Víkurfréttir - 09.10.2003, Síða 2
stuttar
F R É T T I R
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ Á V E T T V A N G I L Í Ð A N D I S T U N D A R
➤ H É R A Ð S D Ó M U R R E Y K J A N E S S
Rúmlega þrítugur karlmaður var ídag dæmdur í Héraðsdómi Reykja-ness í tveggja ára fangelsi fyrir að
nauðga konu í Sandgerði í janúar á þessu
ári. Maðurinn var dæmdur til að greiða
fórnarlambi sínu 600 þúsund krónur í
miskabætur, auk málsvarnarlauna og
þóknunar til réttargæslumanns að upphæð
600 þúsund krónum.
Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi
ásamt öðrum manni ekið konunni heim af
skemmtistaðnum Casino í Keflavík til Sand-
gerðis. Þegar þangað var komið óskaði mað-
urinn eftir að fá að fara á salerni hjá konunni.
Þegar maðurinn kom af salerninu segir konan
að hann hafi þröngvað sér til samræðis með
valdi og komið fram vilja sínum. Í dómnum
kemur fram að konan hafi lamast af hræðslu
og ekki getað hreyft sig meðan maðurinn
kom fram vilja sínum. Þegar maðurinn var
farinn hringdi konan í vinkonur sínar sem
komu henni til skoðunar á neyðarmóttöku
nauðgunar á Landsspítala - Háskólasjúkra-
húsi.
Framburður konunnar þótti trúverðugur fyrir
héraðsdómi, en framburður mannsins þótti
ótrúverðugur. Segir í dómnum að háttsemi
mannsins beri fullkomið virðingarleysi gagn-
vart kynfrelsi konunnar og að hún hafi orðið
fyrir alvarlegu andlegu og tilfinningalegu
áfalli, sem komi til með að há henni um
ókomna framtíð. Einnig kemur fram í dómn-
um að konan hafi ekki þekkt manninn neitt
og að hún hafi ekki gefið honum neitt tilefni
til að ætla að hún vildi hafa við hann kynmök
og að hún hafi beðið hann um að hætta, en
hann þá neytt aflsmunar og þröngvað hana til
kynmaka. Segir í dómnum að maðurinn eigi
sér engar málsbætur.
Dæmdur í
þriggja mánaða
skilorðsbundið
fangelsi
Maður á þrítugsaldrivar í HéraðsdómiReykjaness dæmd-
ur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi til tvegg-
ja ára fyrir að hafa slegið
mann í andlitið með bjór-
glasi í veitingahúsinu Stap-
anum í desember á síðasta
ári.
Maðurinn sem sleginn var
marðist og bólgnaði á hægra
kinnbeini, hlaut fjölda smá-
skurða á vinstri kinn og langan
skurð frá hægra kinnbeini og
fram með kjálka. Fyrir dómi
játaði maðurinn að hafa slegið
manninn, en sökum ofneyslu
áfengis kvaðst ákærði ekki
muna eftir verknaðinum.
Ákærði var einnig dæmdur til
að greiða allan sakarkostnað,
þar með talin 100 þúsund
króna málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns. Dóminn kvað
upp Jónas Jóhannsson héraðs-
dómari.
Kynning á smíði
og samsetningu
flugmótela
F lugmódelfélag Suður-nesja mun standa fyr-ir kynningu á smíði og
samsetningu flugmódela
sunnudaginn 12. október nk.
kl. 19:30. Kynningin fer
fram í Kjarna (aðstöðu
Reykjanesbæjar á 2. hæð)
Kynntur verður flughermir og
myndbönd tengd módelflugi
verða sýnd. Kynning þessi er
styrkt af (MÍT) menningar,
íþrótta og tómstundaráði
Reykjanesbæjar.
Áhugasamir eru hvattir til að
mæta . Allir velkomnir
Stjórn Flugmódelfélags
Suðurnesja
Félagsfundur verðurhaldinn mánudaginn13. október kl.20 í
Sjálfstæðishúsinu í Njarð-
vík. Félagskonur eru hvattar
til að mæta hressar og kátar
eftir sumarfrí. Einnig eru
aðrar konur hvattar til að
mæta og kynna sér starfið
hjá kvenfélaginu Njarðvík.
Stjórnin.
Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun í Sandgerði
Kvenfélagið Njarðvík
Félagsfundur
Fyrsta vetnisknúna fiski-skip veraldar munhugsanlega koma frá
Grindavík, en fyrirtækið Þor-
björn Fiskanes tekur þátt í
verkefni á vegum Nýorku sem
miðar að vetnisvæðingu fiski-
skipaflotans. Tilkynnt var um
verkefnið á laugardag þegar
tveir vetnisknúnir strætis-
vagnar voru teknir í notkun í
Reykjavík, en vagnarnir eru
hluti af vetnisverkefni sem
meðal annars er á vegum Evr-
ópusambandsins. Hjálmar
Árnason alþingismaður var
heiðraður sérstaklega við
þetta tilefni þar sem hann hef-
ur verið einn helsti frumkvöð-
ull þessa verkefnis. Það er fyr-
irtækið Nýorka sem heldur
utan um verkefnið hér á landi,
en fyrirtækið er í eigu Daim-
ler Chrysler, Shell, Norsk
Hydro og íslenskra fyrirtækja
og stofnana. Framkvæmda-
stjóri Nýorku er Jón Björn
Skúlason sem eitt sinn starf-
aði á vegum Markaðs- og at-
vinnuskrifstofu Reykjanes-
bæjar.
Fjölmörg erlend og íslensk fyr-
irtæki taka þátt í verkefninu um
vetnisvæðingu fiskiskipaflotans.
Að sögn Hjálmars Árnasonar er
ætlunin að 100 tonna fiskiskip
verði vetnisknúið og segir
Hjálmar að það sé vel hugsan-
legt að fyrsta vetnisknúna fiski-
skip veraldar kæmi frá Grinda-
vík. „Þorbjörn Fiskanes hefur
haft mikinn áhuga á því að taka
þátt í þessu verkefni. Með vetni-
svæðingu fiskiskipaflotans er
tilgangurinn að minnka um-
hverfismengun og ekki síður
hávaðamengun, því með vetnis-
vél hættir titringur frá vélinni og
hávaði hverfur. Mér finnst þetta
verkefni verulega spennandi og
skemmtilegt að það skuli tengj-
ast Suðurnesjum með svo marg-
víslegum hætti sem raun ber
vitni,” sagði Hjálmar í samtali
við Víkurfréttir.
Þorbjörn Fiskanes þátttakandi í verkefni tengdu vetnisvæðingu fiskiskipaflotans:
Fyrsta vetnisknúna fiski-
skip veraldar úr Grindavík?
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 13:16 Page 2