Víkurfréttir - 28.08.2003, Side 19
VÍKURFRÉTTIR I 35. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 28. ÁGÚST 2003 I 19
Allar verslanir Bónuss verða lokaðar næstkomandi sunnudag, 31.
ágúst, vegna vörutalningar. Vörutalningar hjá Bónusi eru gerðar
tvisvar á ári, í lok febrúar og lok ágúst.
Opið verður frá kl. 10.00 til 19.30 á föstudeginum og 10 til 18 á
laugardeginum og eru viðskiptavinir Bónuss hvattir til að gera
helgarinnkaupin snemma. Opnað verður aftur kl. 12 á mánudeg-
inum með tilboðum að hætti Bónuss.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Marteinsson fram-
kvæmdastjóri í síma 691-9999.
Nú er skátastarfið aðhefjast á ný eftir útileg-ur og fleiri skemmtileg
störf í sumar, en við ætlum að
byrja fundi 1. september nk.
undirbúningur stendur yfir
fyrir dagskrá á Ljósanótt og
vonandi taka sem flestir skátar
þátt í dagskránni.
Við vonum að við sjáum sem
flesta í starfið og fleiri ný andlit.
Skráning í skátafélagið Heiðabúa
og Víkverja verður á fimmtudag
28. og föstudag 29. ágúst á milli
16 og 18 í skátahúsinu í Kefla-
vík. Skráning í skátastarfið í
Garðinum í þeirra skátahúsi á
sama tíma. Skráning í skátastarf-
ið í Sandgerði á sama tíma í
skátahúsinu þar.
Einnig er hægt að skrá sig á
Ljósanótt og á netinu
www.heidabuar.tk
Árgjaldið er kr. 6000 pr. barn en
veittur er systkinaafsláttur.
Barnakór hefur starfsemisína í Keflavíkurkirkju ínæstu viku. Kórinn
mun starfa fyrir börn í 2. til 4.
bekk grunnskóla og æfa einu
sinni í viku fyrst um sinn. Allir
krakkar úr Reykjanesbæ á
þessum aldri eru velkomnir í
kórinn.
Kórinn mun koma fram við ein-
staka messur og tónleika á veg-
um kirkjunnar. Eins verður lögð
áhersla á félagslega virkni kórs-
ins, með því að heimsækja aðra
kóra og fara í æfingabúðir. Eins
verður stofnað foreldrafélag við
kórinn og foreldrar hvattir til þess
að styðja við bakið á börnunum
í kórstarfinu og taka virkan þátt í
foreldrastarfinu. Æfingar munu
fara fram í Kirkjulundi safnaðar-
heimili Keflavíkurkirkju á mið-
vikudögum klukkan 16. Fyrsta
æfing verður miðvikudaginn 1.
september. Kórgjöld eru engin en
hógvær kostnaður getur fylgt
kórferðalögum og öðru slíku í
starfi kórsins. Stjórnendur kórs-
ins eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir
sópransöngkona og Hákon Leifs-
son kantor kirkjunnar. Bylgja Dís
er Suðurnesjamönnum að góðu
kunn sem einsöngvari en hún
lauk burtfararprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík nú nýverið.
Hákon hefur starfað við Kefla-
víkurkirkju sem organisti tvö síð-
astliðin ár.
...sumarstúlkur Qmen...
...í Tímariti Víkurfrétta 4. september 2003...
Stofnun barnakórs
Keflavíkurkirkju
Fréttatilkynning frá skátafé-
laginu Heiðabúar Keflavík
Lokað sunnudaginn 31. ágúst
- vegna vörutalningar
Úrslit Íslandsmóts 4. flokks karla
í knattspyrnu verða haldin í
Keflavík um helgina. Leikirnir
fara fram á Keflavíkurvelli, Iða-
völlum og Njarðvíkurvelli. Þátt-
tökulið í mótinu eru ásamt Kefla-
vík, Afturelding, Breiðablik og
KA. Það eru átta lið í úrslitum og
einn riðillinn spilaður hér í
Keflavík og hinn í Reykjavík.
Efstu lið riðlanna spila hreinan
úrslitaleik um Íslandsmeistaratit-
ilinn á fimmtudag í Fylkisvelli í
Reykjavík.
Spennandi helgi hjá 4. flokki
VF-ljósmynd: hrós
VF KEF 35. tbl. 24 V 27.8.2003 13:49 Page 19