Víkurfréttir - 23.01.2003, Síða 4
MIKIÐ HEFÐI nú verið gaman ef Framsóknar-
menn hefðu valið Helgu Sigrúnu í fjórða sætið á
lista flokksins fyrir næstu kosningar - þeir gerðu
nefnilega mistök með
því að setja Vestmanney-
inginn í sætið. Ef Helga
hefði fengið fjórða sætið
þá er líklegt að Suður-
nesjamenn hefðu fylkt
sér um að kjósa Fram-
sókn til að ná henni inn.
Flokkurinn fékk þrjá
þingmenn í Suðurkjör-
dæmi í síðustu Gallup
könnunn og Helga hefði
setið í baráttusætinu. En sá draumur er víst úti að fá
annan Suðurnesjaframsóknarmann á alþingi.
KALLINN fékk gott bréf um daginn þar sem bent
var á að Fjölskyldu- og félagsmálaráð hafi lagt það
til við Bæjarstjórn að lagt yrði á 2000 króna gjald
fyrir hverja afgreiðslu á viðbótarláni. Hvað í ósköp-
unum er að gerast? Hverjir þurfa á þessum lánum
að halda? Á að fara að taka 2000 krónur af fólkinu
sem þarf á viðbótarlánunum að halda? Er það ekki
fólkið sem á minnstu aurana? Þótt 2000 krónur sé
lítil upphæð í augum pólitíkusanna sem leggja þetta
til, þá er verið að blóðmjólka þetta fólk í bankakerf-
inu með allskyns þjónustugjöldum, yfirdráttarvöxt-
um og hvað þetta allt nú heitir. Og bæjarstjórnin
ætti að skammast sín ef hún samþykkir þetta.
Skamm - svona gera menn ekki!
SANDGERÐISLISTINN hefur nú tekið Kallinn á
orðinu og boðað til borgarafundar um atvinnumál í
Sandgerði. Það var tími til kominn! Nú vill Kallinn
hvetja alla Sandgerðinga til að mæta og segja sína
skoðun á því hvernig tekið hefur verið á málum í
Sandgerði. Ætli Kallinn laumi sér ekki inn á fund-
inn!
ÞAÐ KOM fram í Víkurfréttum og Morgunblaðinu
fyrir stuttu að nú er að hefjast þjóðarátak um Ný-
sköpun. Átakið gengur út á að fólk með hugmyndir
fer á námskeið um það hvernig á að skrifa við-
skiptaáætlanir og ef vilji og áhugi er fyrir hendi get-
ur orðið til lítið eða stórt fyrirtæki. Á Suðurnesjum
búa 16 þúsund manns og án efa er einhver hluti
þess hóps með viðskiptahugmynd í kollinum. Ef að
þú ert með hugmynd og vilt koma henni í fram-
kvæmd og læra að skrifa viðskiptaáætlun - þá skaltu
taka þátt. Skráðu þig á www.nyskopun.is.
HUGSIÐ ykkur - kannski liggja frábærar hug-
myndir þarna úti sem kannski aldrei verður neitt úr.
Hugsið ykkur ef 10 hugmyndir kæmust til fram-
kvæmda hér á Suðurnesjum vegna þátttöku í þjóð-
arátakinu - 10 fyrirtæki yrðu sett á laggirnar með 1
til 5 eða fleiri starfsmönnum. Það gerist ef allir sem
hafa hugmynd í kollinum taka þátt. Það er sama
hvort um er að ræða sjávarútveg, iðnað, tölvutækni,
landbúnað, þjónustu eða hvað sem er. Hugmynd er
alltaf hugmynd, en til að skoða hvort hún gangi fjár-
hagslega upp þarf að skrifa viðskiptaáætlun. Skrá-
um okkur - og komum hugmyndum í framkvæmd.
GYLFI JÓN yfirsálfræðingur talar um það í viðtali
við Víkurfréttir varðandi fátækt „að fæða og klæða
börnin sín vel, gefa þeim kost á að sinna
áhugamálum eins og fótbolta eða tónlistarnámi, eða
fara með þeim í ferðalög telst í dag sjálfsögð mann-
réttindi en ekki munaður.“ Hvað meinar hann? Það
kostar um 15 þúsund fyrir 6 ára barn að stunda fim-
leika tvisvar í viku, aðra önnina. Það kostar um 50
þúsund að senda barn í tónlistarskóla og boðið er
upp á að greiða þessa upphæð í 2-3 hlutum. Af
hverju er ekki boðið upp á mánaðarlegar greiðslu,
t.d. með gíróseðli - það væri mun auðveldara. Það
er nógu dýrt að ætla að leyfa einu barni að stunda
eitthvað af því sem í boði er en þegar börnin eru
orðin 2 eða 3 hlýtur málið að vandast hjá mörgum.
Oftast er þó boðið upp á systkinaafslátt. Það er fullt
af fólki sem lifir ágætu lífi og hefur það ekki slæmt
en hefur þó ekki efni á áðurnefndum hlutum en
hefur það ekki nógu „slæmt“ til að geta leitað til
félagsþjónustunnar. Þegar fjármál fjölskyldunnar
eru orðin það slæm að leita þarf til
félagsþjónustunnar og aðstoð er veitt þá efast ég um
að efst í huga foreldra sé að koma börnunum í tón-
listarnám eða aðrar tómstundir, það hlýtur að vera
forgangsatriði að geta fætt og klætt fjölskylduna og
staðið undir mánaðarlegum greiðslum.
