Víkurfréttir - 13.11.2003, Qupperneq 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hvar eruð þið nákvæmlega staddir
núna?
Núna erum við nákvæmlega
staddir í „borg” sem heitir
Whangarei á Nýja Sjálandi. Við
leigjum okkur litla Toyotu sem
við komum til með að sofa í,
borða í og örugglega ekkert
fleira. Við erum að reyna að eyða
sem minnstum pening hérna svo
að við getum slett aftur úr klauf-
unum í Mið-Ameríku. Okkur
finnst svo miklu skemmtilegra í
löndum þar sem menningin er
frábrugðin menningunni heima.
Svo er líka búið að vera grenj-
andi rigning hérna!
Hvernig hefur ykkur liðið?
Við skemmtum okkur alltaf vel,
sama hvað á dynur. Til dæmis í
Ástralíu vorum við yfirleitt farnir
að sofa klukkan 9:30-10:30 og
akkúrat það augnablik sem við
vorum að fara upp í rúm litum
við á hvorn annan og grenjuðum
úr hlátri yfir því að vera að fara
að sofa svona snemma. Þannig
að við getum alveg sagt að okkur
líði yfirleitt alltaf mjög vel enda
kemur okkur svo vel saman.
Hafið þið lent í einhverjum vandræð-
um?
Nei, ekki nema bara það sem
hefur komið fram í pistlunum (og
svo það sem maður getur ein-
faldlega ekki sagt frá hehe). Ef
maður er ekki að leita að vand-
ræðum eru litlar líkur að þær
komi til manns. Reyndar, ef kalla
má vandræði hefur endajaxlinn i
Hemma verið að bögga hann síð-
ustu vikuna og ef maður lítur á
hann frá þeirri hlið sem hann er
bólginn lítur hann út eins og
bangsi. Þannig að þið sjáið
kannski hvað allt hefur gengið
vandræðalaust fyrir sig.
Rifjið upp eina skemmtilega sögu?
Það er eitt sem okkur dettur í hug
sem við gleymdum hreinlega að
segja frá. Við vorum í Siem Reap
í Kambódíu á einhverjum
skemmtistað þar. Við settumst
niður við eitt af borðunum og
pöntuðum okkur sitt hvorn bjór-
inn. Ekki leið á löngu áður en
heimamennirnir voru farnir að
blanda geði við okkur og við
reyndum að halda upp einhvers-
konar samræðum þrátt fyrir
tungumálamúrinn. Þó svo að við
skildum ekki rassgat hvað þeir
voru að segja og þeir ekki okkur
heldur kom okkur vel saman
með því að skála bara í staðinn á
5 sekúndna fresti og brosa bara
til hvors annars. Svo lokaði
skemmtistaðnum klukkan 3 og
þeir spurðu okkur hvort við vær-
um ekki tilbúnir í smá áfram-
haldandi teiti. Við vorum nú
meira en til í það og svo var lagt
í’ann. Við vorum 7 allir til sam-
ans en bara tvær vespur til að
fara með okkur á staðinn sem var
aðeins fyrir utan bæinn. Þeir létu
það þó ekki stoppa sig heldur
fóru 4 saman á aðra vespuna og
létu fyllsta manninn keyra og við
fórum aftan á með stráknum sem
var ekki búinn að drekka neitt.
Við keyrðum örugglega í 20
mínútur út fyrir bæinn. Fyrstu 5
mínúturnar voru allar á malbiki
en svo tóku við hrikalegir mold-
arvegir og um tíma vorum við
farnir að hugsa um hvert í and-
skotanum þeir væru að fara með
Heimsreisufararnir hressir á Fiji eyjum:
Karaókí í Kambódíu
- Ameríka handan við hornið hjá heimsreisuförum
Heimsreisufararnir Hemmi og Maggieru nú staddir á Nýja Sjálandi, en síðustu vikur hafa þeir ferðast
um Kambódíu, Taíland og Ástralíu. Þeir eru ánægðir með ferðalagið það sem af er komið og þeim líður vel. Reglulega
birtast pistlar frá þeim á heimsreisusíðu Víkurfrétta þar sem þeir fjalla á skemmtilegan hátt um það sem á daga þeirra
hefur drifið. Skoða má heimsreisusíðuna á vefslóðinni vf.is/heimsreisan
Félagarnir gengu af
göflunum í
stríðsleikjagarði
þar sem þeir voru
klæddir upp í
alvöru galla og
fengu byssur og
sprengjur að vild!
Kannast einhver við
þessa uppstillingu?
Rómantísk stund vð
Tai Mahal.
Traust „look“ hér á ferð
í austurlöndum fjær!
VF 46. tbl. 2003 12.11.2003 15:24 Page 16