Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 09.10.2003, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ U P P B Y G G I N G Auglýsingasíminn 421 0000 ÞARFTU AÐ AUGLÝSA? Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, jonas@vf.is Auglýsingadeild: Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0009, jofridur@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is MUNDI A tvinnu- og hafnaráð Reykjanesbæjarhefur falið hafnarstjóra Reykjaneshafn-ar og Verkfræðistofu Suðurnesja að semja við Íslenska aðalverktaka um framleng- ingu á verktíma vegna framkvæmda á lóð IPT í Helguvík. Gert er ráð fyrir því að magnaukning vegna sprenginga verði 110.040m3, jarðvegsskipti munu kosta 63 milljónir kr. og viðbótarverk 10,7 milljónir kr. vegna vegagerðar Selvíkur ofl. Heild- arkostnaður vegna mana, kjarnafyllingu í vegi og skolplagnar við Ægisgötu, auk lýsingar og mal- biks í Helguvík er áætlaður kr. 76.9 milljónir kr. Viðbótarkostnaði verður vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar sem gerð verður í október 2003. Ekki eru fyrirhugaðar breytingar árekstri Samkaupa hf. eftir að Kaup-félag Suðurnesja keypti eignarhluta Kaldbaks hf. í Samkaupum í byrjun vik- unnar. Eftir kaupin á Kaupfélag Suður- nesja um 97% hlutafjár. Að sögn Skúla Skúlasonar hjá Samkaup hf. verða áfram reknar skrifstofur á Akureyri. Skúli segir breytingarnar á eignarhaldi hafi ekki átt sér langan aðdraganda. Hann sagði að fljótlega verði boðað til hluthafafundar þar sem ný stjórn félagsins verði kosin. Samkaup hf. var stofnað 1998 utan um versl- unarrekstur Kaupfélags Suðurnesja. Samkaup hf. og Matbær ehf., félag um verslunarrekstur Kaupfélags Eyfirðinga, sameinuðust svo árið 2001. Kaupfélag Suðurnesja og KEA , síðar Kaldbakur h.f. hafa verið aðaleigendur fé- lagsins þar til nú að Kaldbakur hefur selt hlut sinn. Félagið hefur rekið á þriðja tug matvöruversl- ana á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vestfjörðum og Norðurlandi undir nöfnum Nettó, Kaskó, Samkaupa, Úrvals, Strax og Sparkaupa. Að auki rekur félagið kjötvinnsl- una Kjötsel í Njarðvík og kostverslunina Val- garð á Akureyri. Guðjón Stefánsson, framkvæmdastjóri Sam- kaupa var á ferðinni í höfuðstað Norðurlands í gær þar sem hann var að vísitera verslanir Samkaupa á Akureyri. Hann sagði í stuttu spjalli við Víkurfréttir að Samkaup stefndi að því að auka hlutdeild sína á matvörumarkaði og að horft væri sérstaklega til höfuðborgar- svæðisins í þeim efnum, en fyrirtækið er með um 16% hlutdeild af matvörumarkaðnum hér á landi. „Samkaup ætlar að halda áfram að vinna á landsbyggðinni og þjóna henni um leið og sótt verður inn á höfuðborgarsvæðið. Það er staðföst skoðun okkar að halda þess- um rekstri áfram og ná aukinni markaðshlut- deild á matvörumarkaðnum.” Fjallað er um Samkaup í leiðara Morgun- blaðsins í gær en þar segir orðrétt: „Enginn vafi leikur á því að þörf er á aukinni sam- keppni á þessum markaði. Markaðsstaða Baugs hefur um skeið verið svo sterk að aðrir hafa átt mjög erfitt með að veita fyrirtækinu öfluga samkeppni. Frá þjóðfélagslegu sjónar- miði er hins vegar æskilegt að á þessu sviði sem öðrum sé hæfilegt jafnvægi á milli þeirra sem keppa á markaðnum,” segir í leiðaranum, en þar kemur einnig fram að fróðlegt verði að sjá hvernig nýir eigendur