Morgunblaðið - 31.07.2017, Síða 23
Þá voru líka miklar breytingar í
skólastarfi í borginni undir forystu
Gerðar Óskarsdóttur fræðslustjóra
sem innleiddi einstaklingsmiðað
nám og skóla án aðgreiningar.“
Fjölskyldan flutti í Austur-
Húnavatnssýslu 1976, bjó fyrst á
Syðri-Löngumýri í Blöndudal og
síðan á Reykjum við Reykjabraut.
Þau hófu búskap með blandað bú
en síðan með fjárbú. Á Syðri-
Löngumýri rak Inga Þórunn jafn-
framt bensínsjoppu: „Það voru við-
brigði að flytja upp í sveit á þess-
um tíma. Svarti sveitasíminn á
veggnum og ekkert sjónvarp. Störf-
in voru fjölbreytt og oft vandasöm
en smám saman tæknivæddi nútím-
inn sveitirnar og létti störfin.“
Fjölskyldan flutti síðan til
Reykjavíkur 1999 en þau Þorsteinn
hafa búið í Kópavogi frá 2003.
Inga Þórunn er höfundur að
Orðalind; kennslubók í stafsetn-
ingu, gefin út af Námsgagnastofn-
un 1999 og unnin í samvinnu við
doktor Svanhildi K. Sverrisdóttur.
Inga Þórunn sat í stjórnum og
nefndum innan Kennarasambands
Íslands, var skoðunarmaður
hreppsreikninga í Torfalækjar-
hreppi, hreppsnefndarmaður þar og
ritari og kjörforseti í Kiwanis-
klúbbnum Dyngju í Reykjavík.
Ingu Þórunni var veitt fálkaorð-
an á þjóðhátíðardaginn 2016.
Inga Þórunn segist hafa áhuga á
útivist, zumba, lestri, ferðalögum,
handavinnu og samveru með fjöl-
skyldu og vinum, að ógleymdu
amstri í sumarbústaðnum.
Fjölskylda
Eiginmaður Ingu Þórunnar er
Þorsteinn H. Gunnarsson, f. 16.1.
1946, fyrrv. bóndi. Foreldrar hans
voru Gunnar S. Arnbjörnsson, f. 22.
5. 1912 , d. 14.4. 1970, bifreiðar-
stjóri í Reykjavík, og Aðalheiður
Magnúsdóttir, f. 3.10. 1915, d. 2.8.
1979, húsfreyja og verkakona í
Grindavík. Þau skildu. Fósturfor-
eldrar Þorsteins voru Halldór Ey-
þórsson, f. 21.9. 1924, d. 21.9. 2007,
bóndi á Syðri-Löngumýri, og k.h.,
Guðbjörg Ágústsdóttir, f. 21.8.
1923, d. 2.2. 1974, húsfreyja á
Syðri-Löngumýri.
Börn Ingu Þórunnar og Þor-
steins eru: 1) Erlendur S. Þor-
steinsson, f. 27.5. 1971, reiknifræð-
ingur í Kópavogi en kona hans er
Sonja B. Guðfinnsdóttir lyfjafræð-
ingur og eru barnabörnin Birkir
Örn, f. 2000, Þorsteinn, f. 2004, og
Þórunn, f. 2006; 2) Ágústa Björg
Þorsteinsdóttir, f. 17.12. 1972, ís-
lenskufræðingur í Reykjavík en
maður hennar er Auðunn Atli Sig-
urðsson þjónustustjóri og eru
barnabörnin Elsa Hrönn, f. 1996
(stjúpdóttir), Hrannar, f. 2000, og
Dagur Ólafur, f. 2006; 3) Þórólfur
H. Þorsteinsson, f. 16.10. 1980, lög-
fræðingur í Kópavogi en kona hans
var Katrín Ólöf Böðvarsdóttir, f.
19.11. 1980, d. 22.7. 2015, og eru
barnabörnin Benedikt Arnór, f.
2001, Matthías Örn, f. 2007, Sig-
urður, f. 2004 (stjúpsonur), og Eva,
f. 2007 (stjúpdóttir), en sambýlis-
kona Þórólfs er Guðrún Lovísa
Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Foreldrar Ingu Þórunnar voru
Helga Ingólfsdóttir, f. 9.7. 1928, d.
14.6. 2001, húsfreyja í Hafnarfirði,
og Halldór Guðmundsson, f. 13.2.
1928, d. 1.6. 2004, framkvæmda-
stjóri í Ytri-Njarðvík. Þau skildu.
Stjúpfaðir Ingu Þórunnar var Snæ-
björn Jóhannsson, f. 21.7. 1914, d.
1.1. 2013, cand. mag. og íslensku-
kennari í Hafnarfirði. Hann og
móðir Ingu Þórunnar skildu.
