Víkurfréttir - 09.10.2003, Síða 25
VÍKURFRÉTTIR I 41. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. OKTÓBER 2003 I 25
og veitti mikla mótspyrnu. Lög-
reglumenn þurftu að halda
Ágústi inn í klefanum þar til
hann róaðist,” segir orðrétt í
skýrslunni og tekið er fram að
hann hafi hlotið “einhver sár á
handleggjum eftir handjárnin
vegna þess að hann reyndi
stöðugt að toga járnin í sundur og
komast úr þeim.”
Man fyrst eftir sér í fangaklefanum
Ágúst segist fyrst muna eftir sér í
fangaklefanum eftir handtökuna.
„Það stóðu lögreglumenn í kring-
um mig og voru að skoða augun
á mér og spurðu mig hvort þeir
mættu leita á mér sem ég svaraði
játandi. Lögreglumaðurinn byrjar
að þukla á vösunum á buxunum
mínum. Síðan slokknar aftur á
mér og það næsta sem ég man er
að það eru rosaleg læti inn í
fangaklefanum og það var búið
að keyra mig niður í beddann
sem er í klefanum. Ég lá í svita-
polli á maganum og handjárnað-
ur aftur fyrir bak. Ég lá á bekkn-
um og lögreglumennirnir keyrðu
hnén í bakið á mér,” segir Ágúst
og bætir því við að honum hafi
liðið eins og hann hafi verið að
kafna. „Ég var grátandi, allur í
slefi, svita og tárum og mér leið
eins og ég væri að kafna. Ég
grátbað þá um að hætta og sagði
að ég yrði góður. Ég sá lögreglu-
menn í kringum mig á meðan ég
var keyrður niður og síðan
slokknar aftur á mér. Það næsta
sem ég man er að það er öskrað
að foreldrar séu komnir. Síðan
man ég eftir mér í bílnum á leið-
inni heim með mömmu.”
Biðu í 20 mínútur á lögreglustöðinni
Hafdís móðir Ágústar segir að
vinkona sín hafi komið heim til
þeirra og sagt henni frá slysinu.
Þegar Hafdís var á leið út um
dyrnar segir hún að annað vitnið
á vettvangi hafi komið og sagt
henni frá því sem gerðist. Hún
hafi þá farið beint niður á stöð og
þegar þangað kom hafi Ingólfur
Jónsson sambýlismaður hennar
verið kominn þangað. Þau segj-
ast ítrekað hafa sagt við lögreglu-
mann sem ræddi við þau að
Ágúst væri flogaveikur og að þau
krefðust þess að fá að fara til
hans, en þau segjast hafa heyrt
hróp og vein frá Ágústi úr fanga-
klefanum. „Lögreglumaðurinn
sem var á staðnum sagði að við
mættum ekki fara til Ágústar, en
við töldum sem foreldrar hans að
við mættum fara til hans og
reyna að róa hann niður og hjálpa
honum. Lögreglumaðurinn sagði
okkur að bíða,” segir Ingólfur og
telur að þau hafi beðið hátt í 20
mínútur á lögreglustöðinni áður
en þau hafi fengið að hitta Ágúst.
Hafdís segir að þau hafi strax lát-
ið vita að Ágúst væri flogaveikur
og að þau þyrftu að komast til
hans. “Það var ekkert hlustað á
mig þannig að ég ákvað að
hringja niður á heilsugæslu þar
sem ég fékk samband við yfir-
lækni. Um leið og lögreglumað-
urinn heyrði að ég væri kominn
með lækni í símann þá hvarf
hann á bakvið. Læknirinn vildi fá
að ræða við lögregluna, en ég
marghringdi bjöllunni og kallaði
en mér var ekki svarað. Stuttu
síðar komu lögreglumennirnir
fram og sögðu okkur að við
mættum koma,” segir Hafdís og
þegar þau komu inn var búið að
sleppa Ágústi. “Þeir voru búnir
að hleypa honum á klósettið og
þar var hann búinn að kasta mik-
ið upp. Þegar ég sá hann var
hann rennandi blautur af svita og
ég fékk að fara með hann heim
þar sem ég kom honum í rúmið,”
segir Hafdís.
Í lögregluskýrslunni kemur fram
að lögreglumaður hafi rætt við
Hafdísi þegar hún kom á lög-
reglustöðina og útskýrt fyrir
henni að Ágúst hafi verið mjög
æstur og “því hefði þurft að grípa
til þeirra aðgerða sem gert var.” Í
lögregluskýrslunni segir síðan
orðrétt: „Ágúst fór síðan heim
með móður sinni en ekki var
hægt að ræða við Ágúst sökum
veikinda hans.”
