Víkurfréttir - 13.11.2003, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
Jón Pétur Róbertssoner nýráðinn fram-kvæmdastjóri knatt-
spyrnudeild-
ar Keflavíkur,
en Jón Pétur
þjálfaði yngri
flokka félags-
ins í knatt-
spyrnu árið
1998. Jón mun sjá um dag-
legan rekstur knattspyrnu-
deildarinnar.
„Ég verð töluvert í stefnu-
mótun og í almennu upp-
byggingarstarf i hjá deild-
inni,” segir Jón en honum líst
mjög vel á aðstöðuna hjá fé-
laginu. „Ég finn fyrir miklum
meðbyr og úrvalsdeildarliðið
hefur burði til að gera góða
hluti í deildinni næsta sumar.
Það eru samt erfiðir tímar
framundan þar sem við þurf-
um að vinna eftir leyfiskerfi
KSÍ. En það er bara
skemmtileg og gefandi vinna.
Það er mikill hugur og metn-
aður í stjórninni til að gera
vel í úrvalsdeildinni. Hug-
myndin er einnig að bæta
samstarf við fyrirtæki og gera
heimaleikina að stórviðburð-
um og flykkja fólki á völl-
inn.”
Jón Pétur er í fullu starfi hjá
Keflavík, en samhliða fram-
kvæmdastjórn mun hann
þjálfa 2. flokk karla í knatt-
spyrnu.
➤ E I G E N D U R T O Y O TA - B Í L A
➤ K Ó R A R F J Ö L B R A U TA S K Ó L A S U Ð U R N E S J A
Réðust inn í
íbúð þroska-
heftra ein-
staklinga
Hópur unglinga réðstinn í íbúð þroska-heftra einstaklinga í
íbúð í Keflavík aðfaranótt
laugardagsins og var lög-
regla kvödd á staðinn til að
rýma íbúðina. Unglingarnir
komu inn óboðnir og ollu
töluverðum skemmdum og
brutu m.a. gifsveggi og
eyðilögðu húsmuni.Að sögn
Jóhannesar Jenssonar að-
stoðaryfirlögregluþjóns lög-
reglunnar í Keflavík hefur
brotið verið kært til lögregl-
unnar. „Þetta er húsbrot
þar sem fólk kom inn óboð-
ið. Lögreglan er svo sem
ekki ókunnug þessu því það
er algengt að samkvæmi
fara úr böndunum þegar
óboðnir gestir koma í slík
samkvæmi,” segir Jóhannes
en lögreglan vinnur að
rannsókn málsins.
Gekk nakinn
um líkams-
ræktarstöð
Ámiðvikudag í síðustuviku var óskað að-stoðar lögreglu vegna
manns sem spígsporaði
nakinn um líkamsræktar-
stöð í Keflavík. Neitaði
maðurinn að fara í fötin sín
og gekk í rólegheitum um
líkamsræktarstöðina ,
allsnakinn. Áður en lögregl-
an kom á staðinn hafði tek-
ist að fá manninn til að
klæða sig og var aðstoð lög-
reglu því afturkölluð. Ekki
fara fréttir af því hvort
maðurinn hafi stundað lík-
amsræktina nakinn, en án
efa hefur gestum stöðvar-
innar brugðið við þessa
uppákomu.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
knattspyrnu-
deildar Keflavíkur
Opið hús hjá Kaffitári á laugardaginn
GVS heldur glæsilegt Bingó í
Stapanum í kvöld, fimmtudaginn
13. nóv. kl. 19:30 meðal glæsil-
egra vinninga má nefna flug-
ferðir utanlands, golfsett,
matarkörfur, listmuni, gistingar
ofl. Spilaðar verða 12 umferðir.
Stjórn Golfklúbbs
Vatnsleysustrandar
STÓR-BINGÓ
Í STAPANUM
Dagana 10. til 14. nóvember býður Toyota í Njarðvík til sér-stakrar eigendaviku þar sem eigendum Toyota bifreiða erboðin ókeypis vetrarskoðun hjá Bíliðn, Njarðarbraut 17 í
Njarðvík. Opið verður alla dagana milli klukkan 8 og 18, en þar
verður boðið upp á kaffi á meðan Toyota bíllinn er yfirfarinn.
Ókeypis vetrarskoðun
hjá Toyota/Bíliðn
Reynslusaga Rut Reginalds
söngkonu úr Keflavík er komin
út, en Rut mun árita bókina í
Pennanum Keflavík á morgun
klukkan 16. Í bókinni segir
Rut frá lífshlaupi sínu, en eins
og flestir vita var hún ein hels-
ta barnastjarna landsins um
margra ára skeið. Margar sög-
ur úr Keflavík eru í bókinni.
„Ég er náttúrulega alin upp í
Keflavík og í bókinni eru
margar reynslusögur héðan,
bæði góðar og svo miður góðar.
Mér þykir ofsalega vænt um
Keflvíkinga og ber miklar
taugar til svæðisins,” sagði Rut
í samtali við Víkurfréttir.
Samhliða bókinni hefur verið
gefinn út geisladiskur með
barnalögunum sem Rut söng
hér áður fyrr og segir Rut það
vera gott tækifæri fyrir for-
eldra að gefa börnunum sínum
geisladiskinn um leið og það
kaupir bókina.
Rut Reginalds mun spila fyrir
dansi á veitingastaðnum
Paddy´s föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Rut áritar í Pennanum
Húsfyllir var á söngskemmtun kóra Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fram fór í DUUS-húsum sl. fimmtudagskvöld.
Gestir voru ánægðir með söng kóranna og var rætt um það meðal gesta að þeir ættu mikla framtíð fyrir sér undir
styrkri stjórn Kjartans Más Kjartanssonar. Undirleikarar voru Sigrún Gróa Magnúsdóttir á píanó og
Guðbrandur Einarsson á hljómborð. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Kaffitár hefur tekið nýja kaffibrennslu í notkun og
opnað nýtt, glæsilegt kaffihús og verslun að Stapa-
braut 7 í Njarðvík. Að þessu tilefni verður opið hús
laugardaginn 15. nóvember frá kl. 10:00 til 16:00.
Auk þess sem gestum er boðið að skoða húsið mun
Ragnheiður brennslumeistari brenna kaffi kl. 11 og
14 og kaffismökkun verður kl. 12 og 15. Þennan
dag mun opna ljósmyndasýning og er hún tileinkuð
kaffi. „Við verðum með heitt kaffi á könnunni og
vonumst að sjá sem flesta kaffiunnendur”, segir Að-
alheiður Héðinsdóttir eigandi Kaffitárs í samtali við
Víkurfréttir.
®
VF 46. tbl. 2003 #2 12.11.2003 15:33 Page 18