Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Samningur hefur verið gerður milli Gerðahrepps, Sandgerð- isbæjar, Vatnsleysustrandar- hrepps og Reykjanesbæjar um meðferð barnaverndarmála. Tilkoma þessa samnings eru ný barnaverndarlög sem tóku gildi 1. júní 2002 en þar segir að fámennari sveitarfélög skuli hafa samvinnu við önnur sveitarfélög um kosningu barnaverndarnefndar. Saman- lagður íbúafjöldi sveitarfélaga að baki hverri barnaverndar- nefnd skal ekki vera undir 1.500. Ný barnaverndarnefnd kom saman mánudaginn 9. desem- ber sl. og er nefndin skipuð 5 fulltrúum frá Reykjanesbæ, einum fulltrúa frá Gerða- hreppi, einum fulltrúa frá Sandgerði og einum varafull- trúa frá Vatnsleysustrandar- hreppi. Ef málefni sem varða Vatnsleysustrandarhrepp eru til umræðu á barnaverndar- nefndarfundi víkur einn aðal- fulltrúi Reykjanesbæjar fyrir varafulltrúa Vatnsleysustrand- arhrepps. Nefndina skipa eft- irtaldir aðilar: Reykjanesbær: Árnína St. Kristjánsdóttir, formaður, Ingibjörg Hilmarsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson, Alma Vestmann, Ketill Jósefsson, Sandgerði: Hólmfríður Skarphéðinsdóttir Gerðahreppur: Guðrún Alfreðsdóttir Vatnsleysustrandarhreppur: Sædís Guðmundsdóttir. Barnaverndartilkynningar eiga að berast sem hér segir: Sandgerði: Félagsmálastjóri er starfandi í Sandgerði og mun hún sinna barnaverndarmálum þar áfram eins og áður. Barna- verndartilkynningar í Sand- gerði berist til Gyðu Hjartar- dóttur, félagsmálastjóra í síma 423-7555 eða til Hólmfríðar Skarphéðinsdóttur í síma 869- 1465. Garður: Í Garðinum mun Einar Ingi Magnússon, sálfræðingur sinna barnaverndarmálum og eiga barnaverndartilkynningar að berast honum í síma 896- 0820, Sigurði Jónssyni, sveit- arstjóra í síma 422-7150 eða Guðrúnu Alfreðsdóttur í síma 864-2393. Reykjanesbær og Vatns- leysustrandarhreppur: Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar mun sinna barnaverndarmálum í Reykja- nesbæ og Vatnsleysustrandar- hreppi og skulu barnaverndar- tilkynningar berast til stofnun- arinnar í síma 421-6700 eða til Rannveigar Einarsdóttur, yfirfélagsráðgjafa í síma 863- 9094. Athygli er vakin á 16. gr. Barnaverndarlaga nr. 80/2002 en þar segir: „Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisað- stæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barna- verndarnefnd. Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndarnefnd viðvart um hvert það tilvik sem telja má að hún eigi að láta sig varða.“ Almenningur er því hvattur til að tilkynna til Barnaverndar- nefndar Gerðahrepps, Sand- gerðisbæjar, Vatnsleysustrand- arhrepps og Reykjanesbæjar ef ofangreind skilyrði eru fyrir hendi. Rannveig Einarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi. Það er ekki ætlun mín aðgera þessi greinarskrifokkar í milli að föstum þætti í blaðinu en af því þú spyrð þá verður vart hjá því komist að svara. Þú spyrð hvern- ig það megi vera að tillaga hluta kjörnefndar hafi verið sam- þykkt af fulltrúum í kjördæm- isráði á fundinum í Stapa þar sem 158 fulltrúar voru mættir og segir síðan að því verði ekki haldið fram með rökum að fulltrúar í kjördæmisráði hafi ekki verið full upplýstir um málavexti þegar þeir felldu breytingartillöguna sem kom frá mér. Ég vil halda því gagnstæða fram þ.e. að fulltrúar þeir sem á Kjör- dæmisfundinum mættu voru hreint ekki nógu upplýstir um það vinnuferli og þau alvarlegu brot á öllum reglum sem áttu sér stað í kjörnefndinni og nægir þar að nefna t.d. eftirfarandi atriði: Að kjörnefndin hafi vísvitandi mismunað frambjóðendum þar sem sumir frambjóðendanna áttu sæti í nefndinni og tóku þar þátt í að setja reglurnar á meðan aðrir frambjóðendur fengu ekkert um þær að vita og að fleiri en einn kjörnefndarmanna hafi gefið kost á sér til setu á listanum eftir að hafa hafið störf í nefndinni, tekið þátt í smíði á reglunum og jafnvel greitt atkvæði um aðra frambjóðendur sem óskuðu eftir sæti og það jafnvel án þess að segja af sér . Fleira er hægt að nefna þessu til stuðnings eins og t.d. það að allir kjörnefndarmenn voru bundnir trúnaði og gátu því ekki rætt þessi mál fyrir fundinn í Stapa þar sem þú reyndar fyrstur manna braust þann trúnað sem þú sjálfur hafðir nokkrum stund- um áður ítrekað við okkur hin í nefndinni að við yrðum að halda til dauðadags á fundi í Valhöll, en þú vitnaðir ítrekað í og lést lesa úr fundargerðum og hafðir eftir ummæli einstakra kjörnefndar- manna á Stapa fundinum. Vegna þessa trúnaðar var mönnum gert það ómögulegt að greina frá og fjalla um það sem fram fór í nefndinni og þær ákvarðanir og vinnuaðferðir sem þar áttu sér stað og því ekki á þeim tíma hægt