Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 23

Morgunblaðið - 06.07.2017, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 ✝ Jóhanna Guð-jónsdóttir fæddist að Ásbyrgi í Vestmannaeyjum 5. júní 1922. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 26. júní 2017. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns Jónssonar, skip- stjóra frá Björns- koti undir Eyjafjöllum, f. 10. febrúar 1892, d. 14. maí 1967, og Bergþóru Jónsdóttur frá Steinum undir Eyjafjöllum, f. 10. október 1894, d.20. desem- ber 1989. Þau hjónin fluttu til Vestmannaeyja árið 1920. Þar ólst Jóhanna upp ásamt systk- inum sínum í húsi sem faðir hennar reisti við Vestmanna- braut og nefnist Reykir. Systkini Jóhönnu voru níu. Jón Óskar, f. 26. júní 1917, d. 25. apríl 1940, Guðmundur, f. 9. febrúar 1920, d. 5. ágúst 2008, Þórhallur Ármann, f. 8. febrúar 1921, d. 4. maí 1921, Guðbjörn, f. 14. apríl 1924, d. 24. apríl 2012, Þorleifur, f. 23. júní 1926, d. 24. nóvember 1974, Magnús, f. 24. janúar 1929, Þórhallur Ármann, f. 27. dóttur. 5) Bergþóra, f. 17. apríl 1957, gift Ævari Sch. Valgeirs- syni, þeirra börn eru Valgeir í sambúð með Ingibjörgu Hlínar- dóttur, Victor Leifur í sambúð með Önnu Margréti Kristins- dóttur, þeirra börn eru Una Rakel og Trausti Þór og Jó- hanna Elsa í sambúð með Ein- ari Gunnarssyni, þeirra barn er Ævar Elí. 6) Guðjón Þór, 25. nóvember 1959, kvæntur Aðal- björgu Benediktsdóttur, þeirra börn eru Jóhanna og Guðbjörg Eva í sambúð með Arnóri Eiðs- syni. Jóhanna hlaut hefðbundna menntun og útskrifaðist sem gagnfræðingur frá Gagnfræði- skóla Vestmannaeyja. Á sínum yngri árum vann Jóhanna við ýmis störf, sem þá buðust í Vestmannaeyjum, m.a. við fisk- verkun og verslunarstörf. Einn- ig fór hún sem kaupakona á sumrin upp á land. Eftir að hún fluttist suður tóku við barn- eignir og sinnti hún uppeldi og heimilisstörfum þar til hún hóf störf á Kleppsspítala og síðar Landspítala. Þar sem hún starf- aði lengst af sem sjúkraliði. Jóhanna og Victor Hans bjuggu lengst af á Hjallavegi 1 og Fellsmúla 16 í Reykjavík. Eftir að Victor Hans lést keypti hún sér íbúð að Strikinu 8 í Garðabæ. Útför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 6. júlí 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. október 1931, Lilja, f. 10. apríl 1933, d. 3. janúar 1941, og Haukur, f. 13. mars 1938. Jóhanna giftist að Ofanleiti í Vest- mannaeyjum 4. ágúst 1946 Victori Hans Halldórssyni bifreiðastjóra, f. 26. mars 1923, d. 1. maí 2010. For- eldrar hans voru Halldór Ein- arsson, f. 25. nóvember 1884, d. 22. ágúst 1942, og Öndís Ön- undardóttir, f. 15. maí 1903, d. 30. apríl 1984. Börn Jóhönnu og Victors Hans eru: 1) Lilja, f. 3. febrúar 1945, d. 3. mars 1945. 2) Lilja, f. 18. maí 1946, d. 6. nóvember 1953. 3) Vigdís, f. 15. september 1950, gift Sig- urði Þorvarðarsyni, börn þeirra eru Viktor Þór og Ás- laug í sambúð með Sigurjóni Þór Sigurjónssyni, barn þeirra er Sigurður Orri, börn Sigur- jóns eru Brynjar Már og Karí- tas Dís. 4) Lilja Dóra, f. 19. febrúar 1956, gift Halldóri V. Frímannssyni, þeirra börn eru Sigurður Jóhann, Frímann Unnar og Victor Hans í sambúð með Kristínu Rós Guðmunds- Elsku mamma, nú þegar sól er hæst á lofti er komið að kveðjustund. Eftir stöndum við með tómarúm í hjarta og skarð í fjölskyldunni. Minningarnar hrannast upp frá Hjallavegin- um og Fellsmúlanum. Mamma var alltaf til staðar og hélt vel utan um hópinn sinn. Hún fylgdist vel með lærdómnum og hvatti okkur til að leggja okkur fram og sýna vandvirkni. Hún sjálf var afar vandvirk og vinnusöm alla sína ævi. Ung