Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Á föstudag kemur út nýr geisladiskur frá söngkonunni Leoncie sem ber nafnið „Radio Rapist - Wrestler” en á diskn- um eru 13 lög. Tólf laganna eru á ensku og eitt lag er sung- ið á íslensku. Þetta er 5. geisla- diskurinn sem Leoncie gefur út en hún hefur verið búsett á Ís- landi í rúm 20 ár. Leoncie sagði í samtali við Víkurfréttir að diskurinn væri mjög sérstakur. “Þetta er hart rokk og ég get lof- að algjörri bombu. Þeg- ar ég spilaði á Ljósanótt fann ég að unglingun- um líkaði mjög vel við efnið af nýja disknum og fagnaðarlætin voru heil- mikil,” segir Leoncie, en hún er mjög iðin við að semja tónlist. Á næstunni mun hún halda tónleika í Keflavík þar sem hún mun kynna nýja diskinn, en hún er töluvert bókuð vegna tónleikahalds. „Ég mun á næstunni halda tónleika í Keflavík og er núna að athuga með stað sem ég get spilað á.” Uppistandið „Hitt” kennir þér að lækka lostann og hjálpar þér að öðlast fullkomna kyn- ferðislega ófullnægju. Þetta er tilval- ið námskeið fyrir alla þá sem vilja vinna meira og gera minna af „hinu.” „Hitt” er íslensk upp- færsla á uppistandi austur- ríska atferlisfræðingsins Bern- hards Ludwigs um hvernig á að öðlast fullkomna kynferðis- legu ófullnægju. Aðrar sýning- ar Ludwigs kenna fólki m.a. að fá hjartaáfall og að verða virki- lega feitt. Blanda hans af stað- reyndum og uppistandi hefur slegið í gegn um allan heim og núna er komið að því að kenna Íslendingum að gera „hitt” og gera það betur. Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir nálgast þetta viðkvæma mál af svo hárfínni og vísindalegri ná- kvæmni að áhorfendur vita hreinlega ekki hvort þeir eiga að hlæja, gráta, skrifa lesenda- bréf eða bara drífa sig heim í rúmið. „Hitt” er fullkomlega örugg lækning við húmors- leysi, tepruskap og fjölmörgum öðrum andlegum kynsjúkdóm- um.Verkið verður forsýnt í Frumleikhúsinu í Reykjanes- bæ 9. og 10. október nk. I Ð A N D I M A N N L Í F Á S U Ð U R N E S J U M Þú getur lært að verða áhugalaus um kynlíf Nýr geisladiskur frá Leoncie Framhlið geisladisksins „Radio Rapist - Wrestler” frá Leoncie. VF -lj ós m yn d/ Jó ha nn es K r. Kr ist já ns so n Það var mikið fjör í Stapan- um á 40 ára afmælissýningu Hljóma frá Keflavík sl. laug- ardag, en um 250 matargestir voru á sýningunni. Hljómar stigu á svið rúmlega tíu og spiluðu fram til miðnættis fyr- ir matargesti. Hljómar tóku gömul lög í bland við ný lög sem eru á nýju plötunni þeirra. Gestir tóku vel undir, enda lögin þekkt s.s. Þú og ég, hey hey heyrðu mig góða, bláu augun þín og fjölmörg önnur. Salurinn tók virkilega vel undir þegar Hljómar tóku lag sem þeir tileinka Keflavík, Gamli bærinn minn. Stemn- ingin var gríðarlega góð og Hljómar slógu ekkert af í kraftmiklum tónlistarflutn- ingi. Matargestir voru mjög ánægðir með sýninguna og matinn, en í aðalrétt var fyllt- ur lambahryggur. Klukkan tólf á miðnætti stigu Árni Sig- fússon bæjarstjóri og Harald- ur Helgason veitingamaður í Stapa á svið og afhentu Hljómamönnum blóm og að því loknu stjórnaði bæjar- stjóri afmælissöng til handa Hljómum. 40 ára afmæli Hljóma í Stapanum Árni Sigfússon bæjarstjóri og Haraldur Helgason veitingamaður í Stapa tóku afmælissönginn fyrir Hljóma og tóku gestir vel undir. Gríðarleg stemmning myndaðist í Stapanum á Hljómasýningunni eins og þessi mynd ber með sér. Aldrei betri Hljómar ein einmitt nú! FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1 Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð. Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með. Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna. Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 13:57 Page 16

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.