Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 23

Víkurfréttir - 23.01.2003, Page 23
VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 I 23 Alfa í Hvíta- sunnukirkjunni F immtudaginn 23. janúarkl. 20.00 verður kynn-ingarkvöld á Alfa í Hvítasunnukirkjunni að Hafnargötu 84. Kvöldið er opið öllum og einungis kynn- ing til að hjálpa þér að á- kveða hvort Alfa er námskeið fyrir þig en ókeypis er inn. Alfa námskeiðið hófst í Englandi fyrir u.þ.b. 20 árum. Námskeiðið er nú haldið í um 130 löndum í flestum kirkju- deildum. Áætlað er að yfir 4 milljónir manna hafi sótt nám- skeiðið. Alfa er tíu vikna námskeið, einu sinni í viku þar sem fjallað er um grundvallaratriði krist- innar trúar á einfaldan og þægi- legan hátt. Alfa er fyrir alla sem leita vilja svara við spurningum lífsins. Upplýsingar gefur Kristinn í síma 697 7993 og Björgvin í síma 695 6417 Grunnskólar Suðurnesja lægstir í könnun Námsmatsstofnun hefurbirt niðurstöður úr sam-ræmdum prófum í ís- lensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk grunnskóla. Meðalein- kunnir grunnskóla á Suður- nesjum voru lægstar yfir land- ið í þremur samræmdum próf- um. Í íslensku voru einkunn- irnar lágar, bæði í 4. og 7. bekk. Skólarnir á Suðurnesj- um komu hinsvegar vel út í stærðfræði í 4. bekk og voru þar yfir landsmeðaltali, en í 7. bekk var útkoman í stærð- fræði slakari. Vilhjálmur Ketilsson skólastjóri Myllubakkaskóla sagði í samtali við Víkurfréttir að á undanförn- um tveimur arum hafi verið sér- stakt átak í íslensku og stærð- fræði en átakið virðist einungis hafa skilað sér í bættum árangri hjá fjórða bekk í stærðfræði: „Við getum verið sátt við stöð- una hjá 4. bekk í stærðfræði en það er ljóst að við verðum að reyna að finna út hvað hægt er að gera með íslenskuna og stærð- fræðina hjá 7. bekk og íslensk- una hjá 4. bekk. Við höfum verið að vinna ötullega í þessum mál- um síðustu tvö ár. Við höfum legið yfir því hvað til bragðs eigi að taka og ég er bjartsýnn á að við bætum árangurinn í þessum greinum,„ sagði Vilhjálmur í samtali við Víkurfréttir. Veitingastaðurinn Jia Jia hefur sett fram nýjan matseðil þar sem m.a. er boðið upp á ódýr „take away“ tilboð og verð á almenn- um matseðli hefur verið lækkað. Síðustu daga hefur verið mikið að gera og segir Jens Beining Jia eigandi veitingastaðarins að fólki líki þetta vel: „Frá því við opnuð- um staðinn í nóvember hefur verið mikið að gera hjá okkur. Við tókum ákvörðun um að bæta matseðilinn, lækka verð og bjóða upp á aukið úrval í „Take away“. Við erum einnig með sérstök til- boð á staðnum þar sem í boði eru 5-6 réttir“. Nýr matseðill á Jia Jia Grindavík Vegna mikillar sölu undanfarið óskum við eftir öllum stærðum af eignum á söluskrá. Verðmetum samdægurs, þér að kostnaðarlausu. Síminn er: 421 1700 4. tbl. 2003 - 24 LEIDRETT 22.1.2003 17:56 Page 23

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.