Víkurfréttir - 13.11.2003, Qupperneq 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þ að er stundum svo gott að staldra við. Já,stundum gott að verða fyrir áfalli. Er þaðekki skrítið? Gleðin hér og sorgin þar,
þær sem eru systur. Þær þurfa að standa saman
í hverju sem á gengur. Úr öllu þarf að vinna.
Komast að því að það
eru allt of margir sem
eru að kikna undan
streitu, stressi og hrein-
um leiðindum. Og verst
er hversu óskaplega
maðurinn er vanmátt-
ugur þegar til kasta
kemur. Hvað er að
verða um gömul og góð
gildi? Ég er minnt á
þau þegar ég kem til
ömmu. „Hvað eru
mennirnir að hugsa?
Hvaðan koma peningarnir fyrir þessu öllu?”
“Jú, jú amma mín hafðu ekki áhyggjur, þetta
reddast.” Jú, það reddast, eins og Ríó sungu hér
um árið.
Ég er farin að halda að þessar hugsanir brjótist sér-
staklega fram á 10 ára fresti. Þetta virðist fylgja
hálfum tug í aldri hjá mér en kannski eru það him-
intunglin sem hafa áhrif. Hvað veit ég, bara ein-
faldur jarðarbúi. Jafnvægið skortir. Jafnvægið í
mig, í veðurfarið, þegar til lengri tíma er litið, í sam-
félagið, já og í flest það sem á vegi mínum verður
þessa stundina. Það er málið. Það sagði eitt sinn
góður maður við mig: „Sveindís, þegar allir eru
orðnir heimskir og vitlausir í kringum þig, þá þarft
þú að líta í eiginn barm.” Nú er ég að því. Ég fer
nú stundum eftir því sem mér er sagt.
Ég var í stuttu vetrarfríi fyrir skemmstu og horfði
yfir bæinn minn og mannlífið sem við mér blasti.
Hér flytja menn fjöll í bókstaflegri merkingu.
Landið tekur á sig breytta mynd og hvernig sem á
allt er litið hefur færst blómi í atvinnulífið, a.m.k. á
ákveðnum sviðum. Þetta minnir helst á síldina, að
ég tali nú ekki um loðnu- tímabilið góða. Hvernig
má það vera að ég hafi áhyggjur á þessum umbrota
og uppgangstímum.
Ég geri mér ferð í bæinn, (Reykjanesbæ) ræði við
menn sem á vegi mínum verða. Fer á sýningu í
Listasafninu í gömlu DUUS húsunum. Mæli með
henni fyrir þá sem vilja sjá eitthvað svolítið „speis-
að”. Kristinn Pálmason er með skemmtilega „öðru-
vísi sýningu”. Hún hefur áhrif á mig. Það er nýaf-
staðið SSS þing og það blasa við umbætur á Heil-
brigðisstofnuninni og Hitaveitan vill bora á Reykja-
nestá, reyndar í trássi við Siv, sem kemur haltrandi á
þingið og stendur föst fyrir á sínum eina fæti.
Framsóknarmennirnir haltra flestir þessa stundina
og ég vara vin minn, Kjartan Má bæjarfulltrúa við,
þegar ég hitti hann á förnum vegi. Hún er nú bráð-
um að fara að hætta þessu „umhverfisvæli”, bless-
unin. Samt stendur hún upprétt enn, þrátt fyrir Júlla
Jóns og Albert sem virðist eins og ég hafa miklar
áhyggjur af þessu öllu. Ég renni mér næst inn í
rjómalognið á SSS skrifstofunum og ræði við nýjan
atvinnuráðgjafa sem eins og ég hefur nokkrar
áhyggjur af því hvaða stefnu við séum að taka í at-
vinnumálum á svæðinu.