þurfti hún að axla mikla ábyrgð vegna veikinda móður sinnar. Það þótti gott að verða gagn- fræðingur á hennar tíma en það var ekki þrautalaust, hún þurfti að fá að lesa í námsbókum vin- konu sinnar og þegar að próf- um kom sótti skólastjórinn hana heim, þar sem hún var við það að gefast upp vegna veik- inda á heimilinu. Var hún þakk- lát fyrir hans inngrip alla tíð. Hún hafði áhuga á að sinna umönnunarstörfum og réð hún sig ásamt Laugu vinkonu sinni sem starfstúlku á Landakot og átti það að vera undirbúningur undir hjúkrunarnám en þá var hún kölluð heim þar sem faðir hennar þurfti hjálp með heim- ilið. Þegar mamma var búin að koma börnum sínum á legg hóf hún störf á Kleppsspítala sem var í göngufæri við Hjallaveg- inn. Í framhaldi af þeim störf- um hóf hún nám sem sjúkraliði og nú deildum við námsbókum þar sem ég var í kennaranámi á sama tíma. Mamma vann sem sjúkraliði til sjötugs. Flug- hræðsla fylgdi henni alla tíð, það var óheppilegt þar sem hún var frá Vestmannaeyjum og langaði oft að skreppa til Eyja en Herjólfur gekk þá frá Reykjavík og löng sigling fyrir Reykjanesið. Hún herti sig þó upp og fór í nokkrar utan- landsferðir. Hún kom til dæmis í heimsókn til okkar til Dan- merkur með móður sína og Beggu Halla. Við leigðum bíl og ferðuðumst um, yndislegar minningar eru um þá ferð. Mamma og pabbi hófu upp- byggingu Bræðraborgar á Stokkseyri og varð það þeirra sælureitur. Þar naut fjölskyld- an þess að vera saman við leik og störf. Okkar samverustundir urðu líka margar í okkar sum- arhúsi í Vaðnesi, þar fannst henni hún vera á 5 stjörnu hót- eli og þar bakaði hún flatkökur fyrir 90 ára afmælið sitt. Hún dvaldi þar í viku um síðustu páska. Eftir andlát pabba keypti hún sér íbúð í lyftuhúsi á Strikinu í Garðabæ en þá var Auður nágranni hennar flutt þangað og fylgdust þær því að og með hvor annarri. Hún átti góðar vinkonur í frænkum sín- um Mundu, Möggu, Ástu og Dóru, þær spiluðu saman í mörg ár. Ásta og Dóra spiluð við hana fram á síðasta dag og þökkum við innilega fyrir þeirra umhyggju. Samheldni systkinanna frá Reykjum entist alla ævina og talaði mamma alltaf um strákana sína. Mamma prjónaði mjög mikið alla ævi og minnast margir í stórfjölskyldunni barnasokk- anna, hún prjónaði þá síðustu viku fyrir andlátið. Hún nefndi það við mig núna fyrir stuttu að hún þyrfti að fá garn í peysu það væri meðfærilegra en sokk- arnir. Það eru forréttindi að halda reisn til síðustu stundar og það gerði mamma en lík- aminn var orðinn slitinn eftir langa ævi. Hvíl í friði, elsku mamma mín, takk fyrir allar okkar sam- verustundir. Minningarnar eru ljósið í líf- inu. Vigdís og Sigurður. Margs er að minnast þegar komið er að leiðarlokum hjá elsku mömmu. Flestar snúast minningarnar um þessi daglegu samskipti, ógleymanlegar veislurnar sem hún hélt fyrir okkur, matar- gerðin, jólakökurnar, pönnu- kökurnar og ekki síst allar samverustundirnar með pabba og mömmu á Stokkseyri. En það mikilvægasta af öllu er það að mamma hefur alltaf verið til staðar fyrir okkur börnin henn- ar og barnabörnin. Allt fram á síðasta dag gat maður leitað til mömmu með ráðleggingar um alla mögulega og ómögulega hluti og oftar en ekki hafði hún sterkar skoðanir á hlutunum. Áhugi mömmu og væntum- þykja fyrir börnum og barna- börnum sínum var ósvikin og fylgdist hún alltaf vel með sínu fólki og hvatti áfram í námi og starfi. Ekki vantaði heldur upp á að hún væri með alla afmæl- isdaga á hreinu og passað vel upp á að hafa samband og senda einhvern glaðning. Mamma var alltaf mikil hannyrðakona og saumaði mik- ið á börnin