Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Guðrún og Brynja bjuggu austast á Heimaey en þar var Kirkjubær sem var heiti yfir nokkra bæji. Kirkjubær og þessi hluti eyjar- innar fór undir hraun sem liggur 60 metra þykkt yfir svæðinu. Um nóttina þegar gosið hófst var Guðrún heima hjá sér og var ein af fáum sem var vakandi. Henni fannst sem jarðskjálfti skyki jörðina og hún heyrði drunur: „Það var eins og þyrla væri að lenda fyrir utan hjá okkur. Þegar ég leit út um gluggann sá ég gos- ið hefjast og mér fannst eins og það væri við hliðina á mér,“ segir Guðrún en hún var með fjögur börn sem hún hófst strax handa við að klæða: „Ég hringdi í mömmu, en hún bjó ásamt Brynju systur nokkrum húsum frá mér. Mamma spurði mig hvað væri eiginlega að gerast og ég man ekki hverju ég svaraði, en mikið ofsalega var ég fegin að heyra í henni hljóðið því þegar ég sá gosið fyrst fannst mér sem það væri yfir Kirkjubæjum.“ Guðrún segir að hún hafi strax farið út með börnin eftir að vera búin að klæða þau og þegar þau komu út hafi þau séð lögreglu- bílana keyra um götur bæjarins með fullum ljósum og sírenum til að vekja bæjarbúa. Brynja bjó með foreldrum sínum og tveimur börnum að Kirkju- bæjum og voru þau öll sofandi. Eldhúsglugginn hjá foreldrum Brynju sneri í austur og þegar Brynja vaknaði sá hún gossprunguna og áttaði sig á því að um eldgos væri að ræða: „Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera. Á meðan ég var að klæða stelpuna mína sem var þriggja ára vöknuðu allskyns spurningar hjá mér. Þegar ég var búin að klæða krakkana fórum við út og tókum ekkert með okkur. Við fórum á lögreglustöðina og þar varð ég vitni af fyrstu viðbrögð- um ráðamanna bæjarins sem voru þar samankomnir. Þar var ákveðið að láta lögreglubíla aka Eldur í Eyjum Systurnar Guðrún og Brynja Pétursdætur búa í Garðinum, en þangað fluttust þær fyrir um 30 árum síðan. Þær bjuggu í Vestmannaeyjum þegar gosið í Heimaey hófst kl. 1:45 aðfaranótt 23. janúar 1973 fyrir réttum 30 árum síðan en því lauk um mánaðarmótin júní, júlí sama ár. Þegar stór- atburðir verða í veröldinni muna flestir hvar þeir voru eða hvað þeir voru að gera stundina þegar þeir heyrðu um við- komandi atburð. Vestmannaeyjagosið er einn af þessum stóratburðum og atburðurinn lifir ljóslifandi fyrir þeim sem eru komnir yfir fertugt og jafnvel yngri en það. Frá fallegasta stað í heimi í norðangarra í Garðinum Auglýsingasíminn er 421 0000 Faxið er 421 0020 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:50 Page 14

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.