Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017 Guðmundur fæddist í Reykjavík og útskrifaðist sem leikari 1968.Hann hefur starfað mikið með Sjálfsbjörg, SEM-samtökunumog var formaður Örykjabandalagsins 2008-2013. Hann hefur leikið töluvert, leikstýrt og kennt leiklist og framsögn, en er ekkert að daðra við Talíu sem stendur: „Ég er fjári góður leikari en leik- stjórn hefur aldrei verið mín köllun. Þar vantar mig skipulagningu og einbeitingu.“ Eru alltaf jafnpólitískur Guðmundur? „Já, já. Ég var í KSML á mínum yngri árum. Það voru ekki Kristi- leg samtök milla og lávarða, eins og unga fólkið gæti haldið, heldur Kommúsistasamtökin marxistarnir-lenínistarnir, og við seldum mál- gagnið fyrir utan ÁTVR á föstudögum og laugardögum. Ég varð svo stofnfélagi í Vinstri-grænum og varaþingmaður þeirra en leiddi svo lista Alþýðufylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í kosningum 2016.“ Ertu jafnróttækur og þú varst þegar þú seldir Stéttabaráttuna? „Já, ég er svo íhaldssamur að ég hef ekkert skipt um skoðun.“ En hvernig leggst aldurinn í þig á þessum tímamótum? „Mjög vel. Það er stórkostlegt að verða sjötugur, því sá sem ekki vcrður sjötugur, 70 árum eftir fæðingu, hlýtur að vera dauður. Ég held að það sé miklu skemmtilegra að vera sjötugur en að vera dauð- ur. Annað er ekki í boði.“ Hvað á að gera á afmælisdaginn? „Borða góðan mat og láta synina, Steina og Magnús, stjana við mig.“ Morgunblaðið/Kristinn Á Alþingi Geir Haarde býður Guðmund velkominn á þing, árið 2005. Þingmennirnir Þuríður Backman og Birgir Ármannsson fylgjast með. Gamli góði komminn Guðmundur Magnússon er sjötugur G ísli Norðdahl fæddist á Úlfarsfelli í Mosfells- sveit 6.7. 1947. Þar ólst hann upp til sjö ára aldurs en flutti 1954 til Innri-Njarðvíkur og Kefla- víkur. Gísli var vinnumaður í sveit í sex sumur hjá Hauki, móðurbróður sín- um, og Sigurbjörgu, konu hans, á Stóru-Reykjum í Flóa, til 16 ára aldurs: „Á þessum árum stóð sum- ardvöl krakka í sveit yfir í fjóra til fimm mánuði, frá vori og fram yfir réttir sem þá voru seinni partinn í september. Ég dvaldist því á Stóru-Reykjum í samtals á þriðja ár. Síðan tók við sumarvinna á skólaárunum í bæjarvinnu, við byggingarvinnu, skipasmíðar, síld- arvinnslu o.fl.“ Gísli tók landspróf frá gagn- fræðaskóla Keflavíkur 1963 og stúdentspróf frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1967. Hann gerði hlé á námi í nokkur ár og var þrjú ár gæslumaður á Kleppi og eitt ár við launaútreikninga hjá Ríkisspítölum. Síðan stundaði hann nám í Tækni- skóla Íslands og lauk prófi í bygg- ingartæknifræði 1975. Hann sótti auk þess fjölmörg námskeið og ráð- stefnur um það sem starfi hans til- heyrði, er með löggildingu í gerð eignaskiptayfirlýsinga og lauk prófi í rekstrar- og viðskiptanámi frá HÍ 1994. Að námi loknu vann Gísli tæp tvö ár á tæknideild Kópavogsbæjar og svo tvö ár hjá Fasteignamati ríkisins. Hann hóf störf sem bygg- ingarfulltúi í Kópavogi 1979 og starfaði við það í 38 ár. Grúskari af guðs náð Gísli hefur gegnt ýmsum félags- störfum, er félagi í Rótarýklúbbn- um Borgum í Kópavogi, var for- Gísli Norðdahl, fyrrv. byggingarfulltrúi – 70 ára Í Lundi í Svíþjóð Hér er fjölskyldan kampakát úti að borða og fagna MS-gráðu Urðar í lýðheilsufræði frá Háskól- anum í Lundi, árið 2014. Talið frá vinstri: Urður, Rúna Bjarnadóttir, Arna og Gísli Norðdahl. Margvís sérfræðingur í byggingarmálum Reykjavik Iðunn Sigurborg Baldvinsdóttir fæddist 25. júlí 2016 kl. 15.49. Hún vó 3545 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Fann- ey Elísabet Ragnarsdóttir og Baldvin Freyr Þor- steinsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.