Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2003, Page 10

Víkurfréttir - 09.10.2003, Page 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! skólalífið Á S U Ð U R N E S J U M ➤ Á B E N D I N GA R U M E F N I - j o h a n n e s @ v f. i s ➤ Um 40 nemendur 10.bekkjar í Holtaskóla íReykjanesbæ sjá um gæslu á lóð skólans í tveimur frímínútum á hverjum degi. Hóparnir eru alls 10 sem skip- ta niður með sér dögunum. Verkefnið kallast Útlit og var það sett á laggirnar að frum- kvæði Foreldrafélags Holta- skóla. Verkefnisstjóri er Guð- laug María Lewis deildarstjóri efstu bekkja í Holtaskóla. Að sögn Alberts Eðvaldssonar formanns foreldrafélagsins hafði félagið uppi hugmyndir um að bæta gæslu á skólalóðinni í frí- mínútum. „Við fengum fljótlega hugmynd um að elstu krakkarnir í skólanum myndu sjá um gæsl- una á lóðinni og létta þannig starf kennaranna. Skólastjórnendur tóku mjög vel í hugmyndina og hafa séð um alla skipulagningu hennar eftir að foreldrafélagið mótaði hana,” segir Albert. Áhugi nemenda 10. bekkjar er mikill og segir Albert að þau séu mjög spennt fyrir verkefninu, en þau fá umbun fyrir starf sitt. “Nemendurnir sem sjá um gæsl- una sýna mikla ábyrgð og skyn- semi. Það hefur svo sannarlega náðst að virkja ábyrgðargenið hjá þeim, en skólalóð Holtaskóla er nokkuð stór og yngstu krakkarnir ráfa oft út fyrir lóðina. Starfsfólk skólans er einnig mjög ánægt með þetta og það virðist sem þetta verkefni hafi þjappað öllum deildum skólans vel saman,” seg- ir Albert en hann hefur heyrt af því að í kjölfar þessa verkefnis hafi nemendur í einum 7. bekk skólans skipulagt leiki fyrir yngstu krakkanna, þannig að það sem elstu krakkarnir eru að gera hefur smitað út frá sér. Eftir 3 til 4 vikur verður farið yfir verkefn- ið með krökkunum. „Krakkarnir sem sinna gæslunni fá sérstök eyðublöð þar sem þau fylla hvað gerðist á viðkomandi degi. Við ætlum að setjast niður með krökkunum í næsta mánuði og útbúa skýrslu um það hvernig til hafi tekist. Við viljum einnig fá hugmyndir frá krökkunum um það sem megi bæta. Eins og ég hef sagt hafa þau sýnt þessu mik- inn áhuga og hafa nú þegar kom- ið með hugmyndir sem bæta þetta starf.” Umbun nemendanna sem sjá um gæsluna felst í því að þau fá 75 þúsund krónur í ferðasjóð 10. bekkjar, en á hverju vori fara bekkirnir í skólaferðalag. Albert segir að foreldrafélagið hafi sent inn umsókn í forvarnarsjóð Menningar-, íþrótta-, og tóm- stundaráð Reykjanesbæjar þar sem sótt hafi verið um 75 þúsund króna styrk. „Við fengum styrk til verkefnisins í sumar og fer þessi styrkur í ferðasjóð 10. bekkjar. Þessi styrkur er náttúru- lega heilmikil gulrót fyrir krakk- ana.” Í haust þegar skólastarf hófst var haldin sérstök vika þar sem rætt var um einelti í skólanum, en það var gert í tengslum við Útlit. „Þetta var þemavika þar sem m.a. Jón Páll Hallgrímsson frá Regnbogabörnum kom og hélt fyrirlestur fyrir krakkana. Það var alveg merkilegt að sjá að hann hélt þeim við efnið í eina klukku- stund.” Markmiðið með þema- vikunni var að gera nemendur meðvituð um einelti í hvaða myndum sem það birtist, bæta samskipti milli nemenda og hvet- ja þau til að taka ábyrgð í málum sem tengjast einelti. Þá erum við ekki að tala um að þau grípi til einhverra aðgerða, heldur séu ekki þátttakendur og láti vita ef eineltismál koma upp. Það kom sterklega fram í þessari viku að nemendur eru alfarið á móti ein- elti og vilja sporna við því. Það var verulega áhugavert að heyra hugmyndir nemendanna sjálfra um það hvernig koma megi í veg fyrir það og það var mjög gaman að heyra þau koma sínum hug- myndum á framfæri. Það sýnir líka hve meðvituð þau eru þegar þau fóru að ræða um það að ein- elti geti líka stafað frá kennur- um,” segir Albert en í kvöld mun Jón Páll Hallgrímsson frá Regn- bogabörnum halda fyrirlestur um einelti fyrir foreldra í Holtaskóla. Fyrir skömmu var haldiðupp á evrópskan tungu-máladag og dag stærð- fræðinnar í Holtaskóla. Á tungumáladaginn spreyttu nemendur sig á ólíkum evrópsk- um tungumálum með ýmsum hætti. Á yngsta stigi sungu nem- endur lagið Meistari Jakob fyrir eldri nemendur á íslensku, ensku, frönsku og þýsku við góðar und- irtektir. Á miðstigi unnu nem- endur m.a. með spænsku og kyn- ntu sér orð yfir liti og tölur og ýmsar þær matartegundir sem börnum á þessum aldri þykja spennandi. Að auki fundu þeir orð á ensku, dönsku, frönsku og ítölsku yfir matarílát. Einnig stóð nemendum til boða að fá evr- ópska pennavini sem margir nýttu sér. Á unglingastigi bjuggu nemendur til stór veggspjöld með „veggjakroti” á ýmsum tungumálum sem nú skreyta ganga skólans. Yfirskriftin var vinátta, ást og kærleikur og flögguðu nemendur setningum á borð við “Hugs not Drugs,” „Care 4 Life,” og „Skolen er Fedt.” Dagur stærðfræðinnar var nú haldinn í fjórða sinn að tilstuðlan Flatar, samtaka stærðfræðikenn- ara. Þemað í ár var tími og rúm. Allir nemendur skólans tóku þátt í getraun þar sem þeir giskuðu á eða reyndu að reikna út fjölda kubba eða perlur í mæliglasi. Þrautirnar voru miserfiðar eftir skólastigum. Nemendur beittu ýmsum aðferðum til að finna út sem nákvæmast svar og veitt voru vegleg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin á hverju stigi. Til við- bótar við getraunina fór fram margs konar vinna tengd yfir- skrift stærðfræðidagsins. Til dæmis fóru nemendur út og fundu ýmis konar form í nánasta umhverfi skólans t.d. þríhyrn- inga, ferhyrninga og rétthyrn- inga. Aðrir röðuðu sér upp á skólalóðinni og mynduðu hvasst og gleitt horn. Allar þessar uppákomur hafa glatt bæði nemendur og kennara og gef ið skólastarf inu aukið gildi. Elstu nemendur gæta þeirra yngstu Albert Eðvaldsson formaður foreldrafélagsins. Frá gæslu elstu nemenda á þeim yngstu. Myndin var tekin við Holtaskóla í gærmorgun. Tungumáladagurinn og stærðfræðidagurinn Nemendur á unglingastigi mynda hvasst horn á skólalóðinni. Verðlaunahafar í stærðfræðigetraun á yngsta stigi. Verðlaunahafar í stærðfræðigetraun á miðstigi. Verðlaunahafar í stærðfræðigetraun á unglingstigi. VF -lj ós m yn d/ Jó ha nn es K r. Kr ist já ns so n VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 12:05 Page 10

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.