Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 21

Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 ✝ Hörður Páls-son fæddist á Hömrum í Grund- arfirði 4. nóvem- ber 1928. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 1. júlí 2017. Foreldrar hans voru hjónin Páll Þorleifsson, skip- stjóri og bóndi, f. 1892, og Ólöf Þor- leifsdóttir hús- freyja, f. 1904. Systkini Harðar eru Sigríður, f. 1925; Leifur, f. 1927, d. 2010; Jarðþrúður Guðný, f. 1933 og Pálmi, f. 1940, d. 2012. Hörður kvæntist 13. sept- ember 1952 Guðlaugu Guð- mundsdóttur, f. 1931 frá Ber- serkjahrauni í Helgafellssveit. Börn þeirra eru: 1) Páll Guð- finnur, f. 1954, sambýliskona Magatte Gueye og eiga þau son- inn Markús Örn. Fyrir átti hann Hörð, Tinnu, Hrund og Sig- rúnu. 2) Hilmar Þór, f. 1956, sambýliskona Unnur Jónsdóttir. Fyrir átti hann Helgu Maríu, Guð- laugu og Hafdísi. 3) Hrönn, f. 1963, sambýlismaður Sig- urður Örn Hektor- son. Fyrir átti hún Hrannar Pál og Grétar Þór. 4) Kristmundur, f. 1964, d. 2009. Börn hans og Kolbrúnar Haraldsdóttur eru Berglind, Birna og Brynjar. 5) Hlynur, f. 1966, sambýliskona Valborg Guð- laugsdóttir og þeirra dóttir er Fanndís Hlín. Fyrir átti hann Davíð Frey og Tómas Inga. Hörður bjó allt sitt líf á Hömrum í Grundarfirði ásamt Guðlaugu eiginkonu sinni. Hann var bóndi fram á síðasta dag. Hann var í hreppsnefnd Eyrar- sveitar og sat í stjórn Sparisjóðs Eyrarsveitar á áttunda ára- tugnum. Útför Harðar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 6. júlí 2017, klukkan 13. Það er erfitt að setjast niður og setja á blað kveðju til nýlátins föð- ur míns. Pabbi var á 89. aldursárinu og mér sem öðrum ljóst að fljót lífs- ins nálgaðist ósinn. Ég taldi mig tilbúinn en líklega er aldrei neinn tilbúinn að kveðja foreldra sína í hinsta sinn. Fyrsta júlí þegar sumarnóttin var sem fallegust og allt líf í blóma kvaddi pabbi þenn- an heim. Hann var búinn að vera tvo daga á sjúkrahúsinu á Akra- nesi svo biðin var ekki löng. Ég kvaddi hann um miðnættið. Það var friður og ró yfir honum og skömmu síðar var hann kominn í annan heim. Mamma var hjá hon- um síðustu andartökin og gömlu hjónin tókust á við dauðann af sama æðruleysi og yfirvegun og einkenndi allt þeirra líf. Pabbi var bóndi af líf og sál. Virðing fyrir öllu lifandi var hon- um í blóð borin, bæði í leik og starfi. Í sveitinni var vel hugsað um það í sláturtíðinni að lifandi dýr sæju ekki hvert stefndi og mikið lagt á sig til að svo mætti vera. Það var komið fram af virð- ingu við alla, bæði menn og dýr. Pabbi var glöggur á litbrigði náttúrunnar og fylgdist með öllu fram á síðasta dag. Engin – ekki nokkur – merki um andlega hrörnun voru hjá hon- um þrátt fyrir háan aldur. Stærsta gæfa pabba var þegar hann giftist Guðlaugu móður minni í september 1952. Þau voru því búin að vera gift í 65 ár og ganga saman í gegnum þykkt og þunnt. Síðustu árin höfum við verið nálægt hvor öðrum og hann frætt mig um fyrri ár. Ég áttaði mig á hversu framfarasinnaður hann var og áhugasamur um fram- kvæmdir, ekki síst þær sem hon- um stóðu honum nærri. Ég minnist æskuáranna og það var gaman í sveitinni. Í minning- unni var sumar og sól ásamt leikj- um og ærslum en líka skyldustörf sem færðu manni stolt og metnað. Heyskapurinn var auðvitað fyrir- ferðarmestur, þá var allt háð duttlungum veðráttunnar. Pabbi stjórnaði og það voru engir „sam- ráðsfundir“ enda bara einn skip- stjóri á þeirri skútu. Það var held- ur engin ákvarðanatökufælni í gangi, stefnan sett og henni fylgt. Sumir segja að þolinmæði sé dyggð en hana hafði pabbi ekki. Ég sagði oft við hann að ég hefði erft þetta frá honum og eins Markús sonur minn. Ég væri sá eini okkar sem væri þó að reyna að venja mig af henni. Pabbi vissi alveg að þetta var rétt en efaðist um árangurinn hjá mér. Við vor- um saman í Reykjavík núna í vor, ég keyrði og hann sat í framsæt- inu mér við hlið. Á rauðu ljósi sá ég að hann var farinn að ókyrrast og sagði: „Verður þetta rautt í all- an dag?