Víkurfréttir - 09.10.2003, Qupperneq 27
VÍKURFRÉTTIR I 41. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 9. OKTÓBER 2003 I 27
M eistaralið Keflavíkur í körfubolta tekur á móti Hamar íKeflavík á föstudaginn í fyrsta leik liðsins í Intersportdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Íþróttahúsinu
við Sunnubraut. Eftir leikinn verður áhorfendum boðið upp á
köku þar sem haldið verður upp á þrefaldan áfanga. Sigurður
Ingimundarson þjálfari liðsins til 7 ára verður formlega kvaddur,
Guðjón Skúlason leggur skóna formlega á hilluna og Falur Harð-
arsson fagnar 500 leik sínum með Keflavík. Falur lék sinn fyrsta
leik með meistaraflokki Keflavíkur í úrvalsdeild árið 1986, þá 18
ára að aldri og er þetta 13. leikár hans með félaginu.
Guðjón Skúlason/Falur Harðarson, þjálfarar Keflavíkur
Veturinn leggst vel í okkur. Erum spenntir að sjá hvernig okkar lið
spjarar sig. Það hafa verið breytingar í mannskap liðsins og það verður
spennandi að sjá hvort þetta verði erfiðara í ár en það hefur verið. Við
erum tvöfaldir meistarar frá því í fyrra og það koma allir til með að
vilja vinna okkur. Það er engin spurning að það verður hart sótt að
Keflavík í vetur, en það er ekkert nýtt. Evrópukeppnin kemur síðan inn
fjölbreytni og auknar kröfur á bæði þjálfara og leikmenn.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur
Veturinn leggst vel í mig. Athyglisvert og skemmtilegt mót þar sem
ómögulegt verður að spá um endanleg úrslit, þar sem miklar breyting-
ar hafa orðið á liðunum.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur
Þetta leggst vel í mig, en við erum töluvert breytt lið frá í fyrra. Þetta
verður náttúrulega hörkubarátta. Við erum með marga unga stráka í
bland við eldri og reynslumeiri og við erum sáttir með ameríkanann
sem við fengum og Brenton fer fljótlega að birtast á gólfinu þannig að
ég held að við séum til alls líklegir.
Kvennalið Keflavíkur tekur á móti kvennaliði Grindavíkur í 1.
deild kvenna í körfunni í kvöld. Leikurinn fer fram klukkan 19:15
í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Það verður sannkallaður ná-
grannaslagur í kvennakörfunni í kvöld.
Hvað segja þeir í upphafi Intersport deildarinnar?
-þrír þjálfarar Keflavíkur koma við sögu
Grindavík tekur á móti
Njarðvík á morgun
Deildarmeistarar Grindavík-
ur taka á móti Njarðvíking-
um í Intersport deildinni
annað kvöld í Grindavík.
Leikurinn hefst klukkan
19:15 í íþróttahúsinu
Grindavík.
Þreföld gleði hjá
Keflavík á föstudag
SUÐURNESJASLAGUR
HJÁ STELPUNUM Í KVÖLD
Keflavík meistarar meistaranna
Keflavíkurstelpur unnu Stúdínur 62:52 í Keflavík á sunnudagskvöld í
leik Íslands- og bikarmeistara og eru Keflavíkurstúlkur meistarar
meistaranna. Leikurinn var hörkuspennandi, en Erla Reynisdóttir var
stigahæst í liði Keflavíkur með 16 stig en Guðríður Bjarnadóttir og Jó-
fríður Halldórsdóttir hjá ÍS voru með 10 stig hvor. Leikurinn var til
fjáröflunar félagsins Einstök börn.
VF 41. tbl. 2003 8.10.2003 14:03 Page 27