Jafnvægi á umbrotatímum
Tek gönguferð með bónda mínum og hundi um
Fitjasvæðið og gef öndunum og svönunum sem,
sem betur fer eru þarna enn þrátt fyrir allar breyt-
ingarnar á svæðinu. Þær fagna mér þegar ég opna
pokann með gamla brauðinu sem ég hef safnað til
mögru áranna. Vilmar sem gefur svönunum alltaf
á hverju ári er þarna líka. Hann þekkir þá nánast
með nafni og bendir mér á ungana. Þetta er frábær
upplifun, sem ég mæli með fyrir alla sem vilja hvíla
hugann og upplifa yndislega náttúru inni í byggð.
Þá er annað svæði sem ég mæli með en það er um-
hverfi Hafna eins og það leggur sig með kirkjunni,
Básendum og öllu því svæði, (á þessu svæði lúrir
gamall langeldur fyrir aftan kirkjuna) áfram að
brúnni á milli heimsálfa og alla leið út í það yndis-
legasta af öllu, það er Reykjanestá, þar sem Eldey
stendur úti fyrir og ber af eins og Ellý heitin Vil-
hjálms, ókrýnd drottning dægurlaga.
Hringi í Svæðisvinnumiðlun. Hún telur yfir 300
manns atvinnulausra á svæðinu, þar af eru yfir 200
manns úr Reykjanesbæ. Nýlega bárust þær fréttir
að Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli væri að segja
upp 90 manns, þar af byggju um 70 hér í bænum.
Já, ekki get ég glaðst yfir þessum fréttum. Hvað er
til ráða. Árni Sigfússon er beygður en hann er ekki
brotinn þrátt fyrir að hann hafi ætlað með handafli
að snúa Bush og hann sem hafði með sér allt heila
stuttbuxnagengið. Þetta er sama gengið og stóð við
hliðið í síðustu sveitarstjórnarkosningum og benti
kjósendum á hversu fljótt Geirdalinn og allir hinir
kommarnir í Samfylkingunni myndu reka herinn.
Þeir lofuðu jú starfsmönnum Varnarliðsins því ef
Samfylkingin kæmist til valda myndu þeir missa
vinnuna. Flestir þeirra eru gamlir nemendur mínir
sem mér þykir afar vænt um en það er önnur saga.
Ég held, að öllu gamni slepptu að við getum öll ver-
ið sammála um það að herinn fari innan tíðar, hvað
sem við tautum og raulum. Þetta er ekki síður
erfitt fyrir þá en okkur eftir hartnær 50 ár. Það er
hinsvegar ástæðulaust að örvænta.
Vaxtarbroddar til staðar
Það eru jú ýmsir vaxtabroddar á þessu svæði og
margir ónýttir möguleikar. Athafnarsvæðið í
Helguvík er vissulega það sem koma skal hér á
þessu svæði. En þurfum við í millitíðinni að fara út
í hreppaflutninga? Sjáum við fyrir okkur að þessar
aðgerðir og uppbygging, sem kosta okkur óhemju
peninga, taki við öllu því fólki sem nú þegar er að
sligast undan fjárhagsstressi og leiðindum?
Það sem veldur mér raunverulegum áhyggjum
þessa stundina er að þegar við erum að missa einn
erlendan atvinnurekanda á svæðinu, Bandaríska
herinn, þá tel ég að um og of sé treyst á erlenda að-
ila til fjármögnunar á framtíðaratvinnuuppbygg-
ingu. Það er síður en svo að ég telji alþjóðlegt sam-
starf neikvætt, bind þvert á móti miklar vonir við
það í framtíðinni. Ég held að við þurfum að staldra
við, nota tækifærið á þessum snúningspunkti og
skoða ný tækifæri. Okkur ber að endurskoða og
endurhæfa. Við verðum í samráði við fólkið að
finna leiðir til vænlegrar atvinnuuppbyggingar. Það
eru mýmörg tækifæri. Ýmsum hugmyndum hefur
verið fleygt fram s.s. flutningi landhelgisgæslunnar.
Nóg er af hafnarmannvirkjum á svæðinu og flug-
völlurinn er til staðar. Þá tel ég vissulega starfs-
menntasetur á Varnarsvæðinu koma vel til greina.
