Víkurfréttir - 23.01.2003, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 13
Tímasetning: Barnið ætti að læra á sama eða svipuðum tíma á
hverjum degi. Til dæmis strax og barnið kemur heim að loknum
skóladegi. Best er að sinna heimanáminu áður en barnið er orðið
þreytt. Barn sem er þreytt, hefur ekki ánægju af heimanáminu og
er líklegt til að þræta við foreldra sína.
Staðsetning: Margir staðir koma til greina, en æskilegt er að barn-
ið temji sér að læra heima á einum stað en sé ekki á ferð um húsið.
Sá staður sem valinn er þarf að henta barninu, lýsing þarf að vera
góð og sæti og borð af réttri hæð. Mikilvægt er að foreldrar geti
brugðist fljótt við ef barnið óskar aðstoðar. Mörgum hentar til
dæmis vel að láta barnið læra við eldhúsborðið meðan verið er að
undirbúa kvöldmatinn.
Hvernig: Auðvitað þarf að setja skýr mörk en mikilvægast er já-
kvætt viðhorf. Hafðu hugfast að heimanámið er stór hluti þeirra
samveru sem þú átt með barninu. Hrósaðu barninu þegar vel geng-
ur og vertu ekki feiminn við það. Hafðu hugfast að hegðun sem
fær jákvæða athygli er líklegri til að endurtaka sig.
Undirritaður spurði nemanda í 5. bekk að því hvernig foreldrar
ættu að hjálpa börnum sínum við heimanám. Svör nemandans og
vangaveltur voru eftirfarandi:
Til foreldra:
-Mikilvægast er að vera í góðu skapi
-Vera ekki að horfa á sjónvarpið í leiðinni
-Bara vera að hugsa um að hjálpa þeim
-Koma strax þegar maður vill hjálp.
-Hvetja þau, segja „þú getur þetta alveg“.
-Gefa pásu þegar þau eru alltof þreytt á því
-Láta læra heima strax þegar maður er búinn í skólanum
Til barna:
-Það sem maður getur ekki sjálfur á maður að biðja mömmu sína
og pabba að hjálpa, ekki reikna það með vasareiknivél.
-Vera með orkudrykk þegar maður er að læra mikið
-Maður á að læra hjá sér sjálfum, inni í eldhúsinu eða í stofunni.
Þá getur maður látið mömmu sína og pabba hjálpa sér strax.
-Það er ekki gott að herma eftir öðrum, þá lærir maður ekkert
Undirritaður getur ekki annað en tekið heilshugar undir vangavelt-
ur nemandans og vonar að foreldrar taki til sín ráðleggingar hans
og fari eftir þeim.
Hafið hugfast að tilgangur heimanáms er að þjálfa þá færni sem
kennararnir legga inn í skólanum. Ef hún er ekki æfð gleymist hún
og verður ekki eiginlegur hluti af því sem barnið getur. Ef heima-
náminu er samviskusamlega sinnt, eykur það líkur á góðum náms-
árangri.
Með því að hjálpa barninu við heimanámið er verið að leggja
grunninn að þeim vinnusiðum sem munu fylgja barninu alla ævi
Ef barnið temur sér góðar vinnuvenjur frá fyrstu tíð aukast líkurnar
á því að barninu vegni vel í framtíðinni.
Ef rétt er að staðið getur aðstoð við heimanám verið bæði foreldri
og barni ánægjustund, ekki kvöð. Góða skemmtun.
Gylfi Jón Gylfason
yfirsálfræðingur á skólaskrifstofu Reykjanesbæjar.
með barninu þínu?
Hvernig sinnir þú
GYLFI JÓN
GYLFASON
yfirsálfræðingur
á skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar
heimanáminu
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:16 Page 13