Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Það er ástæða til að bera nokkrar væntingar til næsta kjörtímabils þegar kemur að mennta-málum ef marka má stefnuyfirlýsingu núverandi
ríkisstjórnar. Þar segir að öflugt menntakerfi sé for-
senda framfara og boðar núverandi ríkisstjórn stórsókn
í menntamálum á öllum skólastigum.
Þar er sérstaklega tekið fram að stuðla skuli að viður-
kenningu á störfum kennara. Í yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar felst sú ánægjulega staðreynd að núverandi ríkis-
stjórn telur störf kennara mikilvæg fyrir samfélagið allt.
Og auðvitað er það svo. Kennarar hafa í höndum
sér fjöregg þjóðarinnar. Um okkar hendur fara þegnar
þessa samfélags og það eru kennarar á öllum skóla-
stigum sem eiga stóran þátt í að móta þá einstaklinga
sem landið skulu erfa.
Nú eru kjarasamningar framhaldsskólakennara
lausir. Stéttin hefur ekki farið með himinskautum í
launakröfum sínum, en við höfum gert þá eðlilegu
kröfu að laun okkar séu metin með tilliti til þess að
nýútskrifaðir framhaldsskólakennarar hafa að lágmarki
fimm ára háskólanám að baki og í mörgum tilfellum
sex ár. Laun framhaldsskólakennara þurfa að vera
samkeppnishæf og eiga auðvitað ekki að vera lakari en
kjör annarra stétta opinberra starfsmanna með sömu
menntun. Slík krafa hlýtur að vera sanngjörn og eðlileg.
Launastaða framhaldsskólakennara var arfaslök
haustið 2013. Í kjölfar verkfalls og verulegra kerfis-
breytinga fékk stéttin launaleiðréttingu vorið 2014
og hækkanir fram á árið 2017 sem einhverjir hafa séð
ofsjónum yfir og hafa talið falla utan þess ramma sem
„Salek-samkomulagið“ leyfir (rammasamkomulag um
launaþróun). En ef við fylgjum fordæmi kjararáðs og
metum launaþróun aftur til ársins 2006 liggur fyrir að
enn þarf að leiðrétta laun framhaldsskólakennara, svo
mjög höfðu þau dregist aftur úr viðmiðunarhópum
stéttarinnar.
Ríkisstjórn Íslands hlýtur núna að standa við bakið
á okkur, því eigi athafnir að fylgja orðum væri eðlilegt
framhald fagurra fyrirheita um viðurkenningu kenn-
arastarfsins að leiðrétta laun framhaldsskólakennara og
gera samkeppnishæf.
Sátt um laun kennara
Guðríður
Arnardóttir
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
Laun fram-
haldsskóla-
kennara
þurfa að vera
samkeppnis-
hæf og eiga
auðvitað ekki
að vera lakari
en kjör
annarra stétta
opinberra
starfsmanna
með sömu
menntun.
Reykjavík
endurspeglar
alþjóðlega
þróun.
Borgarbúar
víðsvegar í
heiminum
hafa í aukn-
um mæli
snúið baki
við hægri og
íhaldsflokk-
um.
H E I L S U R Ú M
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
20-60%
AFSLÁTTUR!
A
R
G
H
!!!
1
00
11
8#
4
VAXTALAU
SAR
GREIÐSLUR
Í
12MÁN.
*
OG FYRSTA
GREIÐSLA
Í APRÍL!
(*
Mi
ða
ð v
ið
12
má
na
ða
va
xta
lau
sa
n r
að
gr
eið
slu
sa
mn
ing
m
eð
3,
5%
lá
nt
ök
ug
jal
di
og
40
5 k
r. g
re
iðs
lug
jal
di)
Leitað að arftaka sjómannsins
Atvinnuvegaráðuneytið hefur
efnt til samkeppni um gerð úti-
listaverks á austurgafl Sjávar-
útvegshússins við Skúlagötu 4.
Gaflinn varð mjög umdeildur
í fyrra þegar málað var yfir
mynd af sjómanni sem hafði
prýtt hann. Sökinni var skellt á
Hjörleif Guttormsson, náttúru-
fræðing og fyrrverandi alþingis-
mann og ráðherra. Hann býr í
nágrenni við húsið og lét verkið
fara í taugarnar á sér. Ekki síst
þar sem því var klastrað á vegg-
inn án þess að fara í gegnum
hefðbundið stjórnsýsluferli. Að
þessu sinni gætir ráðuneytið
að öllum leikreglum og verk-
ferlum þannig að Hjörleifur
hlýtur í það minnsta að fá sinn
andmælarétt áður en nýju verki
verður komið fyrir.
