Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Páll Ketilsson ritstjóri Vík-urfrétta hefur helgaðhálfri ævi sinni útgáfu Víkurfrétta. Í vikunni voru lið- in 20 ár frá því hann stofnaði hlutafélag um rekstur Víkur- frétta, þá sjálfur tvítugur að aldri. Það var 7. janúar 1983 sem Páll keypti Víkurfréttir í félagi við aðra af prentsmiðj- unni Grágás.Víkurfréttir komu fyrst út á Suðurnesjum í ágústmánuði 1980. Fljótlega var farið að gefa blaðið út vikulega en um tíma komu Víkurfréttir út tvisvar í viku. Í dag er blaðið gefið út einu sinni í viku og borið inn á öll heimili á Suðurnesjum. Í dag eru Víkur- fréttir í eigu Páls Ketilssonar og eiginkonu hans, Ásdísar Bjarkar Pálmadóttur. Hjá Víkurfréttum ehf. starfa í dag 15 manns í tveimur starfsstöðvum í Reykja- nesbæ og Hafnarfirði. Víkurfréttir ehf. eru alhliða fjöl- miðla- og útgáfufyrirtæki: Fréttavefurinn www.vf.is opn- aði formlega þann 15. júní 1995. Fyrstu árin var efni blaðsins sett inn á vefinn vikulega en um ára- mótin 1999/2000 var farið að flytja daglegar fréttir á vef blaðs- ins. Í dag er www.vf.is langstærsti fréttavefur Suður- nesja og sá miðill sem stærstu vefmiðlar landsins treysta á í fréttaflutningi af Suðurnesjum. Víkurfréttir ehf. hófu útgáfu á Tímariti Víkurfrétta vorið 1999. Þar er á ferðinni glæsilegt tímarit sem tekur á mannlífi Suð- urnesja á litskrúðugan og skemmtilegan hátt. Blaðið er að jafnaði 48-64 síður og hefur ver- ið metsölutímarit á Suðurnesjum frá því að kom fyrst út. The White Falcon er fréttablað Varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli. Víkurfréttir annast útgáfu blaðsins og hafa einkaleyfi á sölu auglýsinga í blaðið, sem er það eina sem dreift er innan varnar- stöðvarinnar. Varnarliðið skrifar sjálft allar fréttir í blaðið en aug- lýsingar eru seldar í gegnum Vík- urfréttir. Víkurfréttir ehf. reka sjónvarps- rás á kapalkerfi Kapalvæðingar í Reykjanesbæ. Stöðin sendir út efni í skjámyndaformi og næst á um 1500 heimilum. Nýjasta afkvæmi Víkurfrétta- fjölskyldunnar er vikulegt frétta- og auglýsingablað í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Blaðið heitir VF og hefur undirtitilinn Vikulega í Firðinum. Blaðinu er dreift í um 11.000 eintökum inn á öll heimili og fyrirtæki. Víkurfréttir ehf. eru umboðsaðili Norðurljósa á Suðurnesjum. Útgáfufyrirtæki Víkurfrétta 20 ára Páll Ketilsson með afmælistertu í tilefni tímamótanna og 20 ára afmælis Víkurfrétta ehf. Haldinn var kynningar-fundur á vegum Reykja-nesbæjar á verklegum framkvæmdum bæjarins fyrir árið 2003 á Ránni sl. mánudag. Árni Sigfússon bæjarstjóri kynnti fyrirhugaðar fram- kvæmdir fyrir verktökum og greindi meðal annars frá ýms- um hugmyndum varðandi framtíðarskipulag bæjarins. Í áætlunum Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir að verklegar fram- kvæmdir árið 2003 kosti tæpan 1 milljarð króna. Meðal annars er um að ræða umhverf isfram- kvæmdir fyrir rúmar 95 milljón- ir, viðhaldsverkefni fyrir 60 milljónir, grjótvarnargarða fyrir 80 milljónir, sjóvarnargarða fyrir tæpar 110 milljónir og fram- kvæmdir í Helguvík fyrir 250 milljónir króna. Árni gerði aukið atvinnuleysi að umtalsefni og sagði að það besta sem sveitarfé- lög gætu gert þegar atvinnuleysi eykst væri að flýta verkefnum á vegum bæjarins og það væri ver- ið að gera með þessari áætlun. Verklegar fram- kvæmdir fyrir tæpan milljarð Bergvegur 16,Keflavík. 112m2 einb. með 4 svefnh. og 36m2 bílskúr auk 72m2 útihús fyrir léttan iðnað. Nýtt þak, raf- magn, afgirtur pallur með heitum potti. 13.400.000.- Hafnargata 82, Keflavík. 133m2 efri hæð og ris. 3ja herb. á miðhæð og einstaklingsíbúð í risi sem er í útleigu. 7.500.000.- Holtsgata 28, Njarðvík. 3ja herb. 88m2 n.h. í tvíbýli. Íbúð sem er mikið endur- nýjuð og góðu ástandi. 8.800.000.- Mávabraut 11, Keflavík. Endaíbúð á 2. hæð með 3 svefnh. 74m2 að stærð, nýir gluggar. Hagstæð lán áhv. 7.300.000- Kirkjuvegur 14, Keflavík. 104m2 íbúð á 2. hæð í fjölbýli. Íbúð í góðu ástandi. Laus fljótlega. 11.900.000.- Hringbraut 60, Keflavík. 3ja herb. íbúð á n.h. í tvíbýli með sérinng. og 32m2 bílskúr. Parket og flísar, baðh. nýl. tekið í gegn. 9.500.000.- Eyjaholt 10, Garði. Lítið parhús með 2 svefnher- bergjum. Búið að innrétta ris. Hagstæð lán áhvíland. Mikið endurnýjað að innan. 6.900.000 Fífumói 5b, Njarðvík. Góð 3ja herb íbúð á 3hæð í fjölbýli. Eign í góðu ástandi. Hagstætt lán áhvílandi. 7.400.000.- Tjarnargata 28, Keflavík. 171m2 parhús á 3 hæðum með 23m2 bílskúr. Eign í góðu ástandi og á góðum stað. 12.900.000 Sunnubraut 19, Garði. 144m2 einbýli með 6 svefn- herb. 53m2 bílskúr. Eign í góðu ástandi. 13.300.000,- Kópubraut 5, Njarðvík. 106m2 einbýli með 4 svefnh. Hægt að stækka húsið og byggja bílskúr. Laus strax. 12.000.000.- Vesturgata 25, Keflavík. 81m2 íbúð á e.h. með 38m2 bílskúr. 2 herb. í risi og geymsla. Eign í góðu ástandi. 10.500.000.- Hraunholt 5, Garði. 140m2 einbýli með 4 svefnh. Nýr bílskúr 54m2. Eign í góðu ástandi að utan sem innan. 14.300.000.- Vatnsnesvegur 21, Keflavík. 135m2 einbýli á 3 hæðum. Bílsk. 25m2. Sérinng. á neðstu hæð. Eign sem gefur mikla möguleika. 10.500.000.- Mávabraut 2, Keflavík. Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð með 2 svefnh. Hagstæð lán áhvílandi. 7.500.000.- Iðavellir 3, Keflavík. 159m2 iðnaðarhúsnæði á jarðhæð. Hægt að hafa sérinngang, eign með mikla möguleika. Laust fljótlega. 8.000.000.- 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:11 Page 8

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.