Morgunblaðið - 31.07.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017
Netverð á mann frá kr. 133.975 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í svítu. Netverð á mann
frá kr. 168.775 m.v. 2 fullorðna í svítu.
Marconfront
Benidorm Suites
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
11. ágúst í 11 nætur
BENIDORM
afsláttur allt að
25.000 kr.
á mann
Frá kr.
133.975
m/allt innif.
Bókaðu sól á
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hafnarstræti Hostel hóf nýverið
starfsemi í Amaro-húsinu við Hafn-
arstræti á Akureyri. Farfuglaheim-
ilið er sérstakt að því leyti að þar
sofa gestir ekki í hefðbundnum
rúmum eða kojum, heldur eru þar
svonefnd svefnhylki þar sem gestir
geta lokað að sér.
Hafnarstræti Hostel er stærsta
farfuglaheimili á Íslandi sem býður
gistingu í svefnhylkjum. Þegar er
starfræktur slíkur gististaður í
Reykjavík, Galaxy Pod Hostel á
Laugavegi. Einnig eru nokkur
svefnhylki í Gistihúsinu Hamri í
Vestmannaeyjum. Hið nýja far-
fuglaheimili er þannig fyrsti gisti-
staðurinn af þessari gerð á Norður-
landi.
Meira næði fyrir gestina
Sandra Harðardóttir, eigandi far-
fuglaheimilisins, segir að sérstaða
þess felist í því að þar sé ögn meira
næði fyrir gesti. Að öðru leyti sé
þar öll hefðbundin þjónusta far-
fuglaheimilis, innifalinn morg-
unverður, sameiginlegur matsalur,
baðherbergi og eldhús.
Enn er aðstaðan í mótun en ætl-
unin er að bjóða gistingu fyrir 84 í
einu. Hægt er að velja um einbreiða
eða tvíbreiða klefa, en þeir eru
framleiddir af kínverska fyrirtæk-
inu Peng Heng sem einnig rekur
gistihúsakeðju þar í landi.
„Það er meira næði fyrir gestina
hjá okkur. Þú færð bara þitt hylki
og getur lokað að þér. Í hylkinu er
sjónvarp, öryggisskápur og allt til
alls,“ segir Sandra. Klefunum má
læsa utan og innan frá og í þeim eru
uppábúin rúm og loftræsting. Þar
eru einnig rafmagnsinnstungur,
heyrnartól og lýsing.
„Þetta mælist rosalega vel fyrir.
Við höfum bara fengið góðar um-
sagnir og fólk verið ánægt. Við er-
um enn að koma þessu af stað og
klára undirbúninginn,“ segir
Sandra. „Eins og við leggjum þetta
upp reynum við að bjóða gistingu á
hagstæðu verði þannig að fólk geti
leyft sér aðeins meira yfir daginn,
drukkið fleiri kaffibolla eða farið út
að borða á dýrari stað o.s.frv.“
Ljósmynd/Hafnarstræti Hostel
Svefnhylki Hægt er að velja um tvær tegundir; fyrir einstaklinga eða pör.
Sérstakur gististaður
opnaður á Akureyri
Sá fyrsti á Norðurlandi Svefnhylki innflutt frá Kína Umræða í lokuðum hópi skotveiði-
manna á Facebook sýnir óánægju
með ákvörðun V-Húnaþings um að
rukka gæsaveiðimenn fyrir veiðar á
Víðidalstunguheiði ásamt því að
banna hunda. „Okkur finnst þrengt
að okkur skotveiðimönnum. Það
hlýtur að hafa myndast einhver hefð-
arréttur, en menn hafa verið að
skjóta þarna í tugi ára,“ segir Sigfús
Heiðar Árdal, sem hóf umræðuna í
hópnum, í samtali við Morgunblaðið.
Stjórn Skotvíss hefur gefið út yfir-
lýsingu á heimasíðu félagsins um
málið, en þar segir m.a.: „… hlýtur
það að vera umhugsunarefni fyrir
íbúa sveitarfélaga ef það er farið að
takmarka afnot íbúa þess og/eða
rukka fyrir afnot af svæði sem hefur
í áranna rás verið talinn réttur hvers
og eins í að afla sér matar í íslenskri
náttúru“.
Júlíus Guðni Antonsson, sem fer
með eftirlit á svæðinu f.h. sveitar-
félagsins, sagði að þetta hefði verið
ákveðið m.a. til að mismuna ekki
rjúpna- og gæsaveiðimönnum, en
rukkað sé fyrir rjúpuna. Hunda-
bannið gilti á meðan búfénaður væri
á afrétti. ernayr@mbl.is
Skyttum finnst
þrengt að sér
V-Húnaþing vill rukka fyrir gæs
Morgunblaðið/Ingó
Gæs Hundar ekki lengur velkomnir
á veiðarnar á Víðidalstunguheiði.