Samkaupa vinni að því að auka markaðshlutdeild sína: „Þeir hafa sýnt að þeir kunna að reka matvöruverslanir og þess vegna ekki fráleitt að aukin umsvif þeirra boði einhver tíðindi,” segir í leiðara Morgunblaðsins í gær. Tónlistarmennirnir Magn-ús Eiríksson og KK verðameð tónleika í Stapanum í Njarðvík nk. föstudagskvöld, 10. október. Tónleikarnir byrja upp úr kl. 21 en miðasalan opnar í Stapa kl. 20:30. Hér leiða saman hesta sína, einir ástsælustu tónlistarmenn þjóð- arinnar. Magnús Eiríksson og KK slá upp í tónleikaferðalag um landið í september. Tilefn- ið er nýútkominn geisladiskur þeirra „22 ferðalög” sem hefur selst í um 12.000 þús. eintökum fram til þessa og stefnir í sölu- met ef ferðalagið heldur svona áfram. Ferðalagið hófst í byrj- un september. í Þórsmörk og stendur fram í október þar sem komið er aftur „inn á möl- ina”. Með í för verður kvik- myndatökulið sem stendur að heimildamyndatöku um ferð- ina. Stefnt er að því að frumsýna af- rakstur þáttagerðar við þetta ferðalag í haust og verður án efa áhugavert að sjá hvað drífur á daga Magga og KK. Á disknum eru vel valin íslensk dægurlag sem öll eiga það sameiginlegt að vera í uppáhaldi hjá Íslendingum við samkomur og ferðalög. Það skemmtilega er við diskinn er að inni í umslaginu má finna texta sem og gítargrip við lögin, þannig hægt er að grípa í gítarinn og taka undir hvenær sem er. Lög eins og „Ó Jósep, Jósep”, „Kötukvæði” og „Viltu með mér vaka” liggja vel í höndum meist- aranna og er alveg sérstök upplif- un að heyra lögin flutt í þeirra út- gáfu.Þeir félagar leituðu álits hjá Jónatan Garðarssyni á Ríkisút- varpinu um lagaval þar sem tekið var mið af lagaspilun í Ríkisút- varpinu í gegnum árin en beittu eigin innsæi og þekkingu sem gefist hefur af áralöngum ferli við ákvörðun. Þetta er fjórða platan sem vinirnir gera saman og er það gagnkvæm virðing og sterkur vinskapur sem gerir þetta samstarf svo skemmtilegt og ein- lægt. Kristján Kristjánsson, KK, sagði í samtali við Víkurfréttir að hann væri spenntur að koma til Keflavíkur að spila. „Mér finnst yndislegt að koma á Suðurnesin, minn gamla bæ til að spila. Við munum taka gamalt efni frá okkur báðum og lög af nýju plö- tunni. Við munum líka taka nokkkra blúsara og lofum góðri skemmtun.“ ➤ M E N N I N G O G M A N N L Í F - Breytingar á rekstri ekki fyrirhugaðar Suðurnesjamenn eignast Samkaup hf. að fullu Íslandsolía í Helguvík A tvinnu- og hafnaráðReykjanesbæjar hefursamþykkt að úthluta Ís- landsolíu ehf. lóð nr. 14 við Hólmsbergsbraut í Helguvík fyrir 2. og 3ja áfanga eldsneyt- isbirgðastöðvar. Íslandsolía fékk úthlutað lóð nr. 16 í Helguvík fyrir eldsneytis- birgðastöð þann 11. janúar 2002 og var ákveðið að framlengja þá úthlutun með þeim fyrirvara að framkvæmdir yrðu hafnar innan 3ja mánaða. Samþykkt var að úthluta lóð nr. 14 fyrir 2. og 3ja áfanga ef fram- kvæmdum á lóð nr. 16 yrði lokið fyrir 1. júní 2004. Reykjaneshöfn mun afturkalla lóðarúthlutunina ef tímamörk eru ekki virt og ekki endurgreiða kostnað sem hlýst af fram- kvæmdum á vegum Íslandsolíu ehf. Maggi Eiríks og KK á tónleikum í Stapa Samið um áframhaldandi vinnu á lóð IPT í Helguvík Hvenær hefst olíuævintýrið í Helguvík? VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 13:09 Page 4

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.