Kveðja, kallinn@vf.is
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKUR
FRÉTTIR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jófríður Leifsdóttir,
jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
MUNDI
Það er nokkuð ljóst að þorri
Suðurnesjamanna verður
„súr í bragði“ á morgun!
Kallinn á kassanum
ÍVíkurfréttum fimmtudag-inn 16. janúar 2003 er um-fjöllun í grein, merkt Kallin-
um á kassanum, um væntan-
lega aðalsafnaðarfundi safnað-
anna í Reykjanesbæ. Höfund-
ur greinarinnar byggir um-
fjöllun sína á upplýsingum frá
einhverjum sem finna hjá sér
hvöt til að hnjóða í það ágæta
fólk sem setið hefur lengi í
sóknarnefndum.
Í greininni er meðal annars sagt
að tuttugu ára seta í sóknarnefnd
sé of langur tími og valdi því að;
„Allt frumkvæði hverf i og
kirkjustarfið mótist af 20 ára
þrjósku þeirra aðila sem sitja í
sóknarnefndum“.
Að mínu mati er þessi umfjöllun
bæði ósanngjörn og særandi fyrir
það góða fólk sem setið hefur í
sóknarnefndum um langt árabil
hér í Reykjanesbæ. Þessa skoðun
mína byggi ég á tíu ára reynslu
minni sem sóknarnefndarmaður
og formaður í sóknarnefnd Ytri -
Njarðvíkursafnaðar. Á þessum
tíu árum starfaði ég með af-
bragðs góðu fólki í sóknarnefnd-
inni. Einnig kynntist ég öðrum
einstaklingum í sóknarnefndum
bæði í Kjalarnessprófastsdæmi
og í öðrum prófastsdæmum sem
unnu heilshugar að umbótum í
safnaðarstarfi, hver á sínum stað.
Þetta góða fólk sem vinnur í
sjálfboðavinnu og gefur af tíma
sínum við að tryggja vöxt og við-
gang safnaðarstarfsins á að mínu
mati annað skilið en þessi nei-
kvæðu skrif sem fram koma í
téðri grein.
Ég trúi því að umfjöllunin byggi
á vanþekkingu höfundar og beini
því til forráðamanna blaðsins að
þeir láti taka saman upplýsandi
umfjöllun um hið fjölbreytta og
áhugaverða starf sem unnið er í
sóknarnefndum og innan safnað-
anna. Með vandaðri umfjöllun
getur blaðið hjálpað fólki að gera
sér glögga mynd af því góða
starfi sem þar er unnið og þannig
orðið hvati þess að fleiri gefi kost
á sér til starfa innan safnaðanna.
Leifur A. Ísaksson,
fyrrverandi
sóknarnefndarmaður í
Ytri - Njarðvíkursöfnuði.
Opinn
fundur um
atvinnumál
í Sandgerði
Sandgerðislistinn boð-ar til opins fundarum atvinnumál í
Sandgerði fimmtudaginn
23. janúar 2003. Fundur-
inn fer fram á Veitinga-
húsinu Vitanum við Vita-
torg í Sandgerði og hefst
kl. 20:30. Frummælendur
eru Kristján Gunnarsson
formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavík-
ur og nágrennis, Ketill
Jósefsson forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar
Suðurnesja og Gunnar
Bragi Guðmundsson hjá
Ný-fiski ehf. í Sandgerði.
Ólafur Þór Ólafsson, odd-
viti Sandgerðislistans,
verður fundarstjóri.
Allir velkomnir.
Læknadeilan leysist ei
þótt Frú þar taki völdin.
Skyldi hún aka þessi mey
heim til sín á kvöldin.
Engin vafi á því leikur
að hún vilji nótt sem dag
enginn verði lengur veikur
þá sé borgið hennar hag.
Læknir enginn ennþá finnst
þótt flesta daga hún reyni.
Útlenda lækna hefur á minnst
að gæslunni nú streymi.
Það er hennar von og vísa
að hún klúðri öllu hér
best hún hverfi þessi skvísa
í staðinn komi læknar hér.
Karlinn á tunglinu
Til varnar sóknarnefndar-
fólki í Reykjanesbæ
Árni Ragnar
formaður
sjávarútvegs-
nefndar
Árni Ragnar Árnasonalþingismaður varkosinn formaður
sjávarút-
vegsnefndar
á fundi
hennar á
þriðjudag.
Einar Kr.
Guðfinns-
son hefur
látið af
störfum og tekur við for-
mennsku í efnahags- og
viðskiptanefnd í stað Vil-
hjálms Egilssonar sem
hverfur af þingi.
Árni hefur gengt þing-
mennsku frá árinu 1991.
Kallinum á kassan
um barst bréf
í pósti á dögunum
. Bréfið var
póstlagt í Keflavík
og er í
bundnu máli. Gjör
ið svo vel!
Ádögunum var undir-ritaður leigusamning-ur á milli Reykjanes-
bæjar og eigenda Hafnar-
götu 88 þar sem ný félags-
og menningarmiðstöð ungs
fólks í Reykjanesbæ mun
verða til húsa. Félagsaðstað-
an sem verið hefur í Fjör-
heimum flyst að Hafnargötu
88 og samkvæmt starfsáætl-
un Menningar-, íþrótta- og
tómstundasviðs fyrir árið
2003 er gert ráð fyrir að
nýja aðstaðan verði tekin í
notkun föstudaginn 08.08
klukkan 08.08 á þessu ári.
08.08
kl. 08:08
4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 16:40 Page 4