Víkurfréttir - 09.10.2003, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Það voru margir semlögðu leið sína í Fjöl-brautaskóla Suðurnesja
á laugardag, en þar fór fram
kynning á starfsemi skólans á
opnum degi. Gestir gátu litið
við í hefðbundnum kennslu-
stundum og kynnt sér náms-
efni. Það var eitthvað um að
vera í öllum stofum og sagði
Ólafur Jón Arnbjörnsson
skólameistari í samtali við Vík-
urfréttir að mikið fjölmenni
hefði komið við í skólanum.
Boðið var upp á tónlist á sal
skólans og meðal annars leit
þar við 50 manna kór og tók
nokkur lög.
Undanfarin misseri hefuratvinnuástand í málm-iðnaði á Suðurnesjum
verið slæmt og farið versnandi.
Þegar þannig árar hverfa mörg
fyrirtæki af markaði en önnur
draga saman seglin.
Undanfarið hafa fjölmörg fyrir-
tæki í málmiðnaði á Suðurnesj-
um gripið til fækkunar málmiðn-
aðarmanna. Traust og öflug fyrir-
tæki, með áratuga reynslu, hafa
gripið til uppsagna. Sem dæmi
má nefna að undanfarna mánuði
hafa Íslenskir aðalverktakar h/f
gripið til þeirra ráðstafana að
segja stórum hluta málmiðnaðar-
manna sinna upp störfum á
járnaverkstæði sínu á Keflavíkur-
flugvelli. Járnaverkstæði ÍAV á
Keflavíkurflugvelli hefur um ára-
bil verið eitt öflugasta járnaverk-
stæði landsins og því eru tíðindin
um fjöldauppsagnir þar mikill
skellur fyrir atvinnulífið á Suður-
nesjum. Fyrir u.þ.b. einu ári
störfuðu þar fast að 20 málmiðn-
aðarmenn en eftir að uppsagnir
þar taka gildi verða einungis eftir
5 starfsmenn og sér hver maður
að með því er dregið verulega úr
þeim miklu möguleikum sem
verkstæðið hefur til að taka að
sér stór og flókin verkefni sem
hingað til hefur verið sérstaða
þess.
Flestir af þeim málmiðnaðar-
mönnum sem sagt hefur verið
upp störfum undanfarið eru með
gríðarlega yfirgripsmikla starfs-
reynslu og langan starfsaldur í
málmiðnaði.
Eins og fram hefur komið er at-
vinnuástand í málmiðnaði á Suð-
urnesjum ekki gott og ekki mikl-
ar líkur á að þeir málmiðnaðar-
menn sem hafa verið að láta af
störfum eða munu láta af störfum
á næstunni, fái starf við sitt hæfi
hér á Suðurnesjum. Brottflutn-
ingur þaulreyndra og sérhæfðra
málmiðnaðarmanna af Suður-
nesjum, vegna bágs atvinnuá-
stands, er nokkuð sem hafa verð-
ur verulegar áhyggjur af og mun,
ef af verður, hafa veruleg áhrif á
samfélagið á Suðurnesjum.
Nauðsynlegt er að stjórnvöld á
Suðurnesjum haldi vöku sinni
gagnvart atvinnumálum á svæð-
inu. Suðurnesin mega alls ekki
við að missa þann fjölda hæfra
málmiðnaðarmanna burt af
svæðinu sem fyrirsjáanlegt er að
hverfi ef ekkert verður að gert,
því með því tapast dýrmæt þekk-
ing sem erfitt verður að byggja
upp að nýju.
Sigfús Rúnar Eysteinsson
formaður Iðnsveinafélags
Suðurnesja
➤ I Ð N S V E I N A F É L A G S U Ð U R N E S J A
➤ F J Ö L B R A U TA S K Ó L I S U Ð U R N E S J A
Slæmt atvinnuástand í
málmiðnaði á Suðurnesjum
Fjölmenni á opnum degi í FS
Fimmtíu manna kór tók lagið.
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 12:09 Page 20