Jökulhlaupið í
Múlakvísl á
Mýrdalssandi er
yfirstaðið. Raf-
leiðni nálgast
smám saman
eðlileg mörk en
fólk er hvatt til
þess að sýna að-
gát við upptök
árinnar vegna mögulegs gasút-
streymis. Kemur þetta fram í til-
kynningu frá Almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra.
Að sögn sérfræðings á vakt hjá
Veðurstofu Íslands var flóðið
metið yfirstaðið eftir að rætt var
við Vegagerðina ásamt því að
skoða vefmyndavél, rafleiðni í
ánni og vatnshraðamæli. Raf-
leiðnin mældist í gær 150 μS/cm,
sem er miðgildið fyrir júlí. Ekki
þurfti að loka þjóðveginum vegna
hlaupsins, en lítið rof kom í
varnargarðinn við Múlakvísl. Þá
var litakóða fyrir Kötlu breytt í
gult í fyrradag og hefur Veður-
stofan ákveðið, þrátt fyrir að
skjálftavirkni þar sé nú innan
eðlilegra marka, að færa lita-
kóðann ekki aftur í grænan.
Jökulhlaupið í Múla-
kvísl yfirstaðið og
rólegt við Kötlu
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Þó að maður myndi gjarnan vilja
óska ykkur sólar þarna á Suður-
landi þurfum við á henni að halda
hérna,“ segir Eymundur Magnús-
son, kornbóndi í Vallanesi á Fljóts-
dalshéraði. Hann segir blikur á
lofti varðandi uppskeru hjá sér, en
hefur séð dagamun á korninu síð-
ustu vikuna og vonar það besta.
„Kornið er svolítið frekt og þarf
bara ákveðið magn af sól til að
þroskast. Það er vonandi að þessi
norðanátt núna staldri ekki lengi
við. Þessir góðu dagar mættu
verða fleiri,“ segir Eymundur.
Kornið skriði og lítur vel út
Annars staðar á landinu eru
horfurnar nokkuð góðar hvað korn-
uppskeru varðar. Á Þorvaldseyri
undir Eyjafjöllum lítur kornið
mjög vel út, að sögn Ólafs Egg-
ertssonar. „Því fer vel fram þessa
hlýju sumardaga, það er búið að
vera þungbúið yfir og ekki sérlega
hlýtt, en nú er kornið allt skriðið
og þetta lítur bara mjög vel út,“
segir Ólafur. Þórarinn Leifsson á
bænum Keldudal í Skagafirði segir
útlitið glimrandi gott, en tíðin í
ágústmánuði muni skipti miklu
máli. „Það er nauðsynlegt að fá sól
og hita í ágúst. Korn dafnar ekki
nema hitinn sé yfir tíu gráður. Svo
má alls ekki verða næturfrost, þá
er allt ónýtt. Oft fer þetta ekki
saman, því eftir góðan dag getur
komið næturfrost,“ segir Þórarinn
ennfremur.
Sáningu var lengi frestað í
Borgarfirði vegna bleytu
Hann er þó alls ekki svartsýnn,
enda búinn að rækta korn síðan
1996 án þess að verða fyrir upp-
skerubresti.
Haraldur Magnússon á Belgs-
holti í Borgarfirði þurfti að fresta
sáningu umtalsvert vegna bleytu.
„Ég byrjaði ekki að sá fyrr en 6.
maí og hef aldrei byrjað svona
seint,“ segir Haraldur. Þrátt fyrir
það segir hann útlitið á korninu
nokkuð gott. Þó á hann ekki von á
að það verði mikill ágústsláttur, en
það fari hins vegar algjörlega eftir
tíðinni.
Kornið sprettur víðast vel
Kornið er frekt og þarf ákveðið magn af sól, segir Eymundur bóndi í Vallanesi
Hefur séð dagamun á korninu síðustu vikuna Lofar góðu undir Eyjafjöllum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Uppskera „Þessir góðu dagar mættu verða fleiri,“ segir Eymundur Magn-
ússon kornbóndi í Vallanesi, en hann hefur áralanga reynslu.
Hafnarstræti Hostel er á annarri
hæð Amaro-hússins, sem er eitt af
þekktari húsum Akureyrar. Þar var
um árabil rekin stórverslunin Am-
aro. Nú er í húsinu fjölbreyttur
verslunar- og þjónusturekstur. Á
annarri hæðinni voru áður sjón-
varpsstöðin N4 og tónlistarskólinn
Tónræktin. Hið nýja farfuglaheimili
nær yfir bæði rýmin sem áð-
urnefnd fyrirtæki voru í. „Akureyr-
ingar eru mjög stoltir af Amaro og
það er gaman að fá tækifæri til að
vera með rekstur í húsi með sögu
og vera í miðbænum líka,“ segir
Sandra.
Sögufræg bygging
Á ANNARRI HÆÐ AMARO-HÚSSINS