Fréttablaðið - 09.01.2018, Síða 16
Japanski verkfræðingurinn
Kenichi Yamamoto, sá er bjó til
Rotary-vélina, er fallinn frá 95
ára að aldri. Yamamoto fæddist
í Hiroshima en útskrifaðist sem
verkfræðingur frá Tokyo Imperial
University árið 1944. Hann sneri
aftur til fæðingarstaðar síns eftir
seinni heimsstyrjöldina aðeins til
að finna æskuheimili sitt í rústum
eftir kjarnorkusprenginguna í
Hiroshima, auk þess að fá þær
fréttir að yngri systir hans hefði
dáið í sprengingunni.
Til að hjálpa fjölskyldu sinni hóf
Yamamoto starf hjá verksmiðju í
Hiroshima sem framleiddi trukka.
Á aðeins tveimur árum vann hann
sig frá því að vera verkamaður upp
í yfirmannsstöðu og fékk fljótt það
verkefni að hanna nýja vél í bíl sem
bera myndi merki Mazda.
Fljótlega eftir það var Yamamoto
kominn í teymi með öðrum verk-
fræðingum hjá Mazda sem höfðu
það verkefni með höndum að
hanna nokkrar gerðir af Rotary-vél-
um sem knýja myndu bíla Mazda,
meðal annars hinn goðsagna-
kennda Cosmo Sport bíl Mazda
með Twin-Rotary vél.
Yamamoto hélt áfram að klifra
upp virðingarstigann hjá Mazda og
var settur yfirmaður rannsókna og
þróunar hjá fyrirtækinu á áttunda
áratug síðustu aldar. Hann varð for-
stjóri Mazda árið 1985 og stjórnar-
formaður fyrirtækisins tveimur
árum síðar. Undir hans yfirstjórn
rann upp blómaskeið Mazda í
akstursíþróttum þar sem Mazda
hafði meðal annars sigur í LeMans-
þolaksturskeppninni árið 1991
með bíl sem knúinn var Rotary-vél.
Ári seinna lét hann af störfum hjá
Mazda.
Faðir Rotary
vélarinnar allur
Kenichi Yamamoto varð forstjóri
Mazda eftir nær fjögurra áratuga starf.
Kínverski bílaframleiðandinn
Geely heldur áfram fjárfestingum
sínum í evrópskum bílaiðnaði og
hefur nú keypt 8,2% hlutabréfa í
trukkaframleiðslu Volvo sem ber
nafnið AB Volvo. Fyrir þennan
hlut í Volvo Trucks þurfti Geely
að greiða tæplega 350 milljarða
króna.
Geely keypti hlutinn af fjárfest-
ingafélaginu Cevian Capital. Geely
á fyrir öll hlutabréf í Volvo Cars,
sem og Lotus og London Taxi. Það
gerir það þó ekki að verkum að
Geely hafi í hyggju að sameina AB
Volvo og Volvo Cars að nýju. Með
þessum kaupum er Geely orðinn
stærsti eigandinn í AB Volvo.
Þessi kaup Geely voru alfarið að
þeirra eigin frumkvæði, en Cevian
Capital hafði engin áform um að
selja hlut sinn. Cevian Capital
hagnaðist hins vegar umtalsvert á
sölunni en félagið hefur átt þessi
bréf í AB Volvo frá árinu 2006.
Hlutabréf í AB Volvo hafa hækk-
að um 50% á þessu ári og er það
mikilli eftirspurn eftir trukkum í
heiminum helst að þakka. Hluta-
bréf hafa einnig hækkað mjög
undanfarið hjá öðrum trukkafram-
leiðendum, svo sem Benz og MAN.
Geely kaupir í Volvo Trucks
Ólíklegt er að Ford Mondeo verði á meðal framleiðslu-bíla Ford árið 2020, að
minnsta kosti er harla ólíklegt að
hann verði í boði í Bandaríkjunum
þá. Ford hefur tekið ákvörðun um
það að framleiðslu hans verði hætt
í Mexíkó, en þar eru þeir Mondeo-
bílar framleiddir sem seldir eru í
Bandaríkjunum, reyndar undir
nafninu Fusion.
Mondeo er einnig framleiddur
fyrir Evrópumarkað í Valencia á
Spáni og hefur verið tekin ákvörðun
um að hætta framleiðslunni þar.
