Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 23.01.2003, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 13 Tímasetning: Barnið ætti að læra á sama eða svipuðum tíma á hverjum degi. Til dæmis strax og barnið kemur heim að loknum skóladegi. Best er að sinna heimanáminu áður en barnið er orðið þreytt. Barn sem er þreytt, hefur ekki ánægju af heimanáminu og er líklegt til að þræta við foreldra sína. Staðsetning: Margir staðir koma til greina, en æskilegt er að barn- ið temji sér að læra heima á einum stað en sé ekki á ferð um húsið. Sá staður sem valinn er þarf að henta barninu, lýsing þarf að vera góð og sæti og borð af réttri hæð. Mikilvægt er að foreldrar geti brugðist fljótt við ef barnið óskar aðstoðar. Mörgum hentar til dæmis vel að láta barnið læra við eldhúsborðið meðan verið er að undirbúa kvöldmatinn. Hvernig: Auðvitað þarf að setja skýr mörk en mikilvægast er já- kvætt viðhorf. Hafðu hugfast að heimanámið er stór hluti þeirra samveru sem þú átt með barninu. Hrósaðu barninu þegar vel geng- ur og vertu ekki feiminn við það. Hafðu hugfast að hegðun sem fær jákvæða athygli er líklegri til að endurtaka sig. Undirritaður spurði nemanda í 5. bekk að því hvernig foreldrar ættu að hjálpa börnum sínum við heimanám. Svör nemandans og vangaveltur voru eftirfarandi: Til foreldra: -Mikilvægast er að vera í góðu skapi -Vera ekki að horfa á sjónvarpið í leiðinni -Bara vera að hugsa um að hjálpa þeim -Koma strax þegar maður vill hjálp. -Hvetja þau, segja „þú getur þetta alveg“. -Gefa pásu þegar þau eru alltof þreytt á því -Láta læra heima strax þegar maður er búinn í skólanum Til barna: -Það sem maður getur ekki sjálfur á maður að biðja mömmu sína og pabba að hjálpa, ekki reikna það með vasareiknivél. -Vera með orkudrykk þegar maður er að læra mikið -Maður á að læra hjá sér sjálfum, inni í eldhúsinu eða í stofunni. Þá getur maður látið mömmu sína og pabba hjálpa sér strax. -Það er ekki gott að herma eftir öðrum, þá lærir maður ekkert Undirritaður getur ekki annað en tekið heilshugar undir vangavelt- ur nemandans og vonar að foreldrar taki til sín ráðleggingar hans og fari eftir þeim. Hafið hugfast að tilgangur heimanáms er að þjálfa þá færni sem kennararnir legga inn í skólanum. Ef hún er ekki æfð gleymist hún og verður ekki eiginlegur hluti af því sem barnið getur. Ef heima- náminu er samviskusamlega sinnt, eykur það líkur á góðum náms- árangri. Með því að hjálpa barninu við heimanámið er verið að leggja grunninn að þeim vinnusiðum sem munu fylgja barninu alla ævi Ef barnið temur sér góðar vinnuvenjur frá fyrstu tíð aukast líkurnar á því að barninu vegni vel í framtíðinni. Ef rétt er að staðið getur aðstoð við heimanám verið bæði foreldri og barni ánægjustund, ekki kvöð. Góða skemmtun. Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur á skólaskrifstofu Reykjanesbæjar. með barninu þínu? Hvernig sinnir þú GYLFI JÓN GYLFASON yfirsálfræðingur á skólaskrifstofu Reykjanesbæjar heimanáminu 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:16 Page 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.