Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 6

Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Í tengslum við verkefnið“Nýsköpun 2003” sem ersamkeppni um viðskiptaá- ætlanir, verður boðið upp á námskeið í Reykjanessbæ þriðjudaginn 4. febrúar næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í Kjarna, húsnæði Reykjanes- bæjar við Hafnargötu 57 og stendur frá klukkan 17:15- 20:30. Fyrirlesari verður G. Ágúst Pétursson, verkefnis- stjóri samkeppninnar. Þátttak- endur greiða kr. 1.500.- fyrir kaffi og léttan málsverð í hléi en að öðru leyti er þátttaka ókeypis. Einfaldast er að skrá sig á heimasíðu verkefnisins sem er www.nyskopun.is og fá skráðir þátttakendur sent leið- beiningahefti og geisladisk með reiknilíkani og ýmsum fyrirlestrum sér að kostnaðar- lausu. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði sem þarf að hyggja að við gerð viðskiptaá- ætlunar. Ágúst fjallar um lausnina (viðskiptahugmynd- ina) og þörf fyrir hana, mark- aðsgreiningu og markaðssetn- ingu og sölu. Lítið er farið yfir fjármálin enda fá allir þátttak- endur ítarleg gögn og líkan til stuðnings við fjárhagskafla við- skiptaáætlunar. Síðan er tals- vert fjallað um undirbúning og verklag við gerð viðskiptaáætl- ana og að síðustu er fjallað lítil- lega um ferli fjármögnunar og fjárfestaumhverfi. Að sögn verkefnisstjóra keppn- innar hefur reynslan af fyrri námskeiðum verið mjög góð. Þátttaka hafi oftast verið tals- verð og reynt sé að hafa nám- skeiðið líflegt og skemmtilegt en forðast fræðilegar útlegging- ar. Ágúst vill undirstrika, að þátttaka í námskeiðum og raun- ar keppninni í heild kalli ekki á sérstaka reynslu eða menntun. Mestu skipti áhugi og trú á hugmyndir sínar. Annað atriði sem Ágúst leggur áherslu á er að hvetja fyrirtæk- in til að vera með. Það er að hans sögn vaxandi nauðsyn á þekkingu í gerð viðskiptaáætl- ana innan fyrirtækjanna því fjármálastofnanir gera nú orðið ríka kröfu um að fyrir liggi við- skiptaáætlun. En eru ekki fá fyrirtæki í beinni nýsköpun? Að sögn verkefnis- stjórans felst nýsköpun ekki bara í því að finna nýja gerð af tappatogara. “Segjum að fyrir- tæki ætli að herja á nýja mark- aði, þróa nýja vörulínu eða þjónustu eða bara endurskipu- leggja og lagfæra hjá sér rekst- urinn. Allt er það nýsköpun að okkar mati og því fyllilega til þess fallið að setja í viðskiptaá- ætlun. Annar áhugaverður flöt- ur er sá, að þegar fyrirtæki ræðst í að gera viðskiptaáætlun um starfsemina kvikna oftast þúsund nýjar og spennandi hugmyndir og menn fara að sjá hlutina í alveg nýju ljósi.” Veitt eru vegleg peningaverð- laun fyrir bestu viðskiptaáætl- anirnar sem berast í keppnina. Allir sem senda viðskiptaáætl- un keppa jafnframt um að verða í hópi fjögurra aðila sem keppa fyrir Íslands hönd í sér- stakri Evrópukeppni hug- mynda. Einnig geta keppendur sent stutta hugmyndalýsingu og þannig freistað þess að komast fyrir Íslands hönd í Evrópu- keppnina þótt ekki sé tími til að skrifa fullbúna viðskiptaáætl- un. Fyrirhugað er að að halda eitt vandað fjarnámskeið í lok febr- úar, sérstaklega ætlað fólki á völdum stöðum á landinu þar sem ekki verða haldin nám- skeið. Að Nýsköpun 2003 standa Nýsköpunarsjóður