Morgunblaðið - 31.07.2017, Qupperneq 29
Gestir Endurútgáfa bókarinnar vakti athygli margra og viðstaddir fylgdust spenntir með kynningu og lestri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
» Endurútgáfu bókarinnarKonan í dalnum og dæt-
urnar sjö eftir Guðmund G.
Hagalín var fagnað í Eymunds-
son Austurstræti um helgina.
Hrafnhildur Hagalín, rithöf-
undur og dótturbarn höfundar,
las úr bókinni sem kom fyrst út
1954 og rekur sögu Moniku
Helgadóttur á Merkigili í Aust-
urdal. Þá var Monika 53 ára að
aldri og bjó á hinu afskekkta
býli með sjö dætrum og einka-
syni. Í sex áratugi hefur bókin
verið umsetin í fornbókaversl-
unum og á bókasöfnum. Bóka-
útgáfan Sæmundur gefur bók-
ina út og fylgir hún nákvæmri
eftirgerð fyrri útgáfu með
stuttum eftirmála sem unninn
er í samvinnu við Skarphéðin
Jóhannesson, einkason Mo-
niku.
Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín endurútgefin
Upplestur Hrafnhildur Hagalín rithöfundur las upp úr bókinni.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017
Kviðdómur í Los Angeles hefur
komist að þeirri niðurstöðu að dán-
arbú Michaels Jacksons beri að
greiða Quincy Jones 9,4 milljónir
dala (um 976 milljónir ísl. kr.) í vand-
goldnar höfundarréttargreiðslur
vegna laga á borð við „Billie Jean“
og „Thriller“. Samkvæmt frétt The
Guardian fór Jones fram á 30 millj.
dala í málsókn sem hann höfðaði fyr-
ir nærri fjórum árum, en á móti bauð
dánarbúið ríflega 390 þúsund dali.
„Málsóknin snerist aldrei um
Michael, heldur um að standa vörð
um vinnuna sem við unnum öll í upp-
tökuverinu og arfleifðina sem við
sköpuðum. Þó að niðurstaðan sé
langt frá því sem ég sóttist eftir er
ég þakklátur kviðdómnum fyrir að
dæma mér í hag,“ skrifar Jones í yf-
irlýsingu. Howard Weitzman, lög-
maður dánarbúsins segist gáttaður á
niðurstöðunni sem verði áfrýjað.
„Við erum vonsvikin“.
Við dómshaldið réðist Weitzman
harkalega að Jones og sagði hann
þegar hafa grætt nóg á Jackson, en
tekjur Jones af umræddri tónlist
voru 8 millj. dala fyrstu tvö árin eftir
andlát Jackson samanborið við 3
millj. síðustu tvö árin sem hann lifði.
„Þú átt ekki skilið að fá launahækk-
un. Þú getur ekki fengið meira af
peningum Michaels Jackson,“ sagði
Weitzman m.a. við Jones, sem á móti
svaraði því til að hann væri ekki að
sækjast eftir peningum, heldur við-
urkenningu á framlagi sínu. Þegar
Weitzman við vitnaleiðslur spurði
Jones hvort hann gerði sér ekki
grein fyrir að hann væri í reynd að
fara í mál við Jackson svaraði Jones
reiður: „Ég er ekki að lögsækja
Michael. Ég er að lögsækja ykkur
öll.“ Í dómskjölum kemur fram að
Jones krafði dánarbúið og Sony Mu-
sic Entertainment um greiðslur fyr-
ir framlag sitt á Off the Wall, Thrill-
er og Bad. Í kröfunni var á það bent
að dánarbúið hefði látið endur-
hljóðblanda lögin til að reyna að
svipta Jones réttmætum greiðslum.
Forsvarsmenn dánarbúsins vildu að-
eins greiða Jones fyrir flutningsrétt
laganna, en Jones fór fram á hlut-
deild í heildarinnkomu þeirra. Deilt
var um túlkun samninga frá 1978 og
1985, en Jackson og Jones áttu árum
saman gjöfult samstarf.
Dánarbúinu gert
að greiða Jones
Michael Jackson Quincy Jones
SÝND KL. 8, 10
SÝND KL. 4, 7, 10
SÝND KL. 8SÝND KL. 10.20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ÍSL. 2D KL. 4, 6
ENSK. 2D KL. 4, 6