sín á árum áður. Ýmis útsaumur og prjónaskap- ur liggur eftir hana auk þess sem ófá ungbörnin hafa fengið sokka frá henni. Ef tími gafst til fannst henni fátt skemmtilegra en grípa í spil. Þeir eru ófáir sem hafa spilað með mömmu í gegnum tíðina en þar má helst nefna hennar góðu frænkur og vin- konur frá Vestmannaeyjum þær Ástu, Dóru, Möggu og Mundu auk þess sem Jón Grét- ar hefur tekið með henni ófáa slagi. Þó að mamma væri alltaf fyrst og fremst Vestmannaey- ingur og fylgdist alltaf grannt með því hvað væri að frétta af strákunum og öðrum í Eyjum þá hafði hún mjög sterkar taugar til Stokkseyrar eftir að hún og pabbi eignuðust þar hús og gerðu upp. Ósjaldan hélt hún því fram að þar væri besta umhverfið, besta veitingahúsið og jafnvel besta veðrið. Elsku mamma, við þökkum þér allar yndislegu samveru- stundirnar og allan stuðninginn í gegnum tíðina. Hvíldu í friði, Guðjón Þór Victorsson og fjölskylda. Í dag er til moldar borin elskuleg tengdamóðir mín Jó- hanna Guðjónsdóttir eða Jó- hanna á Reykjum eins og hún var oft kölluð. Mér er það ljúft að minnast þeirra fjölmörgu ánægjustunda sem við áttum saman með fjölskyldu minni. Okkar fyrstu kynni voru í Fellsmúlanum árið 1977, Jó- hanna og Victor tóku mér strax opnum örmum en þangað hafði mér verið boðið í sunnudags- mat. Jóhanna var einstök að gæð- um og alla tíð hugsaði hún fyrst og fremst um velferð og þarfir annarra langt umfram sínar eigin, hennar heitasta ósk var að fjölskyldunni liði vel. Hugur hennar var oft í Vestmanna- eyjum hjá bræðrum hennar og fjölskyldum þeirra. Það er ekki auðvelt að nefna eitthvað eitt sem sker sig úr þessi 40 ár sem við Jóhanna þekktumst, það væri þá helst að nefna Bræðra- borgina á Stokkseyri þar sem Jóhanna og Victor áttu ótal- margar ánægjustundir. Þar hittist stórfjölskyldan gjarnan og Jóhanna bakaði þar sínar frægu pönnukökur. Hún hafði mikinn áhuga á barnabörnun- um sínum og langömmubörnum og fylgdist ætíð vel með hvað hvert og eitt þeirra var að gera hverju sinni. Við fjölskyldan eigum margar skemmtilegar minningar með Jóhönnu og Victori, t.d. ferðalög bæði inn- anlands og utan. Má þar nefna margar ferðir til Vestmanna- eyja og sumarbústaðaferðirnar austur á land, á Einarsstaði og Lón. Í þessum ferðum fékk Benzinn hans Victors að smyrja upp á ventlana eins og hann kallaði það. Einnig eru mér minnisstæðar ferðirnar til Kanaríeyja og Þýskalands. Jóhanna eyddi ófáum stund- um í að spila við vini og vanda- menn ásamt því að prjóna sokka allt fram á síðasta dag. Síðustu æviárin eftir að Victor féll frá bjó hún á Strikinu 8 í Garðabæ. Dugnaðurinn og ákveðnin leyndi sér ekki, hún vildi og ætlaði sér að búa þar áfram. Elsku Jóhanna mín, nú er komið að kveðjustund. Blessuð sé minning þín. Þinn tengdasonur, Ævar Valgeirsson. Jóhanna tengdamamma mín hélt nýverið upp á 95 ára af- mælið sitt. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir sáu sér fært að gleðjast með henni á þessum tímamótum. Nú er hún fallin frá þremur vikum síðar. Ég kynntist Jóhönnu fyrir 40 árum þegar leiðir okkar Lilju Dóru lágu saman. Jóhanna tók mér strax mjög vel og ein- kenndust samskipti okkar alveg frá upphafi af gagnkvæmri virðingu og hjálpsemi. Þær eru ófáar gleði- og ánægjustundirn- ar sem við fjölskyldan áttum með Jóhönnu og Victori. Allir komu saman í Fellsmúlanum, þar sem Jóhanna var bæði samnefnarinn og límið sem öllu hélt saman. Einnig eru hinar stundirnar ekki síður eftir- minnilegar, þegar fjölskyldan safnaðist saman í sumarbú- staðnum á Stokkseyri, þar sem Jóhanna og Victor byggðu sér sælureit með