Víkurfréttir - 23.01.2003, Síða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Anna Soffía Jóhanns-
dóttir lést þann 17. janú-
ar sl.Viðtal við Önnu
Soffíu birtist í jólablaði
Víkurfrétta 1998 en þar
veitti hún af miklu hug-
rekki innsýn í baráttu
sína við krabbamein sem
hún greindist fyrst með
árið 1993. Með viljann
að vopni og trú á al-
mættið tók Anna Soffía
einn dag fyrir í einu og
rak í veikindum sínum
umsvifamikið fyrirtæki.
Anna Soffía sagði sterk-
an persónuleika og já-
kvæðni vera styrk sinn í
veikindunum og trúði
hún því að sigur myndi
hafast. Það sýndi sig m.a.
í fimmtugsafmæli henn-
ar nú rétt fyrir jólin en
myndir úr afmælinu
birtust í Víkurfréttum.
Víkurfréttir senda að-
standendum samúðar-
kveðjur.
Nú eru rúmir 2 mánuðir frá þvíað heilsugæslulæknar sögðuupp störfum sínum við stofn-
unina. Heilbrigðis-
stofnunin átti ekki í
neinun deilum við
viðkomandi lækna og
sá mikið á eftir þeim.
Deilurnar voru milli
viðkomandi lækna og
ráðuneytisins og því
miður tókst ekki að
að finna lausn á því máli. HSS eins
og aðrar opinberar stofnar vinna eft-
ir ákveðnum lögum og reglum og
kröfur læknanna rúmuðust ekki
innan þess ramma.
Á þessum tíma hafa verið ráðnir 2
læknar á heilsugæslustöðina, einnig
hafa ýmsir ungir læknar komið til
vinnu í lengri eða skemmri tíma með
mismunandi reynslu. Ég fullyrði að
þeir hafi allir staðið sig mjög vel. Um
næstu mánaðarmót er búið að ráða
heilsugæslulækni til Grindavíkur í 4
mánuði til að byrja með. Einnig er ver-
ið að ganga frá samningi við sérfræð-
ing í innkirtlasjúkdómum sem mun
m.a. taka við eftirliti sykursýkissjúk-
linga tímabundið í hlutastarfi frá og
með 20 janúar n.k.. Þá er verið að ráða
sérfræðing í krabbameinslækningum í
hlutastarf um næstu mánaðrmót, þ.e. 1.
febrúar, sem mun væntanlega auka
vinnuhlutfall sitt með vorinu.
Ég hef talað við fjölda lækna á undan-
förnum dögum og vikum, m.a.
unglækna, sérfræðinga á ýmsum svið-
um ásamt heilsugæslulæknum. Ég hef
fengið margar góðar hugmyndir hjá
þeim og vonast eftir að einhverjir þeirra
muni koma í vinnu til okkar í t.d. ráð-
gjafastörf og ýmis hlutastörf til að byrja
með. Einnig eru að koma til okkar
hjúkrunarfræðingar bæði með mikla
reynslu og þekkingu í farteskinu sem
og nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar
sem við tökum fagnandi.
Það er nú þannig að þegar stór hópur
fólks með sérfræðiþekkingu hverfur í
einum vettvangi af vinnustað, getur
enginn gert sér vonir um að það skarð
verði fyllt samstundis. Sérfræðingar á
öllum sviðum eru eftirsóttir, þeir eru
háðir ráðningarsamningum á sínum
vinnustað og hljóta alltaf að vega og
meta kosti og galla þess að skipta um
starf.
Ég vil taka það sérstaklega fram að
þrátt fyrir þessa miklu erfiðleika, þá
hefur gengið betur að sinna öllum þeim
fjölbreyttu málum sem upp hafa komið
og snúa að heilbrigðisþjónustu hér á
HSS. Það hefur tekist vegna þess að
hér vinnur stór, samstilltur hópur sem
hefur með miklu æðruleysi einsett sér
að leysa þessi mál sem allra best. Flest-
ir sem hingað hafa komið, hafa fengið
úrlausn sinna mála samdægurs, þó
vissulega hafi þetta valdið sumum ein-
staklingum miklum óþægindum. Ég vil
minna á að því miður gerist það líka á
öðrum heilbrigðisstofnunum.
Að lokum vil ég taka það fram að ég,
ásamt öllu starfsfólki hér, vinnum hörð-
um höndum við að leysa sem allra best
þau mál sem upp koma hér. Jafnframt
er verið að vinna að framtíðarstefnu-
mótun stofnunarinnar, og hvert fram-
tíðarhlutverk og markmið hennar skuli
vera. Ég hef mikla trú á því að á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja eigi sér
bjarta framtíð og að hún muni geta full-
nægt heilbrigðisþörfum svæðisins og
tekið þátt í þjónustu á landsvísu svo við
getum öll verið stolt af.