Úr frændgarði Ingu Þórunnar Halldórsdóttur
Inga Þórunn
Halldórsdóttir
Björn Jónsson
b. á Syðri-Þverá
Þórunn Arnórsdóttir
húsfr. á Syðri-Þverá í V-Hún.
Guðmundur Björnsson
b. í Görðum í Garðabæ
Þorbjörg Halldórsdóttir
húsfr. í Görðum í Garðabæ
Halldór Guðmundsson
framkv.stj. í Ytri Njarðvík
Halldór Jónsson
verksmstj. á Álafossi
Gunnfríður Guðlaugsdóttir
húsfr. í Mosfellssveit
Ásbjörg Ingólfsdóttir
skrifstofustj. í Rvík
Katrín
Magn-
úsdóttir
húsfr. á
Víðirhóli
á Hóls-
fjöllum
Erla Ingólfsdóttir,
tanntæknir í Kópavogi
Kristján Johann-
essen blaðam.
við Morgunblaðið
Baldur Jóakim Baldursson innanhússarki-
tekt og kennari við Tækniskólann í Rvík
Magnús Diðrik Baldursson heimspek-
ingur, skrifstofustj. og gæðastjóri HÍ
Oddný Halldórsdóttir húsfr.
Eggert Guðmundsson,
pípulagningam. í Rvík
Haraldur Johannes-
sen lögfræðingur og
ríkislögreglustjóri
Dr. Ingólfur Johannessen kennari við Edin-
borgarháskóla og sérfræðingur í veirufræði
við Háskólasjúkrahúsið í Edinborg
Hanna
Johannessen
húsfr. og
hárgreiðslum.
í Rvík
Baldur
Ingólfsson,
þýskukennari
við MR
Guðrún Halldórsdóttir ljósm. í Rvík
Halldór Steingrímsson,
forstöðum. Reiknings-
halds Landsbankans
Erlendur Erlendsson
skósmiður á Vopnafirði
Ásbjörg Ásbjarnardóttir
húsfr. á Vopnafirði
Ingólfur Erlendsson
skósmiður á Akureyri
Þórunn Elísabet Magnúsdóttir
húsfr. á Vopnafirði
Helga Ingólfsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Magnús Hannesson
b. í Böðvarsdal
Steinunn Runólfsdóttir
húsfr. í Böðvarsdal í Vopnafirði
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017
Pétur Magnús Eiríksson sund-kappi fæddist í Reykjavík 31.júlí 1917. Foreldrar hans voru
hjónin Elísabet Eyjólfsdóttir, f. á
Bíldudal 1896, d. 1988, og Eiríkur Ei-
ríksson kaffibrennslumaður frá
Minni-Völlum á Landi, f. 1882, d.
1963.
Pétur fékk almenna barnaskóla-
menntun og útskrifaðist sem fisk-
matsmaður 1948. Hann vann aðal-
lega sem hleðslustjóri á saltfiski og
skreið á vegum Skreiðarsamlagsins
og SÍF.
Þegar Pétur var á 7. aldursári,
fékk hann berkla í annan fótinn og
auk þess brjósthimnubólgu. Var
hann rúmfastur á fjórða ár. Byrjaði
hann að sækja gömlu sundlaugarnar
og kenndi sjálfum sér að synda til að
öðlast góða heilsu. Hann var orðinn
frækinn sundmaður 16 ára gamall.
Árið 1935 þreytti hann Viðeyjarsund
og synti á 1 klst. og 30 mín. sem var
met sem stóð í áratugi, eða til 1998.
Nítján ára gamall synti Pétur
Drangeyjarsund og tók það hann 5
tíma og 19 mínútur. Hann var þriðji
maðurinn til að synda Drangeyj-
arsund á eftir þeim Gretti Ásmunds-
syni og Erlingi Pálssyni yfirlög-
regluþjóni. Hann synti síðan m.a.
Oddeyrarál 1938, Eyjafjarðarsund
1938, yfir Hafnarfjörð 1939, úr Klett-
shelli í Vestmannaeyjum 1939 og yfír
Siglufjörð 1945.
Pétur starfaði einnig við sund-
kennslu, t.d. í Flatey á Breiðafirði og
kenndi börnunum í eynni að synda í
sjó. Pétur synti nokkrum sinnum
boðsund og keppti þá einn gegn tíu
eða fimmtán manna sveitum. Pétur
fylgdist alla tíð vel með sjósundi Ís-
lendinga og aðstoðaði marga sem
syntu lengri vegalengdir í sjó hér við
land og erlendis, m.a. Eyjólf Jónsson
og Axel Kvaran.
Eiginkona Péturs var Marta Finn-
bogadóttir, f. 5.3. 1922, d. 18.7. 1981.
