Víkurfréttir - 13.11.2003, Qupperneq 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
E ins og fram hefur komiðí fjölmiðlum var hinnnýji Volkswagen Tran-
sporter kjörinn sendibíll ársins
2004 á alþjóðlegri sendibíla-
sýningu sem fram fer í Amster-
dam. Bifreiðin verður kynnt
hér á landi í innan tíðar en
söluumboð HEKLU í Reykja-
nesbæ, afhenti þó fyrstu bíl-
anna nú nýverið. Það voru út-
gerðarfyrirtækin Nesfiskur og
Guðdís ehf. sem fengu bílana
afhenta af Kjartani Steinars-
syni, umboðsmanni HEKLU í
Reykjanesbæ.
„Volkswagen Transporter hefur
alltaf verið með frábæra hlutdeild
á vinnubílamarkaðnum hér á
Suðurnesjum. Það er því mikill
heiður fyrir okkur að fá að af-
henda fyrstu bílana hér á landi til
viðskiptavina okkar í Reykjanes-
bæ. Við bindum miklar vonir við
bílinn, enda eldri gerð hans af-
burðabíll. Nýji bíllinn er frábær í
umgengni, býður upp á mikla
aksturseiginleika og hægt að fá í
mörgum mismunandi útfærslum.
Auk þess spillir ekki fyrir að
verðið er frábært,” segir Kjartan
Steinarsson, umboðsmaður
HEKLU.
18 manna dómnefnd ritstjóra og
útgefanda helstu viðskiptatíma-
rita Evrópu sæmdi hinn nýja
Transporter þessum ágætu verð-
launum. Hinn nýi VW Tran-
sporter kom á markaðinn í maí
sl. og fékk heil 115 stig af 126
mögulegum. Betri árangur hefur
ekki náðst í tólf ára sögu þessarar
keppni.
Pieter Wieman formaður dóm-
nefndar hélt lofræðu þar sem
hann útskýrði ástæður þess að
sigur féll svo ótvírætt í skaut nýja
sendibílnum frá Volkswagen.
„Volkswagen hefur tekist hið
ómögulega. Nýja Transporter-
bifreiðin er jafnvel enn betri en
fyrirrennari hennar, en þar var
um afburðabifreið að ræða. Um
að ræða atvinnubifreið þar sem
ekki er slakað á neinum kröfum,
með aukinni flutningsgetu, nýrri
og enn öflugri vél en áður og
bættum aksturseiginleikum”.
Dómnefnd hrósaði Transporter-
sendibílnum fyrir vélina og sagði
að ný fimm strokka díselvél með
beinni innspýtingu og nýr sex
gíra gírkassi gerði það að verkum
að ökumanninum fyndist að
hann væri að aka sportbíl sem
hann gæti ekki hugsað sér að yf-
irgefa.
Bifreiðin er framhjóladrifin og
með nýjum fjaðrabúnaði sem
hannaður er hjá atvinnubíladeild
Volkswagen og þannig fær bif-
reiðin aksturseiginleika sem nær
jafnast á við fólksbifbifreið.
Dómnefndin var einnig mjög
hrifin af þeirri áherslu sem lögð
er á að hlusta á tillögur notenda
sjálfra um hvað þeir vilja hafa í
bílum sem þeir kaupa. Þannig
hafa orðið til margar snjallar og
hagnýtar lausnir hvað varðar ör-
yggi og nýtingu. Bestu mögulegu
vinnuvistfræðilegu lausnir gera
hinn nýja Transporter að einstök-
um atvinnuvettvangi.
Bernd Wiedemann, talsmaður
framkvæmdastjórnar atvinnubif-
reiðadeildar Volkswagen, var upp
með sér á verðlaunaafhending-
unni í Amsterdam yfir því að
geta fullyrt að nýi Volkswagen
sendibíllinn væri í fararbroddi,
líkt og fyrirrennari hans. Hann
bætti því við að eldri gerðin hefði
í 13 ára sögu sinni fengið á fjórða
tug verðlauna, bæði í Þýskalandi
og erlendis, og að á sendibílinn
væri jafnvel skráð heimsmet í
heimsmetabók Guinness.
Nýja Volkswagen sendibifreiðin
hefur þegar fengið nafnbótina
„Sendibíll ársins 2003” í Þýska-
landi og enska tímaritið „What
Van?” valdi hana líka sem
„Sendibíl ársins 2003”. VW
Transporter er smíðaður í verk-
smiðjum Volkswagen í Hannover
í Þýskalandi og í Poznan í Pól-
landi.
➤ S Ö L U U M B O Ð H E K L U Í R E Y K J A N E S B Æ
➤ N O R R Æ N A B Ó K A S A F N S V I K A N
Afhentu fyrstu eintökin af
nýjum sendibíl ársins 2004
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu fyrstu transporter pallbílanna, f.v
Ingibergur Þorgeirsson frá Nesfisk Þórður Gunnarsson Heklu Kjartan
Steinarsson Heklu Reykjanesbæ og Sigurður Friðriksson Guðdísi ehf.
H afið og norðrið er yfir-skrift Norrænu bóka-safnavikunnar í ár. Vik-
an hefst mánudaginn 10. nóv-
ember og lýkur þann 16. sem
jafnframt er dagur íslenskrar
tungu.
Bókasafn Reykjanesbæjar,
menningarfulltrúi bæjarins og
Suðurnesjadeild Norræna félags-
ins ætla í sameiningu að halda
upp á vikuna og verður setning-
arathöfnin í Duushúsum, Duus-
götu 2 þann 10. kl. 18:00. Dag-
skráin hefst með því að lesinn
verður inngangskaflinn í skáld-
sögu Alexanders Kielland,
Garman og Worse, þar sem fjall-
að er um hafið. Síðan tekur við
fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.
Meðal annars verður ungum
skáldum í Reykjanesbæ veittar
viðurkenningar, en Bókasafn
Reykjanesbæjar ákvað að verð-
launa sérstaklega þau börn sem
sendu inn ljóð í ljóðasamkeppn-
ina Ljóð unga fólksins og komust
áfram í úrslit á landsvísu.
Hafið og norðrið
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 15:23 Page 12