Klámskjöldur stjórnsýslunnar
Fréttir af mikilli ásókn í klám-
síður úr tölvum á breska þing-
inu hafa vakið heims athygli.
Ætla má að hjá ríki og borg á
Íslandi sé ástandið mun betra.
Hjá Reykjavíkurborg er með
öllu bannað að opna klám-
síður í tölvum og byggingum
borgarinnar. Og á Alþingi munu
aldrei hafa komið upp nein slík
mál. Þingheimur virðist vera
svo vandaður og vel siðaður að
varla hefur þurft að huga að sér-
stökum klámvörnum eða setja
hömlur á netvafur starfsfólks
þingsins og kjörinna fulltrúa.
thorarinn@frettabladid.is
Framboðsmál Sjálfstæðismanna í borginni eru vandræðaleg. Fyrir áramót var tilkynnt að borgarstjóraefni flokksins fyrir kosning-arnar í vor yrði kosið í prófkjöri. Valnefndir myndu síðan sjá um að raða fólki á lista þar
fyrir neðan.
Mannval Sjálfstæðismanna í borginni hefur verið
frekar óspennandi í lengri tíma, og segja má að
enginn leiðtogi hafi náð flugi frá því að Hanna Birna
Kristjánsdóttir leiddi flokkinn. Sumir segja að Sjálf-
stæðismenn hafi varla verið svipur hjá sjón í borginni
síðan Davíð Oddsson fór í landsmálin seint á síðustu
öld.
Margir hafa fengið að spreyta sig en jafnóðum
endað á pólitískum ruslahaug. Markús Örn Antons-
son, Árni Sigfússon, Björn Bjarnason, Vilhjálmur
Vilhjálmsson og nú síðast Halldór Halldórsson. Allir
hafa þessir leiðtogar farið sneypuför.
Í allmörg ár hefur staðan verið sú, að varla er hægt
að reikna með að fólk sem ekki er upptekið af pólitík
muni eitt einasta nafn úr forystusveit flokksins.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ná ekki flugi
og hljóta að vera farnir að venjast því að láta starfs-
systkin af vinstri vængnum skyggja á sig.
Jón Gnarr olli straumhvörfum. Hann afhelgaði
embættið, kom til dyranna eins og hann var klæddur
og sýndi að góð stjórnun snýst fyrst og fremst um
að þiggja góð ráð en ekki þykjast hafa ráð undir
rifi hverju. Sterki leiðtoginn var gerður hlægilegur.
Vopnin voru þar með slegin úr höndum Sjálfstæðis-
flokksins, sem jafnan hefur hampað sterkum foringja.
Það er því ærin ástæða fyrir flokksmenn að hreinsa
til. Þetta snýst ekki bara um foringja, heldur þarf að
tryggja fjölbreytileika og gott mannval með því að
velja líka í sætin þar fyrir neðan.
Nú er flokknum mikill vandi á höndum. Þeir einu
sem tilkynnt hafa um framboð, Kjartan Magnússon
og Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúar, eru ágæt-
lega frambærilegt fólk, en hvorugu tekið fagnandi í
baklandinu.
Aðrir kostir hafa einn af öðrum helst úr lestinni:
Svanhildur Hólm, Marta Guðjónsdóttir, Unnur Brá
Konráðsdóttir, Borgar Þór Einarsson, Páll Magnússon,
Ásdís Halla Bragadóttir, Halla Tómasdóttir og nú
síðast Jón Karl Ólason. Fortíðardraugur úr borginni,
Björn Bjarnason, stakk meira að segja upp á því
að Framsóknarmaðurinn Frosti Sigurjónsson yrði
dreginn á flot.
Sennilega verður Reykjavík aldrei aftur höfuðvígi
Sjálfstæðismanna. Ólíklegt er að þeir nái nokkru sinni
hreinum meirihluta eins og reglan var fyrir tilkomu
R-listans árið 1994. Reykjavík endurspeglar alþjóð-
lega þróun. Borgarbúar víðsvegar í heiminum hafa í
auknum mæli snúið baki við hægri og íhaldsflokkum.
Hvað sem því líður hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn
að eiga mikið inni í borginni. Flokksmenn leita nú
logandi ljósi að nýrri vonarstjörnu. Skyldi hún finnast
eða heldur niðurlæging Sjálfstæðismanna í Reykjavík
áfram?
Lýst eftir bjargvætti
9 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-D
9
9
4
1
E
B
0
-D
8
5
8
1
E
B
0
-D
7
1
C
1
E
B
0
-D
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K