Ég tel að við þurfum að styrkja og efla starfs -og
tæknimennt í landinu til muna í samráði við at-
vinnulífið og hvar er betri staður en hér á Miðnes-
heiði með tvöfaldri Reykjanesbraut. Við eigum að
skoða svæðið í heild. Reykjanesið er eitt atvinnu-
svæði. Það verður ekki hjá því komist að vinna
með vandann til úrlausnar. Það er til að mynda ekki
vænlegt til árangurs, að togstreita á milli sveitarfé-
laga á svæðinu sé til staðar og geti grasserað vegna
kvótakerfis eða vanhugsaðra lagasetninga. Þing-
menn svæðisins hafa lýst áhyggjum sínum. Það er
ekki nóg. Við verðum að snúa bökum saman, sveit-
arfélög, stéttarfélög, þingmenn, félagasamtök, trúfé-
lög og þeir aðilar sem að fjölskyldunum koma.
Það þarf að vinna að uppbyggingu og áfallahjálp
fyrir það fólk sem nú þegar hefur misst vinnu sína
og ekki síður þá sem enn eru í óvissu um framtíð
sína og fjölskyldna sinna. Þetta ástand snertir alla.
Hér er um samfélagsvanda að ræða sem við verðum
í sameiningu að leysa. Þetta snertir okkur öll!
P.s. Ég vil þakka Kvennakór Suðurnesja og Lög-
reglukórnum fyrir frábæra tónleika í Njarðvíkur-
kirkju um síðustu helgi. Lengi lifi söngur og gleði.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn, fast þeir
sóttu sjóinn og það gera Grindvíkingar enn og
nokkrir aðrir “geirfuglar” á nesinu.
Kveðja,
Sveindís Valdimarsdóttir.
Hugleiðingar í skammdeginu
➤ S V E I N D Í S V A L D I M A R S D Ó T T I R S K R I F A R
M iðvikudaginn 19.nóvember kl. 20.30stendur Byggðasafn
Reykjanesbæjar fyrir
fræðslufundi í Duushúsum,
Duusgötu 2, Reykjanesbæ.
Gestur kvöldsins er Jón Þ.
Þór sagnfræðingur og mun
hann kynna rannsóknir sín-
ar á byggðasögu og sögu
sjávarútvegs. Eftir Jón ligg-
ur fjöldi ritverka, skemmst
er að minnast útgáfu byggða-
sögu Hafnahrepps, „Hafnir á
Reykjanesi”, sem út kom s.l.
vor, en áður hafði hann t.d.
samið sögu Grindavíkur.
Saga sjávarútvegs hefur ver-
ið honum hugstæð og er nú
um þessar mundir að koma
út annað bindið í ritverki
hans um sögu sjávarútvegs,
Uppgangur og barningur.
Penninn - Bókabúð Keflavík-
ur verður með bækur Jóns á
tilboðsverði á staðnum, heitt
kaffi á könnunni.Allir vel-
komnir.
Saga sjávarútvegs í Duushúsum
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins
í Keflavík fyrir góða umönnun.
Guðríður Guðmundsdóttir,
Sverrir Jóhannsson, Ingibjörg Guðnadóttir,
Einar Jóhannsson, Hjördís Brynleifsdóttir,
Guðlaug Jóhannsdóttir, Ómar Steindórsson,
Þórunn Jóhannsdóttir, Eiríkur Hansen,
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Jóhanns Gunnars Friðrikssonar,
Hólabraut 2, Keflavík,
frá Látrum í Aðalvík.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 14. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Hjördís Baldursdóttir, Halldór Kristinsson,
Baldur Jóhann Baldursson, Ingibjörg Soffía Sveinsdóttir,
Tinna Björk Baldursdóttir, Björgvin Færseth,
barnabörn og barnabarnabörn.
Baldur Guðjónsson,
Langholti 15,
Keflavík,
✝
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 14:01 Page 10