“ Nú skilur leiðir að sinni og ég kveð þig, pabbi minn, með söknuð í hjarta. Tímans þungi niður heyr- ist ef menn leggja vel við hlustir og kynslóðir koma og fara. Orðstír trausts manns og góðs föður lifir þó áfram. Hvíl í friði. Páll Harðarson. Elsku hjartans afi okkar. Við kveðjum þig með söknuði í hjarta en einnig þakklæti fyrir að hafa átt þig sem afa. Við systkinin ólumst að mestu leyti upp í Grundarfirði og voru Hamrar nánast eins og okkar annað heim- ili. Við eigum margar góðar minn- ingar af þér og má þar nefna hey- skapinn, eggjatínslu, veiðiferðir, smölun og það skemmtilegasta var að fá að leika inn í hlöðu þegar þú varst eitthvað að fást við roll- urnar – sem við höfðum kannski minni áhuga á. Ein minning sem stendur upp úr, þá sérstaklega hjá Brynjari, var í einum af bíltúrum ykkar um Grundarbotninn þar sem þú bentir á Svarta hnjúk og spurðir Brynjar hvort hann vildi ekki eiga hann. Enn þann dag í dag bendir Brynjar stoltur á hnjúkinn og segir vinum sínum að hann hafi verið gjöf frá afa. Þér þótti heldur ekki leiðinlegt þegar Birna var að læra snyrti- fræði og það þurfti ekki mikið til að fá þig til að vera tilraunadýr hjá henni hvort sem það var í andlits- meðferðum, nuddi eða naglalökk- un. Það má segja að þú hafir verið mikill nautnaseggur. Berglind var svo heppin að fæðast á afmælisdaginn þinn sem gerði daginn ennþá sérstakari fyr- ir ykkur bæði. Aldrei leið sá af- mælisdagur sem að þið hringdust ekki á eða hittust til að óska hvort öðru til hamingju með daginn. Merkilegast var að kennitölurnar voru eins fyrir utan fæðingarárið – voru nokkur ár þar á milli. Okkur hefur alltaf þótt ótrú- lega gott að koma til þín og ömmu í sveitina þar sem þið tókuð okkur alltaf með opnum örmum og það verður skrítið að hafa þig ekki á þínum stað við eldhúsborðið þeg- ar við komum í heimsókn. Við er- um öll sammála um að það hafi alltaf verið ánægjulegt að eiga samræður við þig því þú varst svo minnugur og lumaðir alltaf á góð- um sögum. Vænst þykir okkur þó um það hvað þú sýndir okkur allt- af mikinn áhuga og því sem við vorum að gera í lífinu, hvort sem það var fótbolti, vinna eða skóli. Við lofum þér því að passa vel upp á elsku ömmu okkar og minn- ing um frábæran afa mun ávallt lifa í hjarta okkar. Við vitum að pabbi hefur tekið vel á móti þér og það er gott að hugsa til þess að þið vakið báðir yfir okkur. Hvíldu í friði. Berglind, Birna og Brynjar Kristmundsbörn. Síðsumars árið 2000 fluttumst við fjölskyldan úr höfuðborginni til Grundarfjarðar. Aðdragandinn að því var skammur og ekki mikið um húsnæði á lausu í bænum. Við vorum svo einstaklega heppin að rétt fyrir utan bæinn var hús á lausu sem við fengum leigt og síð- ar keypt og urðum þannig ná- grannar þeirra Harðar og Laugu. Betri nágranna er vart hægt að hugsa sér, við vorum ekki búin að vera nema tvær vikur í sveitinni þegar þau komu heim á hlað til okkar og færðu okkur stóra fötu af bláberjum til að bjóða okkur velkomin í sveitina. Það var auð- vitað bara byrjunin því oftar en ekki vorum við leyst út með eggja- bakka eða öðru því