Mondeo er líka framleiddur í
Kína og verður líklega í boði þar
lengur, en engir Mondeo-bílar verða
fluttir frá Kína til Bandaríkjanna
eða Evrópu. Ford hefur ekki gefið
út neina yfirlýsingu um dauða
Mondeo, en þessar ákvarðanir um
að hætta framleiðslunni í Mexíkó
og Spáni benda til þess að dagar
Mondeo séu brátt taldir.
Forstjóri Ford, Jim Hackett, segir
að Ford hafi ekki tekið endanlega
ákvörðun um tilvist Mondeo en
þessar ákvarðanir bendi til þess að
bíllinn eigi ekki framtíðina fyrir sér.
Salan hríðfallið á síðustu
árum
Sala Mondeo í Bandaríkjunum
hefur hríðfallið á síðustu árum og í
nóvember síðastliðnum minnkaði
hún um 22% á milli ára. Mondeo
hefur lengi verið langt á eftir Toyota
Camry og Honda Accord í sölu
vestanhafs, en þessir tveir japönsku
bílar hafa verið ráðandi í sölu í
þessum stærðarflokki.
Á undanförnum árum hefur sala
jepplinga og jeppa í Bandaríkj-
unum, og reyndar víðar, tekið mikið
af sölu bíla í þeim stærðarflokki sem
Mondeo er í og sífelldur samdráttur
hefur verið í sölu bíla allra framleið-
enda í þessum flokki. Því má búast
við að fleiri bílaframleiðendur hætti
framleiðslu slíkra bíla á næstu árum,
en á móti muni jeppum og jepp-
lingum fjölga mjög.
Ford gæti hætt
framleiðslu
Mondeo-bílsins
Subaru-bílar hafa á síðustu árum runnið út eins og heitar lummur í Bandaríkjunum og
mikill og stöðugur vöxtur verið í
sölunni á hverju ári. Nýliðið ár var
engin undantekning á því þar sem
Subaru seldi alls 647.956 bíla þar.
Nýliðinn desember var besti
sölumánuður Subaru vestanhafs
frá upphafi og seldi fyrirtækið þá
63.342 bíla, eða nálægt því 10% af
heildarsölu ársins.
Forvitnilegt er að bera saman
sölu Subaru-bíla í Evrópu og í
Bandaríkjunum, en árið 2016 seld-
ust 37.189 Subaru-bílar í Evrópu,
eða ríflega 17 sinnum færri bílar en
seldust í fyrra í Bandaríkjunum.
⅔ Subaru-bíla seldir í Banda-
ríkjunum
Reyndar er staðreyndin sú að tveir
af hverjum þremur bílum (67,1%)
sem Subaru framleiðir eru seldir í
Bandaríkjunum en aðeins 4,6% í
Evrópu. Árið 2010 voru Bandaríkin
með 48,3% og Evrópa 8,5%. Salan í
Asíu er 23,1%.
Það hefur gagnast Subaru mjög
hvernig samsetning bílgerða þeirra
er og bílar eins og Outback, Forester
og XV hafa runnið út líkt og jepp-
lingar annarra bílaframleiðenda.
Sömu sögu er ekki að segja um
fólksbíla Subaru, nema nýja gerð
Impreza-bílsins, en sala Impreza
jókst um 55% í Bandaríkjunum
í fyrra. Legacy, BRZ og WRX/STI
seldust hins vegar verr í fyrra en
árið á undan.
Subaru brillerar í
Bandaríkjunum
Tveir af hverjum þremur bílum sem Subaru framleiðir
eru seldir í Bandaríkjunum og þar seljast 17 sinnum fleiri
Subaru-bílar en í Evrópu.
Subaru Forester.
Ford Mondeo árgerð 2017.
Volvo trukkur á sýningu.
Ákvarðanir um að
hætta framleiðsl-
unni í Mexíkó og
á Spáni benda
til þess að dagar
Mondeo séu
brátt taldir.
9 . j a n ú a R 2 0 1 8 Þ R I Ð j U D a G U R2 B í l a R ∙ F R É T T a B l a Ð I Ð
Bílar
0
9
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
0
-F
C
2
4
1
E
B
0
-F
A
E
8
1
E
B
0
-F
9
A
C
1
E
B
0
-F
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K