Víkurfréttir - 28.08.2003, Blaðsíða 10
Vindurinn var báðum liðum
erfiður þegar RKV og Sindri
mættust í úrslitakeppni 1.
deildar kvenna á Sandgerðis-
velli. Heimaliðið var sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik og eftir
15 mínútur kom Bergey Erna
Sigurðardóttir RKV yfir með
góðu marki. Í seinni hálfleik
snérist taflið og gestirnir sóttu
meira. Það var korter liðið af
hálfleiknum þegar Jóna
Benny Kristjánsdóttir jafnaði
metin með glæsilegu skoti.
Sindri hélt áfram að sækja en
RKV fékk nokkur hættuleg
færi í skyndisóknum. Ágústa
Jóna Heiðdal átti stórleik í liði
RKV, barðist eins og ljón all-
an leikin og réðu Sindrastúlk-
ur ekkert við hana. Hvorugu
liðinu tókst að bæta við marki
og endaði leikurinn með 1-1
jafntefli.
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindavík - KR
Á mánudagskvöld mæta Grindvík-
ingar liði KR í Grindavík og má bú-
ast við hörkuleik. „Stærstu leikirnir
á leiktíðinni eru gegn KR og við
erum spenntir fyrir þeim leik. Það
yrði ekki ónýtt að setja strik í reikn-
inginn hjá þeim í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitilinn. Við ætlum að
stríða þeim, það er öruggt,“ sagði
Óli Stefán Flóventsson í samtali við
Víkurfréttir.
Evrópuleikur í Grindavík í kvöld
Í kvöld fer fram leikur í Evrópu-
keppninni þar sem Grindavík mætir
Austurríska liðinu Karten. Grindvík-
ingar náðu að setja eitt mark í
viðureign liðanna sem fram fór í
Austurríki, en Karten sigraði með
tveimur mörkum gegn einu. Það
má því búast við hörkuleik í Grinda-
vík í kvöld.
4. flokkur Keflavíkur í úrslit
Keflavíkurliðið í 4. flokki náði þeim
frábæra árangri á fimmtudaginn
að tryggja sér sæti í úrslitakeppn-
inni um Íslandsmeistaratitilinn.
Keflavík þurfti fara á Selfoss og sig-
ur þar hefði tryggt liðinu sæti í úr-
slitakeppninni, en jafntefli varð nið-
urstaðan og þá þurfti liðið að bíða
eftir úrslitum í leik ÍBV og Leiknis. Ef
Leiknir hefðu unnið með átta
marka mun hefðu þeir komist
áfram og Keflavík setið eftir, en
Leiknir vann 1-0 og Keflavík er kom-
ið í úrslitin.
Keflavík heimsótti Leiftur
Á laugardag heimsótti lið Keflavíkur
Leiftur á Dalvík og sigraði Keflavík
þann leik með tveimur mörkum
gegn einu. Magnús Þorsteinsson
sóknarmaður í liði Keflavíkur skor-
aði fyrra markið og segir hann að
liðið hafi verið lengi í gang. „Við vor-
um lengi í gang og fæðingin frekar
erfið. Við vorum að klúðra góðum
færum, en markmaðurinn þeirra
stóð sig mjög vel, enda var hann
valinn maður leiksins.“
Gulltryggja Keflvíkingar
sig í næsta leik?
Næsti leikur Keflavíkurliðsins er á
laugardaginn þar sem liðið tekur á
móti HK í Keflavík. Magnús segir að
sá leikur verði kláraður og staða
Keflavíkurliðsins þannig gulltryggð.
Magnús segir tímabilið búið að
vera gott, frábær andi og góð
stemning hafi verið í liðinu.
sportið
Reynismenn voru kjöl-dregnir á Sandgerðis-velli af vel skipulögðu
liði Hattar. Stíf austanátt kom
í veg fyrir að hægt væri að
spila áferðarfallega knatt-
spyrnu og virtust þessar að-
stæður henta austanmönnum
betur.
Hattarmenn léku með vindinn í
bakið í fyrri hálfleik og það tók
þá aðeins 5 mínútur að nýta sér
það þegar Daninn Peter Nørgaard
skoraði fyrsta mark leiksins.