að upplýsa þá er kjördæma- ráðs fundinn sóttu um þessi vinnubrögð. Hvað varðar það að meirihluti þeirra 158 manna sem sátu fund- inn hafi samþykkt tillögu nefnd- arinnar vil ég benda þér á að sú tillaga hélt mjög naumlega þar sem aðeins hefði þurft að flytja til 6. atkvæði í kosningu um 3. sætið til að ná þeim árangri sem tillaga mín gerði ráð fyrir en eins og þú veist þá fékk Guðjón Hjör- leifsson 82 atkvæði en Kjartan Ólafsson 72 atkvæði, af því leiðir að hefði Kjartan náð 6 atkvæð- um til sín frá Guðjóni hefði Guð- jón fallið og þá var Kristján einn í framboði til 4. sætis samkv. framkomnum tillögum. Að lokum kæri Ellert, þá er ég þér ekki sammála um að hér sé verið að “hengja bakara fyrir smið” þar sem kjörnefndarmenn hljóta að þurfa að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum og að þær gerðir þurfi að þola dagsljós, en spyrja má hvort kjörnefndin hafi ekki gert einmitt þetta og hengt bakara fyrir smið þegar Kristjáni var kastað af listanum og ekkert við hann rætt áður. Um leið og ég óska þér gleðilegs árs þá vona ég að þér farnist betur en í kjör- nefndinni í þeim ábyrgðarmiklu störfum sem þú ert hlaðinn fyrir hönd flokksins og samfélagsins í framtíðinni. Valþór S. Jónsson Valþór svarar:Kæri Ellert! Samningur milli sveitarfélaga um meðferð barnaverndarmála Alfa námskeið í safnaðarheimilinu í Sandgerði Boðið verður upp á Alfa- námskeið í Sandgerði á næstunni. Námskeiðið, sem er fræðslunámskeið um kristna trú, mun standa yfir í 10 vikur, á miðvikudags- kvöldum frá kl. 19 til kl. 22. Hvert kvöld hefst með létt- um kvöldverði, síðan er um- ræðuefnið útskýrt og rætt í umræðuhópum. Einu sinni á námskeiðinu er farið í helgarferð. Námskeiðið hefst þann 29. janúar nk. með kynningarfundi og hefst fundurinn kl. 20. Á kynningarkvöldinu verður gerð grein fyrir sögu og upp- byggingu námskeiðsins, þátt- takendur frá fyrri námskeiðum greina frá reynslu sinni og fyr- irspurnum er svarað. Léttar kaffiveitingar verða í boði, aðgangur er ókeypis og án nokkurra skuldbindinga um þátttöku í námskeiðinu sem hefst viku síðar. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Maríu Hauksdóttur í síma 421-5181, gsm. 864 - 5436 eða Birni Sveini Björns- syni sóknarpresti í síma 422- 7025, gsm. 891-8931. Úr heimi bænarinnar Kynningarfundur vegna nám- skeiðs sem haldið verður á vegum Keflavíkurkirkju á vorönn 2003 verður haldinn í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 28. janúar nk. kl. 20:00. Á námskeiðinu verður fjallað um efni bókarinnar „Úr heimi bænarinnar”. Bókin „Úr heimi bænarinnar“ fjallar um bænina út frá ýms- um sjónarhornum og svarar ótal spurningum um hana. Hún er því hagnýt leiðbeining, hvatning og hjálp þeim sem biðja eða langar til að læra að biðja. Heitt verður á könnunni, mæt- um öll á kynningarfundinn. Minnum á að samverustund- irnar annan hvern sunnudag í Keflavíkurkirkju hefjast að nýju sunnudaginn 2. febrúar nk. kl. 16:30. f.h. Keflavíkurkirkju, Sigfús B. Ingvason og Laufey Gísladóttir Helga Sigurðardóttirfékk aðalverðlaunin ílesendaleik Víkurfrétta og Pennans Bókabúð Kefla- víkur afhent laugardaginn 28. desember. Aðalverðlaunin voru bókin Suðurnesjamenn eftir Gylfa Guðmundsson og Íslenska orðabókin 2002 að verðmæti um 20 þúsund krónur. Er Helgu Sigurðar- dóttur færðar hamingjuóskir og þakkir fyrir þátttökuna. Hægt var að taka þátt í leiknum bæði á heimasíðu Víkurfrétta og með því að skila inn þátt- tökumiða í Pennann Bókabúð Keflavíkur. Rúmlega 400 mans tóku þátt og fengu alls 8 þátt- takendur bókina Suðurnesja- menn, en dregið var 4 sinnum úr hvorum þátttakenda hóp. Verðlaun afhent í lesendaleik Pennans - Bókabúðar Keflavíkur Hættum að reykja diskurinn seldur á næstu dögum Nú stendur yfir hvatn-ingarátakið Hættumað reykja. Einn liður átaksins er útgáfa á geisla- diski þar sem landsþekktir listamenn eins Birgitta Haukdal söngkona í Írafári, Jóhann, Guðrún, Hreimur söngvari í Land og synir og Jónsi söngvari Í svörtum föt- um syngja lög Jóhanns G. Jóhannssonar. Nemendafélög grunnskólanna hlutu hvert að gjöf frá Reykjanesbæ 280 eintök af disknum en á hon- um má finna lög eins og „Tóm tjara“ og „Svæla, svæla, reykjarsvæla“. Nemendur 10. bekkjar skól- anna munu nú á næstu dögum ganga í hús í sínu skólahverfi og selja diskinná kr. 1000. Von- andi taka íbúar bæjarins vel á móti krökkunum því afrakstur sölunnar mun renna í ferðasjóð 10. bekkinga og til frekari efl- ingar félagsstarf í grunnskólun- um. FRÉTTAVAKT 898 2222 899 2225 24 TÍMA VAKT Víkurfréttir og vf.is 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:27 Page 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.