Morgunblaðið - 06.07.2017, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 2017
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Við tókum upp setningarathöfnina
og náðum þar einhverri fjölmenn-
ustu senu íslenskrar kvikmynda-
sögu,“ segir Gunnar Helgason rit-
höfundur þegar blaðamaður nær
tali af honum þar sem hann var
staddur á Orkumótinu í Vest-
mannaeyjum í tökum fyrir kvik-
myndina Víti í Vestmannaeyjum.
Kvikmyndin er byggð á samnefndri
skáldsögu sem er fyrsta bókin í
metsölubókaflokki Gunnars um Jón
Jónsson og félaga hans. Bragi Þór
Hinriksson, sem áður hefur m.a.
leikstýrt kvikmyndunum vinsælu
um Sveppa, Villa og Góa, leikstýrir
Víti í Vestmannaeyjum en sjálfur
segist Gunnar vera fótbolta-
„choreographer“.
Samhliða tökum á kvikmyndinni
eru þeir að taka upp sjónvarpsþætti
þar sem meiri áhersla verður lögð á
sögu ákveðinnar persónu. „Við
ákváðum á síðustu stundu að skrifa
aukasögu um Rósu. Hún lendir í
þeirri aðstöðu að geta bjargað lið-
inu sínu með því að spila en það er
náttúrlega ekki leyfilegt. Þættirnir
munu því snúast meira um hennar
baráttu fyrir því að fá að spila á
mótinu,“ segir Gunnar og hrósar
leikkonunni Íseyju Heiðarsdóttur í
hástert, en hún er 11 ára gömul fót-
boltastelpa úr Vestmanneyjum og
fer með hlutverk Rósu.
Mikil orka á settinu
„Þetta er öðruvísi en að vinna
með fullorðnum,“ segir Gunnar þeg-
ar hann er spurður að því hvernig
sé að vinna með börnunum. „Þau
eru náttúrlega bara frábær. Það er
mikil orka á settinu, um leið og tök-
um lýkur vilja þau ólm fara að spila
fótbolta. Þetta eru góðir krakkar
sem við erum með og frábærir ein-
staklingar svo þetta er bara ógeðs-
lega gaman.“
Gunnar segir Braga duglegan að
fókusa á hvernig hægt sé að ná sem
mestu út úr mótinu sjálfu. „Við er-
um að skjóta senur sem gerast á
mótssvæðinu til að ná mannfjöld-
anum og þessum flotta bakgrunni.
Við förum á kvöldvökurnar og liðið í
kvikmyndinni, Fálkar, spilar alvöru-
leiki.“ Að sögn Gunnars eru Fálkar
búnir að spila leik við liðið Þór frá
Akureyri sem var allur tekinn upp.
„Leikurinn var stórkostlegur. Við
tökum fótboltann aðeins öðruvísi
upp, við kannski eltum eina persónu
og sjáum hvernig henni líður í
leiknum því gangur leiksins hefur
svo áhrif á framvindu sögunnar ut-
an vallar.“
Geta valið úr mörkum
Hann segir Þórsarana hafa staðið
sig frábærlega og þeir hafi meðal
annars fengið atriði sem þá
dreymdi ekki um að fá. Þó að vænt-
ingarnar hafi verið miklar hafi leik-
urinn tekist helmingi betur en þeir
væntu.
– En eru úrslit leikjanna fyrir-
fram ákveðin?
„Nei, úrslitin voru ekki ákveðin
fyrirfram en okkur vantaði þrjú
mörk í leikinn. Við fengum sex svo
nú getum við valið úr.“
Aðspurður hvort ekki verði trufl-
un frá mannfjöldanum af mótinu
segir Gunnar svo ekki vera. Börnin
séu mjög kurteis og sætti sig við
það ef þau eru beðin að hafa lægra.
„Það eru allavega allir kátir ennþá
eftir einn dag á mótinu. Ég held að
börnunum finnist þetta bara ennþá
meira spennandi mót fyrir vikið.“
Gunnar vill þakka þátttakendum
á Orkumótinu og aðstandendum
þeirra fyrir að taka þátt í ævintýr-
inu með þeim. „Það gladdi mig ólýs-
anlega þegar við vorum búin að
taka upp kvöldvökuna og strákarnir
hópuðust upp á svið til mín til að
segja mér að þetta hefði verið geð-
veikt gaman og einn hreinlega
öskraði á mig að þetta hefði verið
besta kvöld lífs síns.“
Eyjarnar skarta sínu fegursta
Gunnar segir tökuliðið hafa verið
frekar heppið með veður fyrir utan
fyrstu tökudagana áður en mótið
hófst þegar það var hálfgert óveður.
