Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ K E F L A V Í K U R F L U G V Ö L L U R
Halldór Ásgrímsson, ut-anríkisráðherra, tókformlega í notkun nýtt
19 þúsund fermetra fragtflug-
hlað á Keflavíkurflugvelli sl.
föstudag. Í frétt frá Flugmála-
stjórn segir að á síðustu árum
hafi mikil aukning verið í
fraktflutningum til og frá
Keflavíkurflugvelli: „Vöru-
flutningar voru samtals tæp 42
þúsund tonn á síðasta ári, þar
af var útflutningur um 25 þús-
und tonn og hefur rúmlega
tvöfaldast á sjö árum.”
Einnig kemur fram að búist sé
við áframhaldandi aukningu í
fraktflugi frá Keflavíkurflugvelli
á næstu árum, þar sem fyrirtækin
IGS, dótturfélag Flugleiða og
Vallarvinir hafa reist sérhæfðar
fraktmiðstöðvar í þeim tilgangi
að bæta þjónustu við útflytjend-
ur. Í fréttinni kemur fram að
fragtflughlaðið muni bæta vöru-
meðhöndlun með betri tengingu
við fragtmiðstöðvarnar og verður
hægt að þjónusta allt að fjórar
vöruflutningavélar á flughlaðinu
samtímis: „Hönnun þessa sér-
hæfða fragtflughlaðs hófst í fyrra
og eru hönnuðir þess Almenna
verkfræðistofan og Rafhönnun.
Framkvæmdin var boðin út á
vegum Ríkiskaupa nú á vordög-
um og buðu alls fjórir aðilar í
verkið, en lægstbjóðandi voru Ís-
lenskir aðalverktakar. Fram-
kvæmdir hófust 9. maí sl. og
lauk þeim þann 18. september sl.
Yfirumsjón verksins var í hönd-
um Framkvæmdasýslu ríkisins
en eftirlitsaðili var Verkfræði-
stofa Suðurnesja. Heildarkostn-
aður við verkið nam 195 milljón-
um króna,” segir í fréttinni.
Línuveiðiskipið Kristinn Lárusson GK sem fiskvinnslufyrirtækið Ný-
fiskur í Sandgerði hefur gert út er farið aftur til veiða eftir eins og hálfs
árs stopp. Tvær vikur eru síðan skipið fór sína fyrstu veiðiferð eftir
stoppið og segir Birgir Kristinsson framkvæmdastjóri Nýfisks að verið
sé að reyna að gera skipið út á nýjan leik. Veiðiheimildir eru leigðar á
skipið en Birgir segir að stefnt sé að því að kaupa kvóta á skipið þegar
til lengri tíma sé litið. Birgir segir að ágætlega hafi gengið með skipið
síðan það hóf veiðar að nýju, en að eftir svona stopp þurfi að slípa
hlutina til og segist hann vera bjartsýnn á útgerð Kristins.
Nýtt fraktflughlað tekið í notkun
Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri aðstoðar Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra við að klippa á borðann
á nýja fraktflughlaðinu sem formlega var tekið í notkun fyrir síðustu helgi.
VF
-lj
ós
m
yn
d/
Jó
ha
nn
es
K
r.
Kr
ist
já
ns
so
n
Línuveiðiskipið Kristinn
Lárusson GK aftur á sjó
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 12:04 Page 8