Gestirnir gáfu Reynismönnum
hvorki tíma né pláss til að byggja
upp spil. Höttur notaði hvert
tækifæri til að gefa langar há-
loftasendingar inn fyrir vörn
heimamanna og sköpuðu snöggir
framherjarnir oft stórhættu við
Reynismarkið. Eftir hálftíma
leik skoraði Vilmar Sævarsson
annað mark Hattar og tíu mínút-
um síðar skoraði Peter Nørgaard
sitt annað mark og kom gestun-
um í 3-0. Reynismenn náðu ekki
að vakna upp frá martröð sinni
og eymdin var algjör á lokamín-
útu fyrri hálfleiksins þegar mark-
vörðurinn Eyþór Örn Haraldsson
missti fasta fyrirgjöf í eigið net.
Það var rétt mínúta liðin af seinni
hálfleik þegar Guðmundur G.
Gunnarsson minnkaði muninn í
4-1. Reynismenn mættu sem
grenjandi ljón til hálfleiksins og
ætluðu greinilega að nýta sterkan
meðvind til að laga stöðuna.
Höttur dró lið sitt til baka og þrátt
fyrir að ná að skora strax í upp-
hafi hálfleiksins var erfitt fyrir
heimamenn að komast í gegnum
þéttskipaða vörn gestanna.
Linnulaus sókn Reynis skapaði
fá færi og þau sem fengust voru
ekki nýtt. Um miðjan háfleikinn
fór Guðmundur G. Gunnarsson
meiddur af velli eftir ljótt brot frá
Loga Birgissyni og við það virt-
ust Reynismenn missa sköpunar-
gáfuna í sóknarleiknum. Þegar
fimm mínútur voru til leiksloka
náði Höttur sinni þriðju sókn í
hálfleiknum, Þórarinn Borgþórs-
son slapp þá einn inn fyrir vörn
Reynis og skoraði. Ari Gylfason
minnkaði muninn tveimur mínút-
um síðar með góðu skoti en það
var of lítið og seint, sannfærandi
5-2 Hattarsigur var staðreynd á
Sandgerðisvelli.
Reynismenn mættu Hetti í síðari
leik liðanna á Egilsstöðum á
þriðjudagskvöld. Höttur sigraði
Reyni 5:3 og er því ljóst að
Reynismenn komast ekki upp
um deild og verða áfram í 3ju
deild
Slakur leikur í Sandgerði
Grindvíkingar sigruðuÞróttara 3:2 á Laugar-dalsvelli á sunnudags-
kvöld í mikilvægum leik lið-
anna. Á 30 mínútu skoraði
daninn Sören Hermansen fyr-
sta mark Þróttara og hleypti
það miklu lífi í Grindvíkinga
sem skoruðu mark stuttu síðar
sem var dæmt af. Eftir að hafa
fengið aukaspyrnu skoraði
Guðmundur Andri Bjarnason
mark fyrir Grindvíkinga á 35.
mínútu og aðeins þremur mín-
útum síðar skoraði Paul Mc-
Shane aftur mark fyrir Grind-
víkinga. Þriðja mark Grindvík-
inga kom svo á 76. mínútu þeg-
ar Óli Stefán Flóventsson skor-
aði ágætismark. Þróttarar
skoruðu sitt annað mark á 84.
mínútu eftir vítaspyrnu frá
Sören Hermansen.
Óli Stefán Flóventsson sagði í
samtali við Víkurfréttir að fyrri
hálfleikurinn gegn Þrótturum
hefði verið nokkuð jafn. „Í seinni
hálfleik voru Þróttarar betri. En
við vorum skynsamir og sterkir
aftast í vörninni og náðum að
verjast og það var það sem skipti
máli,“ sagði Stefán.
Þakka stuðninginn
Við undirritaðar, stúlkur í 3. fl kvenna í Reyni í Sandgerði viljum þakka
þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem hjálpuðu okkur að
komast í fótbolta skóla í Englandi nú í sumar, takk fyrir hjálpina og
stuðninginn: Ásdís, Margrét, Steinunn, Ástrós, Fanney og Karen Helga.
Keppt verður laugardaginn 30.
ágúst, byrjað verður í keflavík
við Flugstöðina í Trukkadrætti kl
11, kl. 12 verðum við í Sam-
kaupum Keflavík með Kross-
festugrein síðan verður farið í
Sandgerði kl. 13:30 - kl. 16 verð-
um við í Grindavík, þar verður
keppt í hönd yfir hönd og endað í
Hafnarfirði við Fjörukránna í
Skógarhöggi. Maggi Magg, Jón
Valgeir, Bergur, Georg, Ægir og
Grétar Guðmunds eru meðal
keppenda, einnig á eftir að bæta
við einni til tveimur greinum.
Grindvíkingar styrkja stöðu sína
Jafntefli hjá Reynisstúlkum
Suðurnesjatröllið 2003
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 12:30 Page 10