„Upptökurnar töfðust þá aðeins en
við erum búin að vinna það upp nú
þegar. Undanfarnir dagar eru svo
búnir að vera alveg dásamlegir,
eyjarnar skarta sínu fegursta sem
er stórkostlegt fyrir myndina.“
Að lokum nefnir blaðamaður að
Þórhallur Gunnarsson, aðalfram-
leiðandi hjá Sagafilm, hafi nýlega
haft orð á því í útvarpsþættinum
Magasín á K100 að kvikmyndin
væri jafnvel á leið í útrás. „Ég veit
ekkert um þessa útrás, ég las þetta
bara á mbl.is og veit ekkert meira
en það. Sagafilm er stórt og öflugt
fyrirtæki. Þau eru góð í þessu og ég
bara treysti því að þetta fari um all-
an heim, það er minn draumur. Þór-
hallur ýjaði að því að ég væri með
miklar væntingar og það er alveg
rétt hjá honum,“ segir Gunnar og
að hann hefði mikla trú á verkefn-
inu sem hefði bara aukist eftir að
tökur hófust. „Ég er alveg viss um
að þetta verður stórkostleg kvik-
mynd. Er eitthvað skrýtið að segja
það?“ spyr hann að lokum og hlær.
Ljósmyndir/Sagafilm
„Mikil orka á settinu“
Gunnar Helga-
son er á fullu við
tökur á Víti í Vest-
mannaeyjum
Fræg Leikmenn Fálka og Fylkis fá stjörnur í augun þegar þeir hitta Margréti
Láru Viðarsdóttur, landsliðskonu í knattspyrnu, á bryggjunni í Eyjum.
Hressir Gunnar Helgason eldhress að vanda með nokkrum ungum leikurum
kvikmyndarinnar, þeim Páli Steinari, Viktori, Lúkasi og Róberti.
Búningalausir Leikmenn Fálka
þurfa að spila fyrsta leik móts-
ins í venjulegum fötum.
Í dag, fimmtudag, klukkan 17 verð-
ur opnuð í Flóa í Hörpu myndlistar-
sýningin Háflæði. Á henni eru verk
sjö ungra íslenskra listamanna sem
sýna málverk, teikningar skúlptúra
og innsetningu. Listamennirnir eru
þau Dýrfinna Benita, Qwick, Aðal-
heiður Daly, Ýmir Grönvold, Krist-
ín Morthens, Rögnvaldur Skúli og
Nanna MBS. Hluti hópsins hefur
áður sýnt í Hörpu undir sama heiti
fyrir fjórum árum.
Í texta í sýningarskrá skrifar
Guðmundur Oddur, Goddur, meðal
annars: „Þessi kynslóð sem hér sýn-
ir […] vill betri heim. Hún vill skapa
sér rými fyrir frjálst flæði án út-
skýringa eða réttlætinga fræði-
kenninga þar sem skrifin verða
fyrirferðameiri en listaverkin. Þau
sýna ekki hræðslu fyrir komandi
tímum.“
Ungir myndlistarmenn sýna í Hörpu
Morgunblaðið/Einar Falur
Háflóð Listamennirnir í Flóa, salnum í
Hörpu þar sem þeir sýna verk sín.
Tónlistarmaðurinn Teitur Magnús-
son heldur tónleika á Húrra í
kvöld og mun á þeim syngja og
spila lög af væntanlegri breiðskífu
sinni sem kemur út í haust. Teitur
kemur fram ásamt hljómsveit en
áður en að tónleikunum kemur
mun Árni Vilhjálmsson, þekktur af
störfum sínum með leikhópnum
Kriðpleir og hljómsveitinni FM
Belfast, koma fram en hann er að
leggja lokahönd á sína fyrstu sóló-
plötu.
Á milli tónleika þeirra Árna og
Teits mun ljóðskáldið Lommi lesa
upp ljóð en hann gaf nýverið út
ljóðabókina Sprungur.
Húsið verður opnað kl. 20 og
dagskrá hefst kl. 21.
Teitur, Árni og Lommi á Húrra
Vinir Árni og Teitur verða á Húrra í kvöld
og líka ljóðskáldið Lommi.
SÝND KL. 5, 8, 10. 40
SÝND KL. 10.20
SÝND KL. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL.
TAL
SÝND KL. 2
ÍSL. 2D KL. 2, 4, 6
ÍSL. 3D 2, 4
ENSK. 2D KL. 6, 8, 10
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
Um 3000
þjónustufyrirtæki
eru á skrá hjá
finna.is