Bestu kveðjur,
Sigríður Snæbjörnsdóttir
Gengið vel að sinna sjúklingum þrátt fyrir erfiðleika
HVERNIG STANDA LÆKNAMÁLIN / Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
M ikið hefur verið að gera hjástarfsfólki Hótels Keflavíkur eft-ir að fregnir bárust af því að
flugfélagið HMY Airways hefði fengið
leyfi til farþegaflutninga til Kanada.
Steinþór Jónsson hótelstjóri Hótels
Keflavíkur og umboðsmaður HMY á Ís-
landi sagði í samtali við Víkurfréttir að
mikið væri hringt og spurt í út í far-
gjöld:
„Síminn hefur ekki stoppað og það eru
þrjár manneskjur í því að svara símanum.
Fólk hringir mikið til að spyrja um fargjöld
og einnig hafa margir viljað panta. Við höf-
um líka verið að fá mikið af hamingjuósk-
um. Ég er mjög ánægður með viðtökurnar
og viðbrögðin,“ sagði Steinþór í samtali
við Víkurfréttir.
Kanadíska flugfélagið HMY Airways hef-
ur fengið leyfi Flugmálastjórnar Íslands til
farþegaflutninga frá Íslandi til Kanada.
Flugfélagið mun fljúga vikulega til
Vancouver og Calgary frá Íslandi. Fargjöld
flugfélagsins til Kanada kosta 25 þúsund
krónur út febrúar og 30 þúsund krónur í
mars og apríl. Verðin eru öll með flugvall-
arsköttum og eru öll sætin á umræddu
tímabili á þessu verði. Gert er ráð fyrir að í
sumar muni flugtíðni aukast og að í boði
verði allt að fimm flug á viku.
Frá 16. desember hefur flugfélagið haft
viðkomu á Keflavíkurflugvelli á leið sinni
til Manchester í Englandi, en flugfélagið er
með tvær Boeing 757 flugfélagar í rekstri.
Steinþór Jónsson hótelstjóri Hótels Kefla-
víkur og umboðsmaður HMY á Íslandi
segist vera mjög ánægður með afgreiðslu
Samgönguráðuneytisins og Flugmála-
stjórnar í málefnum flugfélagsins: „Af-
greiðsla ráðuneytisins og Flugmálastjórnar
var hröð og fagleg og ég er mjög ánægður
með að sjá þessar breyttu áherslur hjá sam-
gönguyfirvöldum.“ Steinþór segir að með
leyfinu opnist mikil tækifæri fyrir Íslend-
inga í ferðalögum vestur um haf: „Að sjálf-
sögðu verður lögð ofuráhersla á að ná
ferðamönnum frá vestur Kanada til Íslands,
enda um nýtt markaðssvæði að ræða. Ég er
þess fullviss að Íslendingar komi til með að
nýta sér þetta lága fargjald til Kanada, enda
eru ferðamöguleikar á svæðinu óendanleg-
ir, s.s. skíðaferðir í Klettafjöllin, stórborgar-
ferðir og framhaldsferðir til áfangastaða
um allan heim. Ég átti alltaf von á því að
fargjöld með flugfélaginu yrðu hagstæð, en
ég verð að segja að þessi verð komu mér
þægilega á óvart, enda er um að ræða far-
gjald með góðu flugfélagi og fullri þjón-
ustu,“ sagði Steinþór í samtali við Víkur-
fréttir.
Á síðasta ári heimsóttu294.536 gestir Bláa lón-ið sem er 6.6% fækkun
miðað við árið 2001. Til gam-
ans má geta þess að ef fjöld-
anum er deilt niður á daga
ársins kemur í ljós að tæp-
lega 807 gestir heimsækja
Bláa lónið á hverjum degi allt
árið um kring.
Magnea Guðmundsdóttir sölu-
og markaðsstjóri Bláa lónsins
sagði í samtali við Víkurfréttir
að fækkun gesta mætti fyrst og
fremst rekja til hryðjuverkanna
11. september 2001: „Áhrif-
anna gætti einkum á fyrri hluta
ársins 2002 en þrátt fyrir að
heildargestafjöldi ársins sé
lægri en árið á undan fjölgaði
gestum töluvert á síðasta árs-
fjórðungi ársins og er það
merki um aukið jafnvægi í
ferðaþjónustu,“ sagði Magnea.Helga Ingimundardóttir, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu
Suðurnesja, hlaut í gær hvatningarviðurkenningu Félags
kvenna í atvinnurekstri fyrir störf sín í ferðamálum en hún
hefur starfað mikið á því sviði gegnum árin og m.a. haldið
úti rekstri hvalaskoðunarferða í 10 ár. Árni Sigfússoon,
bæjarstjóri í Reykjanesbæ, færði Helgu blómvönd frá
bænum . Helga var að vonum mjög ánægð með viðurkenn-
inguna og var hún mjög glöð þegar Árni færði henni blóm-
vönd ásamt kveðju frá bænum.
Anna Soffía
Jóhanns-
dóttir látin
Margir vilja til Kanada með HMY
Tæplega 295 þúsund gestir
í Bláa lónið í fyrra
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 16:32 Page 2