Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 41. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. OKTÓBER 2003 I 21 BAG í samstarfi viðMET-Rx fæðubótarefnifrá Medico eru að hefja nýtt aðhaldsnámskeið sem slegið hefur í gegn á höfuð- borgarsvæðinu nú í haust. Námskeiðið heitir Fitnessbox aðhald og er ætlað konum og körlum á öllum aldri. Kennt verður fjórum sinnum í viku, mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 06:30 og á laugardögum kl. 10:00 Á námskeiðinu verður farið í þær æfingar sem stundaðar eru í boxi, allt frá sippi til tæknilegra box æfinga. En áhersla er lögð á mikla fitubrennslu og aukið þol. Til að tryggja gott aðhald verður fyrirlestur um rétt mataræði og fylgst með því út námskeiðið, auk þess sem einstaklingar verða mældir og vigtaðir. Vegleg verð- laun í boði MET-Rx verða fyrir mestan árangur. Kennarar á námskeiðunum verða Guðjón Vilhelm, hnefaleikaþjálf- ari og Jón Oddur Guðmundsson, en hann hefur mikla reynslu í Fit- nessboxi og þjálfun tengda lík- amsrækt. Námskeiðið hefst nk. mánudag 13. október og er skráning hafin í síma 863 7095. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis hefurráðið Björn Svein Björnsson sóknarprest á Útskálum til aðannast verkefni trúnaðarráðgjafa á vegum félagsins. Hann mun sinna atvinnutengdri sálgæslu sem meðal annars tekur til atvinnumissis, eineltis og annarra áreita sem kunna að koma á vinnu- stað. Viðtalstímar hans verða á fimmtudögum frá kl: 12.00 til 14.00 á skrifstofu félagsins, eða eftir nánara samkomulagi. Séra Björn Sveinn Björnsson til VSFK Fitnessbox aðhald í BAG ➤ H R E Y S T I O G H R E Y F I N G ➤ A Ð S E N T Níðingsverk framið í Sandgerði Laugardaginn 4. októ-ber var ég ásamt fjöl-skyldu minni að drekka sídegiskaffi sem ekki er merkilegt það gera flestir, en þá heyri ég að bíll sem leið á um Hjallagötu í Sandgerði gefur í og fer á mikla ferð. Nokkru síðar kemur nágranni minn og tilkynnir mér að kötturinn minn sé dáinn það hafi ver- ið keyrt á hann. Þessi vesal- ingur sem vann þetta níð- ingsverk stakk af og sýndi mikla hetjudáð. Ég vona að þú lesir þetta kannski vinur, því það gæti hitt svo illa á að næst yrði barn á vegi þínum. Þarna eru oft mikið af börnum að leik og eiga leið um þá er spurn- ing hvort bremsupetalinn er nær eða bensíngjöf in. Ég vona að þú lærir af þessu. Köttur er sagður eiga 9 líf en í þetta skiptið átti hann bara eitt greyið. Virðingarfyllst Sigurður Þorleifsson Hjallagötu 4 245 Sandgerði. VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 11:47 Page 21

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.