Fjölskyldan ósátt
Það sem Hafdís og Ingólfur
gagnrýna helst í vinnubrögðum
lögreglunnar er harðræði við
handtöku Ágústar. Þau segja að
vitnin í málinu hafi sagt þeim að
lögreglumenn á vettvangi hafi
verið látnir vita af flogaveiki
Ágústar. „Það skipti greinilega
engu máli og það sem við erum
líka gríðarlega ósátt við er að
honum hafi verið hent í fanga-
klefa í stað þess að fara með
hann á heilsugæsluna. Lögreglan
vissi að hann væri flogaveikur,”
segja þau.
Fjölskylda Ágústar segist hafa
fundið fyrir kjaftasögum um að
Ágúst hafi verið undir áhrifum
eiturlyfja þegar áreksturinn átti
sér stað. Ágúst segir að hann hafi
vissulega komist í kast við lögin í
gegnum árin, en að hann hafi
ekki verið undir áhrifum eitur-
lyfja. “Ég hef lent í slagsmálum
þegar ég hef verið fullur og ég
viðurkenni það. Lögreglan hefur
haft afskipti af mér nokkrum
sinnum, en ég er nokkurn veginn
hættur að drekka enda veit ég að
ég má ekki drekka með lyfjunum
sem ég tek inn vegna flogaveik-
innar,” segir Ágúst. Hafdís móðir
hans segir að þó Ágúst eigi sér
einhverja fortíð gagnvart lögregl-
unni þá eigi ekki að koma fram
við einstaklinga á þann hátt sem
gert var, sérstaklega ekki þar sem
vitneskja var til staðar um að
Ágúst væri flogaveikur. “Ágúst
er enginn engill. Hann hefur
mikið skap og hann hefur lent í
lögreglunni. Hann er ekki glæpa-
maður. En drottinn minn dýri,
svona á ekki að fara með veika
einstaklinga.”
Hörð gagnrýni á störf lögreglunnar
Þau segja ástæðuna fyrir því að
þau hafi nú ákveðið að skrifa rík-
issaksóknara bréf þar sem þau
krefjast rannsóknar á málinu, sé
fólgin í því að þau vilji ekki að
svona endurtaki sig. “Lögreglan
á ekki að koma svona fram við
veika einstaklinga. Ágúst er svo
sannarlega ekki sá eini sem er
flogaveikur á Íslandi. Hann hefði
getað dáið í fangaklefanum
vegna meðferðar lögreglumann-
anna á honum,” segir Hafdís og
þau eru ósátt við margt í vinnu-
brögðum lögreglunnar í þessu
máli. “Við erum ósátt við það
hvernig lögreglumennirnir tóku á
málum á vettvangi þar sem hann
var handtekinn með valdi þótt
þeir vissu að hann væri floga-
veikur. Við erum ósátt við það að
hann hafi verið fluttur í fanga-
klefa í stað heilsugæslunnar. Við
erum ósátt við framkomu lög-
reglumanna þegar við fengum
ekki að ræða við Ágúst á stöð-
inni og við erum gríðarlega ósátt
við það hvernig farið var með
Ágúst í fangaklefanum. Við von-
uðumst eftir því að Lögreglan í
Keflavík myndi hafa samband
við okkur og biðja okkur afsök-
unar, en við höfum ekkert heyrt.
Við erum einnig ósátt við það og
þess vegna óskum við eftir þess-
ari rannsókn.”
Ágúst segist mjög ósáttur við
vinnubrögð lögreglunnar í máli
hans. “Ég bara skil ekki hvernig
þessir lögreglumenn sem héldu
mér og trömpuðu á mér í klefan-
um hafi getað tekið þátt í þessu.
Það á enginn maður skilið þá
meðferð sem ég fékk.”
Víkurfréttir höfðu samband
við Lögregluna í Keflavík sem
vildi ekki tjá sig um málið.
Úr bókinni
Heimilislæknirinn:
Flogaveiki hin meiri
„Einkennandi fyrir floga-
veiki hina meiri eru köst,
þar sem meðvitundarlaus
sjúklingurinn fellur niður,
líkaminn allur stífnar upp
og rykkist síðan stjórnlaust
til. Svona krampar geta
staðið í fáeinar mínútur og
á eftir fylgir venjulega djúp-
ur svefn eða ruglástand. Í
kastinu getur sjúklingurinn
jafnvel misst stjórn á þvag-
blöðrunni og kastað vatni.”
Bls. 292.
„Hafðu bara í huga, að
hversu virkur sem sjúkling-
urinn kann að virðast, þá
gerir hann sér raunverulega
enga grein fyrir hvað er að
gerast og það þarf að beina
honum varlega frá hættu-
legum stöðum, en ekki að
skamma hann eða rökræða
við hann.”
Bls. 294.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Frá vettvangi slyssins á Njarðarbraut á dögunum.
Þarna er Ágúst kominn aftur inn í bílinn og sjúkra-
flutningsmaður og lögregla huga að honum.
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 12:30 Page 25