Foreldrar hennar voru hjónin Finn-
bogi Guðmundsson og Þórunn Gunn-
laugsdóttir. Börn Péturs og Mörtu
eru Þórunn Gunnvör, f. 1943, Sigríð-
ur Eyjólfs, f. 1946, Elísabet, f. 1948,
Eiríkur, f. 1954, og Finnbogi, f. 1959.
Pétur Eiríksson lést 5.7. 1998.
Merkir Íslendingar
Pétur
Eiríksson
85 ára
Bragi Friðþjófsson
80 ára
Ása Guðbjörnsdóttir
Guðrún Eðvaldsdóttir
Hlíf Theodórsdóttir
Ingvi Rafn Jónsson
Jóhanna Kristín
Jónmundsdóttir
Sigurður Steingrímsson
Tómas Halldórsson
Sigurðsson
75 ára
Helga Sigrún Helgadóttir
Kristín Axelsdóttir
Sigurbjörn Pálsson
70 ára
Erling R. Sveinsson
Friðgeir Höskuldsson
Inga Þórunn
Halldórsdóttir
Ingunn Ingvarsdóttir
Magnús Helgi Grönvold
Steinþór Þorsteinsson
60 ára
Björn Einar Gíslason
Garðar Norðdahlsson
Guðbjörn Jón Hilmarsson
Guðlaug Jónsdóttir
Laufey Linda Harðardóttir
Ólafur Einar Jóhannsson
Ómar Baldursson
Steinar Már Gunnsteinsson
Þóra Andrésdóttir
50 ára
Árni Snævarr
Guðmundsson
Freyja Gylfadóttir
Herdís Erna Gunnarsdóttir
Hermann Einarsson
Kristján Pétursson
Piotr Andrzej Reimus
Sara Lind Þrúðardóttir
Vala Steinunn
Guðmundsdóttir
40 ára
Árni Reynir Alfredsson
Halldór Arnarson
Jóhanna Ólafs
Kristrún Rós
Rósmundsdóttir
Ólafur Arnar
Friðbjörnsson
Ólafur Steinn Ingunnarson
Vala Björk Víðisdóttir
30 ára
Ástrós Líf Ástráðsdóttir
Erla Vinsý Daðadóttir
Guðlaugur Ingi
Marteinsson
Haraldur Árni
Hróðmarsson
Helga Kristín Harðardóttir
Júlía Hermannsdóttir
Leonie Maria Karn
Lucia Odorico
Ólöf Sif Ólafsdóttir
Selamawit Worku Sisay
Shanna-Lei Caridad
Dacanay
Sigurður Óskar Jónsson
Svanhildur Ósk
Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Haraldur er Reyk-
víkingur og er knatt-
spyrnuþjálfari hjá Þrótti
Reykjavík og kvikmynda-
og fjölmiðlafr. að mennt
Maki: Íris Dögg Oddsdóttir,
f. 1983, flugfreyja hjá Ice-
landair.
Stjúpbörn: Logi, f. 2005,
og Leó, f. 2010.
Foreldrar: Hróðmar I. Sig-
urbjörnsson, f. 1958, tón-
skáld, og Helga Haralds-
dóttir, f. 1956, skrifstofustj.
hjá atvinnuvegaráðun.
Haraldur Árni
Hróðmarsson
30 ára Júlía er Reykvík-
ingur og er með BA-gráðu
í teikningu frá Parsons-
háskóla í New York. Hún
vinnur hjá Sambandi ís-
lenskra myndlistarmanna
og er söngkona og hljóm-
borðsleikari hljómsveit-
anna Oyama og Vesens.
Foreldrar: Hermann Guð-
jónsson, f. 1952, sérfræð-
ingur hjá Samgöngustofu,
og Bertha Sigurðardóttir,
f. 1953, enskukennari í
Verslunarskólanum.
Júlía Her-
mannsdóttir
30 ára Svanhildur er frá
Núpi undir Eyjafjöllum, en
býr í Reykjavík. Hún er hár-
greiðslukona og rekur Hár-
hönnun á Skólavörðustíg.
Maki: Freyr Sigurðarson, f.
1981, sjálfstætt starfandi
smiður.
Börn: Frigg, f. 2013, og
stjúpdóttir er Ásta Guðrún,
f. 2005.
Foreldrar: Guðjón Jóns-
son, f. 1950, d. 2004, og
Ásta Sveinbjörnsdóttir, f.
1956.
Svanhildur Ósk
Guðjónsdóttir
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • verslun@brynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Skógarmannsöxi
Verð 22.770 kr.
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Útivistaröxi
Verð 13.190 kr.
Lítil öxi
Verð 12.590 kr.
AXIR FYRIR KRÖFUHARÐA
MIKIÐ ÚRVAL - VERÐ FRÁ 3.980
Veiðiöxi
Verð 17.180 kr.Viðarklauf
Verð 4.890 kr.
Ahliða öxi
Verð 14.490