um líku þegar kíkt var í heimsókn að Hömrum. Samgangur var nokkur á milli bæjanna og fór svo að tveimur yngri börnunum okkur fannst þau hafa eignast þarna viðbótarömmu og afa sem var afar kærkomið. Hörður sagði okkur margar sögur úr sveitinni og hvernig lífið hefði verið þar á árum áður þegar hann ólst þar upp. Eitt sinn fórum við í bíltúr með þeim hjónum inn í Ber- serkjahraun að æskuheimili Laugu þar sem Hörður og Lauga sögðu okkur söguna af því þegar þeirra leiðir lágu saman og hvern- ig hefði verið að komast á milli bæja á þeim tíma. Það var ynd- islegt að fylgjast með þeim rifja upp þessar stundir með bros á vör og blik í augum. Þegar við fluttum til Reykja- víkur að nýju hélt Freyr áfram að stunda sína vinnu í Grundarfirði og fékk þá húspláss á Hömrum þar sem við settum okkar húsnæði í útleigu. Þar lifði hann í vellyst- ingum enda fer enginn svangur frá Hömrum eins og allir vita sem þangað hafa komið. Þeir Freyr og Hörður gátu setið löngum stund- um og rætt um útgerðina, aflann eftir daginn og spekúlerað hvort sjóveður væri framundan. Við kveðjum Hörð með þakk- læti fyrir samfylgdina og allar þær stundir sem hann gaf okkur fjölskyldunni. Elsku Lauga, börn, tengda- börn og fjölskyldur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Við trúum því að nú gangi Hörður heill heilsu til móts við Krissa sem tekur glaður á móti honum. Guð veri með ykkur. Kveðja. Jarþr. Hanna, Freyr og börn, Grund. Hörður Pálsson ✝ SkarphéðinnValdimarsson fæddist í Reykjavík 29. apríl 1933. Hann lést á Landa- koti 24. júní 2017. Foreldrar hans voru Guðmundur Valdimar Tómas- son vörubifreiða- stjóri, frá Galtar- hömrum í Gríms- nesi, f. 13.9. 1896, d. 30.4. 1987, og Jóhanna Sig- urðardóttir húsmóðir, frá Klas- barða í Vestur-Landeyjum, f. 27.2. 1896, d. 14.9. 1961. Þau eignuðust 12 börn. Eftirlifandi systkini Skarphéðins eru Dóra Björg, f. 1925, Hanna Hafdís, f. 1930, Auður Bergþóra, f. 1931, Ragnheiður Erna, f. 1935 og El- ísa Edda, f. 1936. Látin eru: Margrét, f. 1919, Sigríður settur í Danmörku og Skarp- héðinn, f. 1981. Á hann fimm börn og er hann einnig búsettur í Danmörku. 2) Ágúst, f. 25.11. 1957. Sonur hans og Þórdísar Ólafsdóttur er Róbert, f. 1975 og á hann þrjá syni. Sonur Ágústs og fyrrv. eiginkonu, Guðmundu Birgisdóttur, er Birgir, f. 1987. 3) Jóhann Þröst- ur, f. 23.3. 1961. Sonur hans og fyrrv. eiginkonu, Kristínar Kristjánsdóttur, er Arnar Snær, f. 1989. Dóttir Jóhanns Þrastar og Þórdísar Brynjólfs- dóttur er Íris Hadda, f. 1995. 4) Ragnheiður Hildur (Rúrý), f. 15.6. 1964, d. 1.11. 2008. Dóttir hennar og Gunnars Braga Kjartanssonar, d. 2001, er Hild- ur Imma og á hún tvö börn. Dóttir Rúrýar og Inga Karls Ingasonar er Anna María, f. 1998. Skarphéðinn fór að vinna við að keyra vörubíl um leið og hann hafði aldur til og sinnti því starfi í 45 ár. Útför Skarphéðins fer fram frá Áskirkju í dag, 6. júlí 2017, klukkan 15. Fjóla, f. 1920, Unn- ur Hrefna, f. 1922, Jóhannes Hörður, f. 1923, Valdimar Númi, f. 1926 og Bragi Rafn, f. 1928. Þann 28. apríl 1956 kvæntist Skarphéðinn Hildi Ágústsdóttur, f. í Reykjavík 20.6. 1937. Foreldrar hennar voru Ágúst Sæmundsson f. 1908, d. 1992 og Ragna Jónsdóttir, f. 1913, d. 1997. Börn Hildar og Skarphéð- ins: 1) Ragna Dúfa, f. 22.12. 1955. Eiginmaður hennar er Guðmundur Kjalar Jónsson, fyrrv. skipstjóri, f. 19.10. 