnisstaður Óskar Finnsson staddur í veitingasal Fosshótels við Mývatn.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Útsala
Glæsilegt úrval af sumarbolum,
kvartbuxum, peysum,
leggings, túnikum og töskum
Verið velkomin
20-50%
afsláttur
Þægindi og falleg hönnun
Eikjuvogur 29 Opnunartími:
104 Reykjavík - S:781-5100 Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Söluturn
Til sölu góður söluturn og spilasalur í verslunarkjarna á
stór Reykjavíkursvæðinu. Velta um 100.000.000 kr. á ári.
Skoðum ýmis skipti.
Áhugasamir sendi á box@mbl.is merkt:
„S-26246“ fyrir 10. júlí.
Öllum fyrirspurnum svarað.
Réttum Grænlendingum
hjálparhönd í síma
907 2003
Við hringinguna fara 2.500 krónur
sjálfkrafa í hjálparstarfið.
30%-50% afsl.
Skipholti
40%-70% afsl.
Laugavegi
Skoðið Facebook.laxdal.is
Laugavegi 63 • Skipholt 29b
S: 551 4422
SUMARÚTSALA
Jakkar-frakkar-kápur
Gerry Weber – Betty Barclay
gæðafatnaður