aðstoð barna og tengdabarna, þar sem há tré veita nú skjól fyrir vindum. Jóhanna var ákaflega mikil fjölskyldumanneskja. Hún fylgdist með afmælisdögum allra í stórfjölskyldunni og sá til þess að allir fengju glaðning við hæfi. Jólin hennar voru líka sannkölluð hátíð ljóss og friðar sem við nutum með henni. Hún lét sig miklu varða hvernig fólki leið og farnaðist í lífinu. Gladdist yfir sigrum sinna nán- ustu og annarra og tók þátt í að aðstoða þá sem þess þurftu með. Jóhanna varð fyrir þungbær- um sorgum í lífinu þegar hún missti systur sína og síðar tvær dætur úr veikindum og bróður sinn af slysförum auk annarra áfalla. Þessi áföll mörkuðu líf hennar alla tíð. En Jóhanna var gædd miklum mannkostum sem leiddu hana í gegnum þessar raunir. Samkennd og væntum- þykja vagnvart náunganum, ásamt heiðarleika voru eigin- leikar sem einkenndu líf henn- ar. Hún lifði líka mjög reglu- sömu lífi og var okkur mikil fyrirmynd í þeim efnum. Jóhanna hélt fullri andlegri reisn alveg fram á síðasta dag, en líkamlega þrekið var farið að bresta. Fljótlega eftir að Victor féll frá, fyrir sjö árum, flutti Jóhanna á Strikið í Garðabæ. Það var Jóhönnu mikils virði að geta verið sem lengst heima og studdu börnin hana í því með daglegri aðstoð og umhyggjusemi. Nýverið varð ljóst að hún gæti ekki haldið heimili ein og beið hún eftir vistunarúrræði þegar hún lést. Endalokin komu nokkuð óvænt og tók hún þeim af æðruleysi með öll börnin sín við dánarbeðinn. Jóhönnu verður sárt saknað sem svo lengi hefur verið stór hluti af tilverunni í gegnum mikil og oft dagleg samskipti. Í dag leita margar minningar á hugann, góðar minningar sem gott er að eiga um góða konu. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði. Halldór Frímannsson. Jóhanna Guðjónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Jóhannu Guðjóns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GISELA FR. E. STEFFEN, húsmóðir og fatahönnuður, Hamraborg 16, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 28. júní. Hún verður jarðsungin frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 11. júlí klukkan 14. Ingimundur Einarsson Stefán Einarsson Arna Ævarsdóttir Tómas Einarsson Hanna Júlía Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulega móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA SÍMONARDÓTTIR, lést 3. apríl í Denver, Colorado, og verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju föstudaginn 7. júlí klukkan 16. Rúnar Ásgeirsson Hafdís Garðarsdóttir Haukur Ásgeirsson Pauline Martin Ása Ásgeirsdóttir Rick Cote Ásgeir Ásgeirsson Cindy Sigurðsson Sigurður Ásgeirsson Beth Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, AÐALHEIÐUR KJARTANSDÓTTIR, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarðsungin frá Voðmúlastaðakapellu, Austur-Landeyjum, laugardaginn 8. júlí klukkan 14. Viðar Marmundsson Bóel Ágústsdóttir Hjördís Marmundsdóttir Ingvi Ágústsson Gunnar Marmundsson Guðrún Óskarsdóttir Ingibjörg Marmundsdóttir og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNEA G. HANNESDÓTTIR WAAGE lést þriðjudaginn 4. júlí. Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 10. júlí klukkan 13. Edda Vilborg Guðmundsd. Elías Sv. Sveinbjörnsson Ágúst Guðmundson Elísabet Waage Kristín Waage Reynir Þór Finnbogason barnabörn og barnabarnabörn. Okkar yndislegi ÓLI ÓLAFSSON, Óli í Holti, sjómaður, sem andaðist mánudaginn 3. júlí, verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju sunnudaginn 9. júlí klukkan 14. Lilja Þórarinsdóttir og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.