1945. Þau eru búsett í Danmörku. Synir Rögnu Dúfu og fyrrv. eig- inmanns, Sveins Benedikts- sonar, eru Benedikt, f. 1975, bú- Með örfáum orðum langar mig að minnast föðurbróður míns, Skarphéðins Valdimarssonar, sem lést 24. júní síðastliðinn. Skarphéðinn, sem var sonur hjónanna Jóhönnu Sigurðar- dóttur og Guðm. Valdimars Tóm- assonar vörubílstjóra, ólst upp í stórum systkinahópi í Reykjavík og hóf ungur að aka vörubílum, sem varð svo hans ævistarf. Mínar fyrstu minningar um Skarpa eru einmitt tengdar vöru- bílnum hans, hann hafði leyft mér 3-4 ára snáða að sitja í, meðan hann var að aka efni í húsgrunn. Og svo vildi ekki betur til en svo að ég steyptist á hausinn út úr bíln- um ofan í stórgrýti og Skarpi ók mér til læknis sem stöðvaði mikla blæðingu, með viðeigandi sauma- skap. Þá eru mér líka minnisstæð- ar ferðir með Skarpa og pabba niður á Hafnarsand að sækja sand fyrir múrara. Þeir bræður hand- mokuðu af miklu kappi sandhlass- inu á bílinn og voru í hörku keppni, en á leiðinni heim var sleg- ið á létta strengi. Og það var ein- mitt einkenni Skarpa, glaðværðin sem ríkti í kringum hann, hjálp- semi og góðvild. Á seinni árum er margar minn- ingar tengdar sumarbústað þeirra hjóna í Borgarfirði, þangað var gaman að koma og ætíð tekið vel á móti okkur. Bústaðurinn reyndar einstaklega hlýlegur og vel í sveit settur og húsráðendur örlátir á viðurgjörning og glaðværð. Þannig minnist ég Skarphéðins Valdimarssonar og sendi Hildi og börnunum og öðrum aðstandend- um samúðarkveðjur frá okkur hjónum. Valdimar Bragason og Hafdís Marvinsdóttir, Selfossi. Skarphéðinn Valdimarsson Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, MARÍA HAFDÍS RAGNARSDÓTTIR, Lómatjörn 3, Reykjanesbæ, lést 1. júlí eftir stutta baráttu við krabbamein. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. júlí klukkan 13. Sveinbjörn Þórisson Ragnar Ómarsson Þórir Sveinbjörnsson Kristjana Dögg Hafþórsdóttir Sóley Sveinbjörnsdóttir Kenneth W. Frederick Bjarni St. Sveinbjörnsson Thelma Karen Kristjánsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐBRANDUR ORRI VIGFÚSSON, Grænuhlíð 11, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum háskóla- sjúkrahúsi laugardaginn 1. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Unnur Kristinsdóttir Vigfús Orrason Guðrún Ósk Óskarsdóttir Hulda Orradóttir Unnur Álfrún Huldudóttir Margrét Álfdís Huldudóttir Álfhildur Iða Huldudóttir Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR ÓSKARSSON frá Firði, Borgarbraut 50a, Borgarnesi, andaðist á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi mánudaginn 26. júní. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 14. Ása Sigurlaug Halldórsdóttir Sigurrós Einarsdóttir Árni Eyfjörð Ragnarsson Thorberg Einarsson Júlíanna Þ. Ólafsdóttir Bergljót Ólafía Einarsdóttir Ragnar Friðrik Franklínsson og afabörn Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, HALLGRÍMUR BOGASON, Heiðarhrauni 28, Grindavík, lést á Landspítala við Hringbraut 2. júlí. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 14. Þórhildur Rut Einarsdóttir Bogi G. Hallgrímsson Óskar Einar Hallgrímsson Elísa Ýr Sverrisdóttir Bogi G. Hallgrímsson Bryndís Rán Birgisdóttir Reynir Daði Hallgrímsson Sigrún Lilja Guðjónsdóttir Helga Rut Hallgrímsdóttir Harpa Rakel Hallgrímsdóttir Alfreð Behrend afabörn og systkini Okkar ástkæri JOSEPH LEE LEMACKS verslunarmaður, Dofraborgum 15, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 30. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 13. Eygló Jósephsdóttir Agnar Tr. Lemacks Kristjana B. Stefánsdóttir Árný Elsa Lemacks Hilmar Thor Hilmarsson Böðvar Darri Lemacks Ingadóra Snorradóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.