Fréttablaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 8
Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Sendibíll ársins 2017.
Nýr Crafter.
Við látum framtíðina rætast.
Alþjóðlegur sendibíll
ársins 2017.
Nýr Volkswagen Crafter er hannaður með þarfir
iðnaðarmanna að leiðarljósi. Fyrsti sendibíllinn
með 8 þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur.
Crafter er betri en nokkurn tímann áður en
hægt að velja um fjölda útfærslna á hleðslurými,
farþegarými og aðstoðarkerfi.
Sendibíll verð frá 5.970.000 kr. m/vsk
Pallbíll verð frá 5.610.000 kr. m/vsk
Héðinn hefur störf hjá Tannlæknaþjónustunni
Tannlæknaþjónustan.is
Reykjavík
Valhöll, Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
Selfoss
Austurvegur 10
800 Selfoss
Hella
Suðurlandsvegur 3
850 Hella
Meðfram störfum mínum á Höfn í Hornafirði hef ég hafið störf hjá
Tannlæknaþjónustunni, Valhöll Háaleitisbraut 1,105 Reykjavík.
Ég býð gamla og nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.
Tímapantanir í síma 482-3333. Við tökum vel á móti þér
Héðinn Sigurðsson
tannlæknir Reykjavík
Bandaríkin Fjölmiðlar í Bandaríkj-
unum birtu í gær umfjallanir hver af
öðrum um mögulegt forsetafram-
boð fjölmiðlamógúlsins og fyrrver-
andi spjallþáttastjórnandans Opruh
Winfrey vegna þeirra góðu undir-
tekta sem þakkarræða hennar fékk
á Golden Globes-verðlaunahátíð-
inni á sunnudag, þar sem hún fékk
heiðursverðlaun Cecils B. DeMille.
Ræðan fjallaði einna helst um það
mótlæti sem svartir Bandaríkja-
menn og -konur hafa þurft að sæta
í gegnum tíðina.
„Of lengi hafa raddir kvenna ekki
fengið að heyrast. Konur hafa vart
þorað að segja sannleikann vegna
ofríkis valdamikilla karlmanna, en
þeirra tími er liðinn. Þeirra tími er
liðinn,“ sagði Winfrey til að mynda
en hún er fyrsta svarta konan sem
hlýtur verðlaunin.
Fjöldi hátíðargesta mætti í svört-
um klæðum til þess að sýna sam-
stöðu með þolendum kynferðis-
legrar áreitni og ofbeldis og nældi
á sig nælur sem á stóð „Time’s up“.
Um var að ræða fyrstu stóru verð-
launahátíðina sem haldin hefur
verið eftir #MeToo-byltinguna.
Um leið og úrslit forsetakosning-
Oprah orðuð við Hvíta
húsið eftir þakkarræðu
Ræða Opruh Winfrey á Golden Globes hlaut góðar undirtektir. Frægðarmenni
skora á hana að fara í forsetaframboð. Winfrey sjálf ýjað að áhuga sem og lýst
því yfir að hún ætli ekki í framboð. Kærastinn segir að hún myndi taka slaginn.
47%
sögðust frekar
vilja kjósa
Winfrey en
Trump
í mars.
anna árið 2016 lágu fyrir fóru strax
af stað umræður um hver gæti leitt
Demókrataflokkinn í forsetakosn-
ingum ársins 2020. Nafn Winfrey
hefur ekki verið ofarlega í umræð-
unni fyrr en nú.
CNN greindi í gær frá samtali sínu
við tvo vini Winfrey sem fór fram í
skjóli nafnleyndar. Sögðu þeir að
ýmsir úr innsta hring mógúlsins
hefðu hvatt hana til þess að bjóða
sig fram undanfarna mánuði og að
Winfrey hafi ekki gert upp hug sinn.
Talsmaður Winfrey svaraði ekki
bón miðilsins um viðbrögð en vin-
irnir tveir fullyrtu að hún íhugaði nú
alvarlega að taka slaginn og bjóða
sig fram gegn Donald Trump, sitj-
andi forseta.
Orð Winfrey er varða mögulegt
forsetaframboð í gegnum tíðina
eru misvísandi. Í júní sagði hún við
Hollywood Reporter: „Ég fer aldrei
í framboð. Það er nokkuð öruggt.“
Hún hefur einnig gefið hið
gagnstæða til kynna. Í septem-
ber tísti hún til að mynda hlekk
á skoðanadálk í New York Post
sem bar fyrirsögnina „Besta von
Demókrata árið 2020: Oprah“ og
skrifaði: „Þakka þér kærlega fyrir
stuðninginn!“
Í viðtali við Bloomberg TV í
mars sagðist hún aldrei alvarlega
hafa íhugað forsetaframboð. Þegar
blaðamaður benti henni á að Trump
forseti hefði ekki haft neina reynslu
af stjórnmálum sjálfur áður en hann
fór í framboð svaraði Winfrey: „Eitt
sinn hugsaði ég „ó, ég hef enga
reynslu. Ég veit ekki nóg“, nú hugsa
ég bara „Ó“.“
LA Times tók Stedman Graham,
kærasta Winfrey til tæplega þrjátíu
ára, tali í gær og spurði út í mögulegt
forsetaframboð. „Það er undir fólk-
inu komið. Hún myndi án nokkurs
vafa taka slaginn,“ sagði Graham.
Kysi Winfrey að fara í framboð
gegn Trump ætti hún ágætis mögu-
leika, ef marka má skoðanakönnun
Public Policy Polling frá því í mars.
Þar mældist Winfrey með 47 pró-
senta fylgi gegn 40 prósentum
Trumps en vinsældir hans hafa
dalað síðan. thorgnyr@frettabladid.is
40%
sögðust frekar vilja
kjósa Trump.
EvrópusamBandið Útgjöld Evrópu-
sambandsins verða að vera meiri en
eitt prósent af vergri landsframleiðslu
sambandsins þrátt fyrir útgöngu Bret-
lands úr ESB. Þessu lýsti Jean-Claude
Juncker, forseti framkvæmdastjórnar
ESB, á fundi í gær um næstu sjö ára
fjárlög Evrópusambandsins sem taka
eiga gildi árið 2021.
Juncker sagði að á þessum fjár-
lögum þyrfti að einblína á sameigin-
leg verkefni ríkja ESB, til að mynda
varnar mál, öryggismál, innflytjenda-
mál, loftslagsmál og landbúnað. „Bret-
ar munu yfirgefa okkur. Þess vegna
þurfum við að finna leiðir til þess að
bregðast við milljarða evra tekjutapi.“
Að sögn Günthers Öttinger, fjár-
málastjóra ESB, þarf að fylla upp í
tólf til þrettán milljarða evra gat eftir
Brexit. Það samsvarar um 1,5 billj-
ónum íslenskra króna.
Juncker sagði að þótt ráðist yrði
í endurskoðun og nútímavæðingu
verkefna og stefna ESB þyrftu aðildar-
ríki að dæla auknu fé í sambandið
vegna nýrra sameiginlegra verkefna
„Það er einfaldlega ekki hægt að fjár-
magna þessi verkefni með einungis
prósenti af auði Evrópu.“ – þea
Vill aukin útgjöld þrátt fyrir Brexit
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i ð j u d a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-E
D
5
4
1
E
B
0
-E
C
1
8
1
E
B
0
-E
A
D
C
1
E
B
0
-E
9
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K