at- vinnulífsins, KPMG, Háskól- inn í Reykjavík, Morgunblaðið, Íslandsbanki og Byggðastofn- un. Þá má ekki gleyma þætti bæjarfélagsins, en Árni Sigfús- son, bæjarstjóri í Reykjanessbæ er áhugasamur um að vel takist til og styrkir aðkoma bæjarins keppnina til muna. Auk þess eru Síminn, Eimskip, Samherji og Nýherji stuðningsaðilar keppninnar. Skilafrestur við- skiptaáætlana og/eða hug- myndalýsinga er til 31. maí 2003. Reykjanesbær tekur þáttí verkefninu Þjóðarátakum nýsköpun með því að bjóða upp á aðstöðu til námskeiðahalds og koma að kynningarmálum um verk- efnið á Suðurnesjum. Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði á kynningarfundi sem haldinn var í Kjarna sl. þriðjudag um verkefnið að hann væri mjög ánægður með að bærinn kæmi að málinu og sagðist hann vona að sem flestir tækju þátt: „Það eru fjöl- margir aðilar sem hafa við- skiptahugmyndir í kollinum og það er nauðsynlegt fyrir þá að koma hugmyndum sínum niður í viðskipta- áætlun.Viðskiptaáætlunin er söluvara hugmyndasmiðsins og eykur möguleika hans á að koma hugmyndinni í framkvæmd. Ég vil eindregið hvetja einstaklinga, hversu lítil sem hugmyndin er, eða starfsfólk eða forsvarsmenn fyrirtækja til að nýta sér þetta tækifæri sem þeim býðst að kosntaðarlausu.“ Una Steinsdóttir útibússtjóri Íslandsbanka í Keflavík sagði að hún fengi nokkuð oft aðila til sín með viðskiptahugmyn- dir: „Það koma fjölmargir aði- lar með hugmyndir til okkar og óska eftir fjármagni til að koma hugmyndinni í framkvæmd. Þegar aðili kemur á fund til okkar og er með viðskip- taáætlun, aukast möguleikar hans til muna á að fá fjármagn að láni til að koma hugmyndin- ni í framkvæmd. Íslandsbanki hefur frá upphafi stutt dyggile- ga við bakið á litlum og meðal- stórum fyrirtækjum og það munum við gera áfram. Ég er mjög ánægð með að Íslands- banki í Keflavík taki þátt í þessu verkefni og vona að sem flestir nýti sér þetta tækifæri.“ Námskeið um gerð viðskiptaáætlana Frá kynningarfundi verkefnisins í Kjarna f.v. G. Ágúst Pétursson verkefnisstjóri, Halldór S. Magnason forstöðumaður fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, Una Steinsdóttir útibússtjóri Íslandsbanka í Keflavík og Árni Sigfússon bæjarstjóri. „Nýtið ykkur tækifærið“ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Guð veri með ykkur öllum. Elísabet Lúðvíksdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Kristján Guðmundsson, Lúðvík Jens Eggertsson, Agnes Dagný Friðriksdóttir, Jenný Olga Eggertsdóttir, Gunnar Þór Þormarsson, Helga Ágústa Eggertsdóttir, Bragi Páll Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. Eggerts A. Sigurðssonar, Miðgarði 10, Keflavík. Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kveldi 17. janúar. Útförin fer fram í Keflavíkurkirkju föstudaginn 24. janúar klukkan 15.30. Konráð Fjeldsted, Agnes Hólmfríður Konráðsdóttir, Gunnar Hans Konráðsson, Sigríður Pálsdóttir, Jóhann Kristján Konráðsson, Hanna Rósa Sæmundsdóttir, Friðrik Þór Konráðsson, Kolbrún Svala Júlíusdóttir, Sigfríður Pálína Konráðsdóttir, og barnabörn. ✝ Anna Soffía Jóhannsdóttir Hringbraut 86, Keflavík. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 16:43 Page 6

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.