Morgunblaðið - 31.07.2017, Side 12

Morgunblaðið - 31.07.2017, Side 12
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja@mbl.is V ið fórum með fjallafélag- inu í ferð upp í grunn- búðir Everest síðastlið- inn nóvember og hittum á leiðinni margt fólk sem býr í Khumbu-dalnum í Nepal. Við vorum með marga innfædda leið- sögumenn, og heilluðumst algjörlega af þessu fólki. Þó að þarna ríki ótrú- leg fátækt þá eru þau samt svo gjaf- mild og glöð, eitthvað sem mér þykir til eftirbreytni,“ segir Guðrún Harpa Bjarnadóttir sem fór ásamt fríðu föruneyti til Nepals síðastliðið haust í þeim tilgangi að klífa hluta af Eve- rest. Ferðin reyndist örlagavaldur í lífi Guðrúnar. Dularfull kona á Instagram „Árið 2015 varð stór jarðskjálfti í Nepal sem olli mikilli eyðileggingu. Það blasti við þegar við löbbuðum upp dalinn svo okkur langaði að finna einhverja leið til þess að gefa af okk- ur, í þakklætisskyni fyrir þessar góðu móttökur sem við fengum.“ Spurð hvers vegna samtökin Empower Nepali Girls hafi orðið fyrir valinu segir Guðrún það hafa verið fyrir al- gjöra tilviljun. „Það voru töfrar sam- félagsmiðlanna sem að leiddu okkur þangað. Eftir að ég kom heim frá Nepal setti ég mynd inn á Instagram og stuttu síðar tók ég eftir því að það var einhver kona búin að líka við myndina. Ég er ekki vön því að fólk, mér ókunnugt, líki við myndirnar mínar.“ Forvitnin varð yfirsterkari og Guðrún ákvað að kanna hver dul- arfulla konan væri. „Ég fór að skoða prófílinn hennar og þá kom í ljós að Hægt að gera svo mikið fyrir svo lítið Guðrún Harpa Bjarnadóttir hélt í örlagaferð til Nepals síðastliðið haust. Í kjölfarið komst hún á snoðir um samtökin Empower Nepali Girls sem styrkja ungar fátækar stúlkur í Nepal til náms. Guðrún heillaðist af starfi þeirra og ákvað að stofna Íslandsdeild til styrktar samtökunum, sem hafa á síðastliðnum 15 árum unnið mikið og gott starf í þágu nepalskra stúlkna. Frumkvöðull Guðrún Harpa Bjarnadóttir sést hér ásamt ungum stúlkum í Nepal. Guðrún stofnaði Íslandsdeild Empower Nepali Girls. Fjallakona Sara Safari er meðlimur Empower Nepali Girls. Hér er hún á Everest, sem hún kleif til styrktar samtökunum. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2017 Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Við erum oft minnt á að vanda orða- lag okkar. Og það virðist ekki úr lausu lofti gripið samkvæmt grein sem birtist á vef breska miðilsins BBC. Orð virðast segja mun meira heldur en bara það sem við ætlum þeim. Allt frá stöðuuppfærslum á Facebook yfir í netpóstinn sem við notum. Fólk sem er í eðli sínu félagsverur á það til að vera háværara og málglaðara en þeir sem eru meira fyrir einveru. Mikill munur er á orðanotkun fólks sem flokkast sem félagsverur, og þeirra sem kjósa einveru. Fyrir nokkr- um árum var gerð rannsókn með 40 þátttakendum. Öllum þátttakendum voru sýndar nokkrar myndir af mis- munandi aðstæðum og þeir beðnir um að lýsa þeim. Niðurstaðan leiddi í ljós að fé- lagsverurnar lýstu flestum að- stæðum með frjálslegu orðalagi, á meðan innhverfu einstaklingarnir voru mun nákvæmari. Með öðrum orðum, þeir sem kjósa frekar að vera út af fyrir sig fara mun nánar út í smáatriði. Félagsverurnar eru því mun líklegri til þess að segja: „Þessi grein er frábær“ á meðan innhverfu einstaklingarnir myndu frekar segja „þessi grein er upplýsandi.“ Orðin sem við notum geta sagt ansi margt um okkur AFP Skriftir Orðaval okkar, bæði í skrifum og töluðu máli segir ýmislegt um okkur. Orðavalið og persónuleikinn Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræð- ingur og Guðni Valberg arkitekt fara með fólk í gönguferð og fjalla um þær opinberu byggingar sem að stóð til að reisa við Arnarhól. Gangan mun hefjast fyrir framan Menningarhús Grófinni milli Tryggvagötu 15 og 17, klukkan 20.00 hinn 3. ágúst. Þaðan verður gengið á Austurvöll og Alþing- ishúsið rætt. Á leiðinni frá Aust- urvelli að Arnarhóli, þar sem göng- unni lýkur, verður fjallað um byggingarsögu Þjóðleikhússins. Á hólnum verður svo rætt um skipulag opinbera bygginga á Arnarhóli frá 1906 og fleira til. Gönguferð um miðbæinn og byggingar skoðaðar Reykjavík sem aldrei varð Morgunblaðið/Ófeigur Arnarhóll Hóllinn í hjarta miðbæj- arins hefur fengið að halda sér. Öll þekkjum við einhvern sem þykir örlítið sérvitur. Á vef BBC má finna skemmtilega grein um sérstaka dynti nokkura helstu brautryðjenda mann- kyns. Nikola Tesla gerði afar sér- stakar æfingar með tærnar á sér á hverju kvöldi. Hann kreppti þær allt að hundrað sinnum en hann hélt því fram að æfingarnar hjálpuðu honum að örva heilann. Paul Erdos, einn fremsti stærð- fræðingur 20. aldarinnar, neytti am- fetamíns. Þegar vinur hans veðjaði við hann að hann gæti ekki hætt að nota efnið í heilan mánuð tók Erdos því veðmáli og vann það en var samt sem áður ósáttur. „Þú hefur sett stærðfræðina aftur um heilan mán- uð,“ á Erdos að hafa sagt. Isaac New- ton kaus öllu hefðbundnari sérvisku en hann átti það til að gorta sig af skírlífi sínu. Hinn heimsþekkti stærð- fræðingur Pythagoras lagði blátt bann við því að baunir kæmust ein- hvern nálægt honum og Benjamin Franklin trúði því að það að fylla bað- kar af engu nema lofti og baða sig í því gerði sér gott. Öll erum við sérvitur en sumir ganga lengra en aðrir Sérviska og sérkennilegir dyntir helstu frumkvöðla heims AP Benjamin Franklin Stjórnmálamaðurinn er sagður hafa baðað sig í lofti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.