Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Síða 20

Víkurfréttir - 23.01.2003, Síða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ITS ehf. (Tækniþjónustan Keflavíkurflugvelli) óskar eftir að ráða sér - fræðing í vöru stjórnun í innkaupadeild á Keflavíkurflugvelli. Innkaupa - deildin sér um innkaup á varahlutum í flugvélar sem ITS þjónustar. Starfssvið: Sérfræðingur í vörustjórnun skipuleggur innkaup og bestun á varahlutalager, stýrir innkaupum frá birgjum, sér um samninga á ósamningsbundnum vörum og tryggir að ábyrgðir séu nýttar. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í iðnaðar- eða vélaverkfræði eða sambærileg menntun. • Góð þekking á lagerstýringu og áreiðanleikagreiningum. • Gott vald á ensku. • Metnaður til að ná árangri. • Skipulögð og markviss vinnubrögð. • Góðir samskiptahæfileikar. • Stjórnunarreynsla æskileg en ekki nauðsynleg. Skriflegar umsóknir, sem tilgreini menntun og reynslu, óskast sendar starfsmannadeild Icelandair, aðalskrifstofu, Reykjavíkuflugvelli, netfang: stina@icelandair.is, eigi síðar en 27. janúar nk. Verkfræðingur/sérfræðingur • ITS er nýtt dótturfélag sem tók við starfsemi Tæknideildar Flugleiða hf. 1. jan 2003. Félagið annast viðhald flugvéla Icelandair og annarra flugfélaga. • ITS er framsækið fyrirtæki sem þekkt er á alþjóðavettvangi fyrir vönduð vinnubrögð og góða þjónustu. • ITS er leiðandi í viðhalds- og tækni- þjónustu fyrir flugvélar og skyldri starfsemi á Íslandi. • Hjá félaginu starfa um 170 starfsmenn og eru þeir lykillinn að velgengni þess. Lögð er áhersla á að starfsmenn séu þjónustulundaðir og tilbúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni á Íslandi og erlendis. • ITS leggur áherslu á þjálfun starfs- manna og hvetur starfsmenn til heilsuræktar og styður við félagsstarf þeirra. • ITS er reyklaust fyrirtæki. í vörustjórnun (logistics) Haraldur Axel Einarsson markahæsti leikmaður Víðis í Garði á sl. tímabili í knattspyrnunni hefur ákveðið að snúa aftur til síns heima og leika með Keflvíkingum í 1. deildinni í sumar. Hann þekkir vel til liðsins en hann lék með liðinu í gegnum alla yngri- flokka félagsins. Haraldur er fæddur árið 1981 og verður því 22 ára á þessu ári. Keflavík sigraði Víði, 5-2, í æfingaleik í Reykjaneshöllinni sl. laugardag. Mörk Keflavíkurliðsins skoruðu Zoran Ljubicic, Magn- ús Þorsteinsson, Jónas Sævar Garðarsson og Einar Daníelsson auk sjálfsmarks Víðismanna. Mörk Víðis skoruðu Unnar Elí Jó- hannsson og Kári Jónsson. Þess má til gamans geta að þjálfarar Víðis eru „gömlu kempurnar“, Karl Finnbogason og Kristinn Guð- brandsson, sem léku í vörn Keflvíkinga þegar þeir voru upp á sitt besta. Denise Shelton skoraði 56 stig og hirti 14 fráköst þegar Grinda- víkurstúlkur töpuðu í gegn ÍS, 92:95, í hörkuleik í 1. deild kven- na. Heimastúlkur höfðu yfirhöndina í hálfleik 59:52 og í 3. leik- hluta var jafnt 81:81. Það voru þó gestirnir sem voru sterkari í lokin og tryggðu sér að lokum sigur. Helgi Rafn Guðmundsson, taekwondokappi úr Sandgerði, nældi sér í bronsverðlaun á Norðurlandamótinu í taekwondo sem fram fór um helgina. Þetta var fyrsta mótið sem Helgi keppir á sam- kvæmt nýjum reglum í íþróttinni en þær gera ráð fyrir að hver bardagi sé í 3x2 mínútur og 3x3 í úrslitaflokknum. Helgi var að vonum ánægður með árangurinn. F lestir þeir sem hafa leikiðknattspyrnu undir stjórnhins gallharða þjálfara Kjartans Mássonar eru sam- mála um að hann á það til að velja aðrar slóðir en þær sem áður eru troðnar og á það ekki síst við þegar talað er um sam- skipti hans við leikmenn sína. Af þessu eru til margar magn- aðar sögur og skoðanir skiptar um álit manna á þeim, sem auðveldlega væri hægt að skri- fa heila bók um. Það vildi þan- nig til að ég var einn af hinum „heppnu“ sem lentu í kallinum og held ég að mínar sögur séu ágætis dæmi um frumlegar að- ferðir hans í þessum mála- flokki. Sú fyrri gerðist um haustið 1992 en þá kom ég til Keflavíkur ásamt Frey Sverrrissyni, sem þá hafði þjálfað mig undanfarin tvö ár, austur á Egilsstöðum. Ég stóð þá við völlinn og var að fylgjast með æfingu liðsins og vakti það athygli mína að það virtist eng- inn þjálfari vera til staðar. Hins vegar var einhver hjólbeinóttur karlskarfur í samfestingi og gríð- armiklum snjóbomsum vafrandi í kringum svæðið, sveiflandi höndum og tautandi eitthvað fyr- ir munni sér með reglulegu milli- bili. Freyr sendi mig svo upp í íþrótta- hús, því þar átti ég að hitta „karl- inn“ eins og hann orðaði það og kom í ljós að það reyndist vera enginn annar en „maðurinn í bomsunum“. Kjartan dró mig þá inn í kennaraherbergi þar sem hann settist niður og kveikti sér, þungur á brún, í „íþróttablysi“ og horfði svo á mig í nokkrar sek- úndur með svip, blönduðum pirr- ingi og áhugaleysi áður en hann spurði loks: „Jæææææja, ert þú að spá í að koma hérna og æfa með okkur, segirðu?“. Ég, sveita- pilturinn með drauminn, var nú orðinn hálf frosinn á þessum tímapunkti en náði þó að koma upp úr mér einhverju sem líktist „já“ og vonaðist þá eftir að hann segði annað hvort að honum litist vel á það eða að ég hefði fengið góð meðmæli frá Frey eða ein- hverju í þá áttina, en það var öðru nær. Kjartan starði á mig nokkra stund eða þar til hann byrjaði allt í einu að skellihlæja og hrista hausinn eins og hann hefði ekki heyrt betri brandara í áraraðir. Hlátursgusa þessi stóð í um fimm mínútur eða þangað til hann labbaði út, eldrauður í framan eftir áreynsluna og þar með var þeim fundinum lokið. Þegar svo fór að líða á sumarið komst ég loks í leikmannahóp meistaraflokks og var í fyrsta skipti á varamannabekknum í heimaleik á móti ÍBV. Þegar ein- ungis 6 mínútur eru liðnar af leiknum meiðist hinn yfirvegaði miðvallarleikmaður Georg Birg- isson illa og gefur strax merki í átt að bekknum um að hann þurfi nauðsynlega að koma af leik- velli. Freyr Sverris, sem þá var liðsstjóri og ekki nærri því orð- inn fertugur tók manna fyrstur eftir þessu og kallaði strax til Kjartans: „Goggi er búinn“. Kjartan svaraði honum strax í þjáningar- og vonleysistón: „NNNEEEEEEIIIIIIII“ og leit svo með örvæntingarsvip til hlið- ar, yfir varamannabekkinn í um 5 sek. áður en hann hann setti báð- ar hendur á hnakka, hristi höfuð- ið rólega og kom svo með þessa líka yfirgengilegu traustsyfirlýs- inguna: „O,boy, O,boy,O,boy... Eysteinn, farðu að hita upp“. Skipti þá engum togum, ég spratt upp eins og stálfjöður og náði að taka þarna einhverjar þrjár hné- lyftur áður en mér var hent inn á völlinn. Þess má geta að Freyr sá alfarið um skiptinguna og sá ég Kjartani bregða fyrir þegar ég var að fara úr gallanum, með höfuðið falið í höndum sér, og var ekki annað að merkja á látbragði hans en að hann væri endanlega búinn að gefa upp alla von um stig í sarpinn, þetta kvöldið. Hvort sem mönnum finnast þetta nú vera réttar eða rangar aðferðir í upp- byggingu ungra leikmanna hjá karlinum, stendur sú staðreynd eftir að ég var hreinlega eins og pinball kúla úti um allan völl þetta kvöldið og átti ágætis leik í 4-0 sigri. Kjartan segist nú vera hættur að þjálfa. Við sem höfum orðið svo lánsamir að upplifa einstaka leið- sögn hans á knattspyrnuvellinum í gegn um tíðina erum flestir sammála um að þó hann sé og verði sjálfsagt alltaf umdeildur, í ljósi óhefðbundinna aðferða sinna, verði umræðan um hann af sömu sökum alltaf lífleg og áhugaverð. :: eftirminnilegt atvik Traustsyfirlýsing Kjartans Fyrst og fremst! ... meira á vf.is 4. tbl. 2003 - BLS 20-21 22.1.2003 17:23 Page 20

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.